Fréttatíminn - 19.04.2013, Side 2
Smurostar
við öll tækifæri
ms.is
... ný bragðtegund
H
VÍ
TA
H
ÚS
IÐ
/
S
ÍA
-
11
-0
50
9
Ný bragðtegund
með
pizzakryddi
Ný viðbót í ...
... baksturinn
... ofnréinn
... brauðréinn
... súpuna
eða á hrökkbrauðið
Tvö þúsund leiksýningar
Leikhúsgestir hjá atvinnuleikhúsunum, leik-
hópum og áhugafélögum veturinn 2011-12 voru
nálægt 350 þúsund talsins og sýningarnar
rúmlega tvö þúsund, samkvæmt tölum frá Hag-
stofunni. Af þeim voru sýningargestir atvinnu-
leikhúsanna fjögurra tæplega 300 þúsund.
Atvinnuleikhópar eru rúmlega 60 og settu upp 91
sýningu á tímabilinu. Metfjöldi leikhússgesta ef
horft er til síðustu þriggja áratuga hjá atvinnu-
leikhúsunum var sýningarárið 1998-9 þegar um
315 þúsund gestir mættu í leikhús. -sda
Nær fimm þúsund vildu
hlut í VÍS
Mikil umframeftirspurn var í hlutafjárútboði
VÍS en tæplega 5.000 fjárfestar óskuðu eftir
að kaupa hlut í félaginu. Alls var 70 prósent af
hlutafé félagsins selt fyrir 14,3 milljarða króna.
Upphaflega var gert ráð fyrir að selja 60 prósent
hlut en seljandinn hafði heimild til að stækka
útboðið um 10 prósent. Útboðið er skýr vísibend-
ing um að áhugi á hlutabréfamarkaðnum sé að
Vilja snjóframleiðslu og skíðahús
Skíðasamband Íslands hefur sent sveitarfélögum á höf-
uðborgarsvæðinu hvatningu til þess að bæta aðstöðu
skíðamanna á svæðinu sem þeir segja í miklum ólestri.
Skíðamenn skora á sveitarfélög að koma upp snjófram-
leiðslu í Bláfjöllum og Skálafelli auk þess sem þeir vilja
að hugmyndir um byggingu skíðahúss í Úlfarsfelli verði
teknar til sérstakrar athugunar. Skíðasambandið lýsir
jafnframt miklum áhyggjum af aðstöðuleysi sem lýtur
bæði að keppnisfólki og almenningi. -sda
aukast, segir Greining Íslandsbanka.
„Fjármagnshöftin takmarka fjár-
festingarkosti fyrir innlenda fjár-
festa og hlutabréf gefa fjárfestum
tækifæri til að auka eignadreifingu
og freista þess að ná hærri ávöxtun
á eignasafn sitt. Velta má því
fyrir sér hvort fleiri félög muni ekki
reyna að nýta þann meðbyr sem
hlutafjármarkaður virðist hafa og
freista skráningar á árinu. TM mun
í öllu falli verða skráð á markað á
árinu en útboð félagsins hefst 22.
apríl.“ - jh
Fleiri flytjast til
landsins en frá því
Á fyrsta ársfjórðungi fluttust 480
fleiri til landsins en frá því og er það
þriðji ársfjórðungurinn frá hruni
2008 sem sú tala er jákvæð, en á
fjórða fjórðungi í fyrra fluttust 620
fleiri til landsins en frá því, að því
er Hagstofa Íslands greinir frá. Er
þetta umtalsverður viðsnúningur
frá því sem var skömmu eftir hrun
og batamerki í efnahagslífinu, að
því er fram kemur hjá Greiningu
íslandsbanka. Atvinnuleysi hefur
minnkað og störfum fjölgað sem
er öfugt við þróun víða í nálægum
ríkjum. Á árinu 2009 fluttust 4.835
fleiri frá landinu en til þess, og á ár-
unum 2009 til 2012 hafa samanlagt
8.692 fleiri flust frá landinu en til
þess, en það er ríflega 2,7 prósent
heildaríbúafjölda í landinu í upphafi
árs 2009. - jh
G unnlaugur Jónasson, bóksali á Ísafirði, byrjaði um miðjan aldur að taka þátt í Fossavatnsgöngunni. Þann 4. maí. Hann er 82ja ára og reynir að fara sem oftast á gönguskíði. „Það
er svo stutt að fara. Það líða ekki nema tólf mínútur frá því maður
stendur upp úr sófanum og þar til maður er kominn á skíðin hér uppi
í dal,“ segir Gunnlaugur. Hann hefur nú tekið þátt í hinni
árlegu Fossavatnsgöngu, elstu og fjölmennustu göngu-
skíðakeppni landsins, í bráðum þrjátíu ár. „Ég rölti þetta
bara á mínum hraða,“ segir hann og bætir hógvær við:
„Ég er ekki einn af aðalköppunum.“
Gunnlaugur segir mikilvægt að segja sér markmið. Í
ár er markmiðið að fara 20 kílómetrana á tveimur tímum.
„Einu sinni var markmiðið einn og hálfur. Maður bara
metur þetta raunsætt,“ segir hann.
Þegar Gunnlaugur var tólf ára patti á Ísafirði keppti
hann í skíðagöngu við góðvin sinn að nafni Oddur Péturs-
son. „Hann var þá mikill kappi og vann mig. Við kepptum
oft eftir þetta og hann var alltaf langt á undan mér. En 58
árum síðar hafði staðan breyst, hann var orðinn slapp-
ari og ég varð loks á undan,“ segir Gunnlaugur hlæjandi.
„Ef þetta er ekki þolinmæði þá veit ég ekki hvað!,“ bætir
hann við. Gunnlaugur lét þess ekki getið sérstaklega en
Oddur átti glæstan skíðaferil og keppti tvisvar á vetraról-
ympíuleikunum fyrir Íslands hönd á skíðum.
Það er síðan afabarn Odds, Albertína Friðbjörg Elías-
dóttir, sem er einn af forsvarsmönnum göngunnar í ár.
Hún leggur áherslu á að gangan sé fyrir alla, hvort sem
um er að ræða þrautþjálfaða keppnismenn, byrjendur eða
börn. Þegar hafa um 200 manns frá ellefu löndum skráð
mig, meðal annars frá Brasilíu. Albertína er mjög spennt
fyrir göngunni. Skipulagið er alltaf með sama sniði. Á
fimmtudeginum fyrir gönguna kennir heimsþekktur
gönguskíðakappi þátttakendum réttu tökin, á föstudegi
er skráning og pastaveisla. Keppnin sjálf er á laugardeg-
inum. „Strax að henni lokinni er síðan kökuveisla þannig að þetta
verður eins og risastór fermingarveisla,“ segir Albertína. Hún tekur
ekki sjálf þátt í ár heldur tekur á móti keppendum í marki og hvetur
þá síðasta spölinn.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Útivist FossavatnsGanGan hentar öllum
Sigraði ólympíufarann
Bóksali á níræðisaldri er strax byrjaður að hlakka til hinnar árlegu Fossavatnsgöngu á Ísafirði. Hann
hefur verið á skíðum frá barnsaldri og bæði sýnir og sannar að þolinmæðin þrautir vinnur allar.
Gunnlaugur Jónasson segir fátt betra en að fara á gönguskíði í kafaldsbyl og fá súrefni í kroppinn. Honum líkar einnig
ágætlega að skíða í sólinni. Ljósmynd/Benedikt Hermannsson
Ég er ekki
einn af aðal-
köppunum.
Kostnaður Ríkisútvarpsins við Söngva-
keppnina, undankeppni Eurovision, var um
30 milljónir króna samkvæmt upplýsingum
frá Skarphéðni Guðmundssyni dagskrár-
stjóra. Hann segir að ekki sé búið að gera
upp alla kostnaðarliði en fyrir liggi að kostn-
aðurinn verði nokkuð lægri en fyrri ár, eins
og lagt hafði verið upp með.
„Við þetta má bæta að innsend lög hafa
aldrei verið fleiri en í ár, áhorfið með mesta
móti en um 57 prósent áhorf var á úrslita-
kvöldið og bar aukin þátttaka í símakosn-
ingu vitni um það,“ segir Skarphéðinn.
Skarphéðinn upplýsir jafnframt að kostn-
aður við að senda Eyþór Inga Gunnlaugs-
son og föruneyti til þátttöku í Eurovision
í Svíþjóð verði á svipuðum slóðum ef ekki
ögn lægri en fyrri ár, um 30 milljónir króna.
Samanlagður kostnaður RÚV við Eurovision
er því um 60 milljónir króna.
Kostnaður við Áramótaskaupið 2012 var
sömuleiðis á pari við fyrri ár. RÚV varði
um 30 milljónum króna í framleiðslu þessu.
Áhorf á Skaupið var 84,4 prósent
sönGkeppni kostnaður rÚv svipaður oG undanFarin ár
Eurovision kostar 60 milljónir króna
Höskuldur Daði
Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Eyþór Ingi syngur fyrir Íslands
hönd í Malmö. RÚV ver um 30
milljónum í að senda hann út.
2 fréttir Helgin 19.-21. apríl 2013