Fréttatíminn - 19.04.2013, Blaðsíða 10
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
6,3%
Fastir
vextir
Óverðtryggðir
innlánsvextir m.v.
36 mánaða bindingu
2,5%
Fastir
vextir
Verðtryggðir
innlánsvextir m.v.
36 mánaða bindingu
Nýjung í
landslaginu
Við bjóðum fjölbreytt úrval innláns
reikninga með föstum vöxtum.
Hafðu samband og kynntu þér málið.
Ármúli 13a / Borgartún 26 / 540 3200 / www.mp.is
Óverðtryggðir innlánsreikningar með föstum vöxtum.
Verðtryggðir innlánsreikningar með föstum vöxtum.
3 mánuðir 4,8%
6 mánuðir 5,0%
12 mánuðir 5,2%
24 mánuðir 5,4%
36 mánuðir 6,3%
60 mánuðir 6,4%
36 mánuðir 2,5% 60 mánuðir 2,75%
Miðað við útgefna vaxtatöflu MP banka 11. apríl 2013.
K ortaveltutölur fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins benda til þess að einkaneysla hafi dregist saman að
raunvirði á fyrsta ársfjórðungi. Tölurnar
sýna á hinn bóginn áframhaldandi myndar-
legan vöxt erlendrar kortaveltu hér á landi.
Í nýlega birtum tölum Seðlabankans um
greiðslumiðlun til og með mars á þessu ári
kemur fram að debetkortavelta í mars var
4,4% minni í krónum talið en í sama mánuði
í fyrra. Kreditkortavelta jókst hins vegar
um 3,4% á sama kvarða mælt, að því er fram
kemur hjá Greiningu Íslandsbanka.
„Mikil fylgni er milli raunþróunar
kortaveltu einstaklinga og einkaneyslu hér
á landi, enda kortanotkun útbreiddari hér-
lendis en víðast hvar annars staðar. Ef tekin
er saman heildar kreditkortavelta og debet-
kortavelta í innlendum verslunum kemur
í ljós að kortavelta á þann kvarða dróst
saman að raungildi um 2,3% í mars frá sama
mánuði í fyrra. Er þetta athyglisvert í ljósi
þess að debetkortaveltan í mars náði þetta
árið að mestu yfir páskafrí landsmanna,
þegar ætla mætti að heimilin gerðu betur
við sig en endranær. Sé tekið mið af fyrsta
fjórðungi ársins nemur samdráttur korta-
veltu á þennan kvarða tæpu prósentustigi.
Einföld aðhvarfsgreining gefur þá niður-
stöðu að einkaneysla á fjórðungnum kunni
að hafa dregist saman um 1-2% frá sama
tíma í fyrra. Yrði það þá í fyrsta sinn frá 2.
ársfjórðungi 2010 sem einkaneysla myndi
dragast saman milli ára,“ segir ennfremur.
Greiningin nefnir líka að í nýlegu viðtali
við formann Bílgreinasambandsins kom
fram að samdráttur varð í bílakaupum ein-
staklinga og fyrirtækja nú í mars frá sama
tíma í fyrra. Mikil aukning í bílakaupum
einstaklinga átti talsverðan þátt í 2,7% vexti
einkaneyslu í fyrra, en ekki er víst að sú
þróun haldi áfram á þessu ári.
Alls nam kortavelta erlendra ferðamanna
hér á landi í nýliðnum mars 5,2 milljörðum
króna. Á sama tíma í fyrra nam kortavelta
þeirra hér á landi 3,8 milljörðum króna, sem
þýðir að veltan jókst um rúm 37% að nafn-
virði á milli ára í mars. „Þessi þróun helst
í hendur við þá miklu fjölgun sem var á
erlendum ferðamönnum hér á landi á sama
tíma, en samkvæmt tölum frá Ferðamála-
stofu Íslands voru þeir 45% fleiri nú í mars
en í mars í fyrra,“ segir Greining Íslands-
banka.
Mun minni aukning var á eyðslu Íslend-
inga í útlöndum, en alls nam kortavelta
þeirra erlendis 5,8 milljörðum króna í mars
sem er aukning upp á tæp 3% að nafnvirði á
milli ára.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Fyrirlestraröð ragnbogabarna
Helstu sérfræðingar í Háskólabíói
Regnbogabörn bjóða fólki að taka þátt í einstökum
viðburði sem haldinn verður í Háskólabíói, sal
1, dagana 22., 23. og 24. apríl, þ.e. á mánudag,
þriðjudag og miðvikudag í næstu viku. „Við höfum
fengið til liðs við okkur helstu sérfræðinga úr
fræði- og leikmannasamfélaginu til að halda röð
áhugaverðra og stórskemmtilegra fyrirlestra um
málefni sem snerta okkur öll í daglegu lífi. Við
leitum að áhorfendum í sal til að vera viðstaddir
upptökurnar og njóta fyrirlestranna um leið,“
segir Stefán Karl Stefánsson leikari, stofnandi
Regnbogabarna og núverandi formaður félagsins.
Hann hefur áralanga reynslu af forvarnastarfi.
Fyrir nokkrum árum lagði hann af stað í fyrir-
lestraröð um landið og er enn á ferðinni. Hann
hefur haldið hundruð fyrirlestra, rætt við foreldra
og börn, komið að fjölda eineltismála og talað um
forvarnir í fjölmiðlum.
Í framhaldinu verða fyrirlestrarnir birtir á nýrri
heimasíðu Regnbogabarna í haust sem ber nafnið
www.fyrirlestrar.is. Heimasíðan mun ekki einung-
is innihalda fróðleik og forvarnir um einelti heldur
einnig um aðra málaflokka eins og kynferðisof-
beldi, ADHD, einhverfu, lesblindu, geðraskanir
og fleiri félagsleg mál er varða samfélagið allt.
Heimasíðan er ætluð börnum og fullorðnum og
verður öllum aðgengileg, þeim að kostnaðarlausu.
Stefán Karl Stefánsson, leikari, stofnandi Regnboga-
barna og núverandi formaður félagsins.
Kortavelta JaFnvel pásKarnir dugðu eKKi til
Samdráttur einkaneyslu á fyrsta ársfjórðungi
Myndarlegur vöxtur erlendrar kortaveltu heldur hins vegar áfram hér á landi
og helst í hendur við fjölgun erlendra ferðamanna.
Miðað við kortaveltu fyrstu þrjá mánuði þessa árs dróst einkaneysla saman miðað við árið í fyrra.Sam-
dráttur varð í bílakaupum einstaklinga og fyrirtækja nú í mars frá sama tíma í fyrra. Ljósmynd/Hari
10 fréttir Helgin 19.-21. apríl 2013