Fréttatíminn - 20.12.2013, Page 92
Helgin 20.-22. desember 201392 tíska
Tíska samfélagsleg ábyrgð í verki
Góð tilfinning að
styrkja góðan málstað
Ný fatalína Dimmblár, sem skartar íslenskri náttúru, mun styrkja Landvernd. Heiðrún Ósk Sigfús-
dóttir, framkvæmdastjóri Dimmblár segir að í framleiðslunni hafi einnig verið hugað að umhverf-
inu því að í hana eru notuð náttúruleg efni meðal annars unnin úr íslenskri trjákvoðu.
é g er alveg ofboðslega ánægður, tengingin við náttúruna er líka skemmtileg og Heiðrún Ósk vill gefa til baka til náttúrunnar og ákveður
að gera það í gegnum vinnu umhverfissamtaka. Mér
finnst hún vera að sýna samfélagslega ábyrgð í verki.
Við erum náttúrlega bara hæstánægð með það,“ segir
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri
Landverndar.
Ný fatalína frá Dimmblá er komin á markað og
hefur fyrirtækið gert samning við Landvernd um að
hluti af ágóða af sölu varanna renni til þeirra. Línan er
unnin úr náttúrulegum og umhverfisvænum efnum
og á línunni eru ljósmyndir af íslenskri náttúru eftir
Sigurð Hrafn Stefnisson. Nýlega var kynningarvið-
burður haldinn við Kleifarvatn þar sem samingurinn
var undirritaður.
Landvernd hleypti af stað nýju verkefni um utan-
vegaakstur við Kleifarvatn og er það unnið í samstarfi
við Landgræðslu ríkisins og með stuðningi Náttúru-
verndarsjóðs Pálma Jónssonar. „Utanvegaakstur er
orðinn alvarlegt umhverfisvandamál í íslenskri náttúru
og skemmir ásýnd hennar. Heiðrún Ósk hjá Dimmblá
er kannski fyrsti einkaaðilinn sem að gengur til
samnings við okkur um að láta hluta af ágóðanum af
sinni vöru koma til okkar en það er ekki einsdæmi að
einstaklingar hafi verið að styrkja Landvernd,“ segir
Guðmundur.
Heiðrún segir að í framleiðsu fatalínunnar hafi verið
notuð náttúruleg efni meðal annars sem unnin eru
úr íslenskri trjákvoðu. Einnig hafi náttúruleg bómull
verið notuð sem viðurkennd hafi verið eftir alþjóð-
legum stöðlum. „Ég ákvað að ég vildi láta gott af mér
leiða og hafði samband við Guðmund og sagði honum
að ég hefði áhuga á að styrkja verkefni hjá Landvernd.
Það er mjög góð tilfinning að styrkja þennan góða mál-
stað og ég tel það vera forréttindi að styrkja þetta nýja
og spennandi verkefni hjá Landvernd,“ segir Heiðrún
Ósk. Dimmblá selur nýju línuna sína í verslun Around
Iceland á Laugavegj, Kraumi í Aðalstræti, Islandia í
Kringlunni og Aurora Reykjavík úti á Granda.
María Elísabet Pallé
maria@frettatiminn.is
Heiðrún Ósk Sigfúsdóttir og Guðmundur Ingi Guðbrandsson
undirrita samstarfsamning. Ljósmynd/Atli Már Hafsteinsson.
Fyrirsætan Ásdís Svava Hall-
grímsdóttir í nýju línu Dimmblár.
Ljósmynd/Atli Már Hafsteinsson.
KYNNING
Andlit: Top Secrets BB krem er
notað sem undirfarði, með því
móti þarf ekki að nota jafn mikið
af farðanum. Le Teint Touche Éclat
farði er settur yfir BB kremið,
farðinn gefur fallega og nátt-
úrulega ljómaáferð. Touche éclat
töfrapenninn er settur í kringum
augu og unninn út á kinnbein. Til
þess að draga úr línum í andliti og
skerpa varir má einnig nota töfra-
pennann og vinna hann vel saman
við farðann. Til þess að skyggja
andlitið er sólarpúður númer 2
notað undir kinnbein og kjálka og
að lokum er kinnalitur nr. 10 settur
á kinnar til þess að fá ferskt og
flott útlit.
Augu: Touche éclat myndar góðan farðagrunn fyrir augnskugga og því er
sérstaklega gott að nota hann á augnlokin. CLASSY augnskuggapalletta er
notuð í augnförðun, þetta er fjögurra skugga palletta sem einnig má bleyta til
þess að ná fram meiri lit. Ljósasti liturinn er notaður sem grunnur alveg upp að
augabrúnum. Ljósbrúni liturinn er settur yfir allt neðra augnlok, að lokum er
dekksti liturinn notaður á ytri augnlok til þess að ná fram fallegri skyggingu. Til
þess að breyta aðeins til er flott að nota silfurglimmer skuggann í pallettunni
undir augu og jafnvel í augnkróka. Að lokum er BabyDoll fjólublár eyeliner nr.
12 notaður frá innri augnkrók að ytri með smá boga upp og BabyDoll maskari
borinn á augnhárin til þess að fá opnara augnaráð og þéttari og lengri augnhár.
Varir: Touche éclat myndar góðan grunn fyrir varaliti og því upplagt að nota
hann yfir varirnar og í kringum þær. Varablýantur nr. 10 er notaður til þess að
skerpa og skyggja varirnar, hann er settur í varalínuna og síðan unninn inn á
varirnar. Rouge Pur Couture rauður varalitur nr. 57 er að lokum borinn á varir
til þess að fullkomna jólaförðunina.
Jólaförðun YSL 2013
Bæjarlind 6, sími 554 7030 www.rita.is Ríta tískuverslun
Síðar mussur
kr. 7.900.-
Str. 40-58
Bæjarlind 6, sími 554 7030 www.rita.is Ríta tískuverslun
íðar ussur
kr. 7.900.-
tr. 40-58
Jakki kr. 12.900.-
kjóll kr. 12.900.-
str. 40-56/58
Jóla- og áramótafötin
Laugardag opið 10-18
Sunnudag opið 13-18
Kjóll kr. 12.900
Frábær verð og
persónuleg þjónusta
Fullt af
nýjum
vörum
20% afsláttur
af öllum kjólum
og allar
peysur á
5000 kr.
Opnunartími: Virka daga kl. 11-18 Laugard. kl. 11-16
Laugavegi 178 ( Bolholtsmegin ) l S. 555 1516 l Kíktu á síðuna okkar
Momentum
kjóll á 16.900 kr.
Stærð 36 - 46
Flottir
kjólar
Opið í dag kl. 11 - 18.
Opið laugard. kl. 11 - 17
Opið sunnud. kl. 12 - 16
Opið á Þorláksmessu kl. 11 - 20.
Kjóll
á 12.900 kr.
Stærð
36 - 46.