Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.04.2013, Side 48

Fréttatíminn - 19.04.2013, Side 48
Helgin 19.-21. apríl 201348 tíska Nýjar sumarvörur frá Masai auka afsláttur af útsöluslá Laugavegi 49 S. 552 2020 OPIÐ: MÁN - FÖST 10 - 18 LAUGARD. 10 - 14 SÉRLEGA MJÚKUR OG SUMARLEGUR teg SECRET GARDEN - í D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 9.550,- Laugavegi 178 Sími 551-3366 www.misty.is – Lifið heil Lægra verð í Lyfju ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 6 36 15 0 3/ 13 Gildir út apríl. Voltaren Gel 15% verðlækkun 50 gr. Nú: 1.767 kr. / 100 gr. Nú: 3.222 kr. J ules Kim lifir og hrærist í tísku heiminum og setur fingrafar sitt á verkefni tengd honum. Það þarf ekki langt spjall til að átta sig á listin er henni mikilvæg og hreinlega lífsnauð- synleg. Það er ekki hægt annað en hrífast með, enda sérstaklega heillandi, klár og sannfærandi kona hér á ferð. Viðskiptavinirnir eru ekki af verri endanum. Stjörnur á borð við Beyonce, Lindsey Lohan, Maria Carey, Shakira, Katy Perry, Eve, Kar- dashian systur og fleiri hafa sést skarta glitr- andi gulli og eðalsteinum úr hennar smiðju. Fréttatímanum lék forvitni á að kynnast þess- ari konu betur, en hún var hér á landi í tengslum við Reykjavík Fashion Festival. Margra þjóða tvíburi Jules er tvíburi frá Virginíu og hefur búið í New York síðustu árin. Faðir hennar er kóreskur og móðir hennar skosk/írsk. „Ég er alin upp hjá móður minni sem er arkitekt. Strax sem barn var ég umvafin sköpun, en þegar hin börnin voru á leikskólanum var ég oft tekin með uppí háskóla þar sem mamma var í meistaranámi í arkitektúr. Það má því segja að ég hafi alltaf haft form, hönnun og list í kringum mig. Þegar ég lít á verk mín í dag sé ég hluta af barnæskunni í þeim. Æskan hafði mikil áhrif og má greinilega sjá arkitektúr í mínum verkum,” segir Jules. Bijules skartið Jules hannar fyrst og fremst skartgripi en með nýrri nálgun. „Þetta er ekki vara sem þú sérð út í búð, langar í, og kaupir. Hún má ekki vera út um allt og um allan heim. Ég er að gera list.” Jules þykir mikilvægt að hver og einn upplifi vöruna á sinn hátt. „Eins og þegar myndlistar- maður málar verk er upplifunin misjöfn. Hver fær sína tilfinningu og upplifun. Hver skartgripur er merktur með númeri og er það mín ósk að kaupandanum finnist hann vera að fá listaverk með hugsjón.” Hún segist aðspurð ekki kippa sér of mikið upp við það þegar aðrir hönnuðir og vörumerki steli hugmyndum hennar. „Það nær enginn því sem Bijules merkið hefur, og verður aldrei eins. Afrit- arar hreyfa ekki við mér og ég læt þá ekki á mig fá. Heldur hugsa ég: haltu áfram! Framkvæmdu! og vertu samkvæm sjálfri þér!” Lifandi efniviður „Ég hef unnið með ýmisskonar steina og perlur og er alltaf að þróa mig í því. Í Bijules hef ég til dæmis verið að nota ferskvatnsperlur, ametyst, svarta demanta og svo mætti lengi telja.” Jules segist elska að kanna efnivið og hefur undanfarið verið að vinna með ópalsteina. „Ópalinn nálgast ég hjá félaga mínum sem sýslar með hráa steina. Ég vel úr hráum hnullungum og nota til- finninguna. Þú getur ekki séð hvað er innan í steininum en þetta er skemmtilegt ferli og andlegt. Í framhaldinu tek ég hamar og brýt steininn fyrst þá kemur í ljós hvernig ópalsteinarnir eru og hversu mikið af þeim. Ég er alltaf á höttunum eftir nýju hráefni, upplifunum og tjáningarformi.” Reykjavík Fashion Festival einstakt Jules starfar á tískuvikum um allan heim. „Það er öðruvísi á að koma á RFF, engin bakherbergi með stórum merkjum. Allir á RFF hafa sameiginlegt markmið sem þeir deila og flestir láta sér annt um markmið hvers annars. Á RFF sérðu og finnur eldmóðinn. Ferska loftið og orkan hér heilla mig mjög mikið.” Heiða Eiríksdóttir ritstjorn@frettatiminn.is  Viðtal Skartgripahönnuðurinn JuleS kim heimSótti ÍSland Ísland hyllir listamanninn í mér Jules Kim er listamaðurinn á bakvið Bijules, heimsþekkt vörumerki fyrir framúrstefnulega, fín- lega, óútreiknanlega og djarfa skartgripi. Hún ræddi við Fréttatímann þegar hún kom hingað á Reykjavík Fashion Festival fyrir skömmu og heillaðist af landi og þjóð. „Það hafa ekki allir þörf til að skapa nýja hluti, en ég verð að gera það til að lifa. Þetta er súrefnið mitt, ég brenn út ef ég er ekki að þróa og gera nýtt,” segir Jules Kim sem er listamaðurinn á bak við hið heimsþekkta skartgripamerki Bijules. Þú nnur okkur á Facebook undir “Fatabúðin” Skólavörðustíg 21a 101 Reykjavík S. 551 4050 Er útskrift eða brúðkaup framundan? Mikið úrval af gæða sængurverasettum við öll tækifæri.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.