Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.04.2013, Side 66

Fréttatíminn - 19.04.2013, Side 66
H alla Frímanns-dóttir, betur þekkt sem Halla himintungl, hefur löngum ferðast utan almannavega, í öllum skilningi orðanna. Með ástargaldur að vopni stefnir hún á að leiða saman nokkra einhleypa einstaklinga í íslenskri náttúru með það að mark- miði að kveikja ástarbál. „Ég fékk þessa hugmynd í Asíu þar sem einhleyp íslensk vinkona mín býr, Bryndís Chapman. Það er hægara sagt en gert fyrir hvítar konur þar að ná sér í mann. Hún kemur samt reglulega til Íslands og ég ákvað bara að finna handa henni mann,“ segir Halla, full eldmóðs. Hún skilur ekkert í því að Bryndís sé enn einhleyp enda vel menntuð, í góðri stöðu og nýorðinn kjörræðismaður Íslands í Laos. „Fyrir utan að vera ótrúlega falleg og skemmtileg,“ segir Halla. Þær vinkonurnar eru báðar mikið fyrir útivist og í framhaldinu ákvað Halla að útfæra hugmynd- ina sína enn frekar. Hún auglýsir nú eftir áhuga- sömu fólki, skemmtilegu og sjarmerandi, körlum og konum, helst á fimm- tugsaldri rétt eins og þær Bryndís. „Hún er gagnkyn- hneigð en eftir því sem ég veit er ég nokkurn veginn „gay“. Það eru því allir velkomnir nema sjálfkyn- hneigðir. Við nennum því ekki,“ segir Halla glettin. Áhugasamir þurfa að senda umsókn enda mest sjö manns sem komast í ferðina. Skilyrði er að vera í góðu líkamlegu formi og hafa gaman af útivist. „Svo þarf fólk bara að segja frá sjálfu sér og áhugamálum. Út frá þessu öllu vel ég saman hóp sem ég held að verði góður saman.“ Og Halla lumar á leyndarmáli. „Síðan er ég galdrakona þannig að fyrir ferðina get ég verið búin að kíkja í stjörnurnar og sjá hvern- ig fólk passar hvert við annað. Ekki að ég ákveði neitt fyrirfram. Við förum líka í jóga og hugleiðum, stoppum á gönguferðinni og tengjum okkur við nátt- úruna. Þeir sem vilja geta síðan fengið ástargaldur,“ segir Halla sem lengi hefur verið í sambandi við æðri máttarvöld. Gengið verður frá Land- mannalaugum og að Skógum dagana 5. til 9. júlí, en þá verður Bryn- dís komin til landsins. Göngufólk kemur með sinn eigin mat og búnað og einhleypir í ástarleit geta sent umsókn á netfangið hallahimintungl@gmail. com. Halla stefnir jafnvel á að hópurinn fari saman í styttri gönguferðir áður til að hrista sig saman. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is  Útivist Ástarleit Á fjöllum Einhleypingar í tilhleypingum Stjörnuspekingurinn Halla himintungl segir vita vonlaust að finna lífsförunaut á djamminu. Þess vegna skipuleggur hún nú yfirnáttúrulega gönguferð frá Landmannalaugum í sumar sem aðeins er ætluð einhleypum. Ef vel tekst til hefur ástarloginn kviknað áður en gönguhópurinn kemur að Skógum. Bryndís Chapman, vinkona Höllu, leitar að útivistarmanni með langtímasam- band í huga. Halla himintungl ætlar að rýna í stjörnurnar fyrir gönguna og athuga hvernig fólk passar saman. Ljósmynd/Hari Það eru allir velkomnir nema sjálfkynhneigðir. Kitlaðu bragðlaukana með þriggja rétta matseðli og eigðu kósýkvöld að hætti Nauthóls. KÓSÝ Á KVÖLDIN www.nautholl.is www.facebook.com/nautholl nautholl@nautholl.is S. 599 6660 FYRSTA SVANSVOTTAÐA VEITINGAHÚSIÐ Á ÍSLANDI Margrét Tryggvadóttir Saman getum við farið í öflugar aðgerðir í þágu heimilana Vígalegur Clarkson í jakka frá Eggerti Hróður Eggerts Jóhanns- sonar feldskera hefur borist víða um lönd og það þykir ekki ónýtt að spóka sig í flíkum frá honum. Verslun Eggerts á Skólavörðustígnum er því eðlilega oft viðkomu- staður frægðarfólks sem sækir landið heim og ljóst að ökuþórinn og sprelligosinn Jeremy Clarkson úr bresku bílaþáttunum Top Gear hefur fundið sér flík við hæfi hjá Eggerti. Meðfylgjandi mynd sýnir Clarkson ansi hreint brattan í vígalegum jakka frá Eggerti en menn sem í skrúða sem þessum láta sér varla margt fyrir brjósti brenna. Sjálfur vill Eggert ekkert tjá sig um við- skiptavini sína enda ekki þekktur fyrir að flíka því hverjir kaupi af honum fatnað en sagan segir að þríeykið í Top Gear hafi allt fundið sér forláta jakka hjá Eggerti sem vill ekkert láta hafa eftir sér. Myndin af Clarkson er góð. Um það þarf ekki að deila. Jeremy Clarkson er greinilega smekk- maður á föt eins og bíla og skartar hér forláta jakka úr smiðju Eggerts feldskera. Rakel Björk hefur æft söng og leiklist síðan í æsku og lætur nú til sín taka á báðum sviðum, í Fölskum fugli og Söngkeppni framhaldsskólanna. Þetta var mikið æv- intýri. Mikil og góð reynsla og rosalega skemmtilegt.  rakel Björk frumsýning og söngvakeppni Lagviss söngfugl á fleygiferð Það er skammt stórra högga á milli hjá MR-ingnum Rakel Björk Björns- dóttur þessa dagana. Hún leikur Möggu í kvikmyndinni Falskur fugl sem var frumsýnd á fimmtudags- kvöld og í kvöld, föstudagskvöld, stígur hún á svið fyrir Menntaskól- ann í Reykjavík í Söngkeppni fram- haldsskólanna. „Ég er eiginlega bæði stressuð og spennt og auðvitað með smá fiðring í maganum og líður bara vel með þetta,“ sagði Rakel þegar Fréttatím- inn náði tali af henni í frímínútum á frumsýningardeginum. „Þetta var mikið ævintýri. Mikil og góð reynsla og rosalega skemmti- legt,“ segir hún um kvikmyndaleik- inn en Falskur fugl er fyrsta kvik- myndin sem hún leikur í. Rakel var valin til þess að keppa fyrir hönd MR að undangenginni forkeppni í skólanum og hún ætlar að syngja lagið Songbird, sem Eva heitin Cassidy söng á sínum tíma. Tólf bestu atriði keppninnar í kvöld halda síðan áfram í úrslit sem verður sjónvarpað beint á RÚV á laugardagskvöld og hún setur mark- ið að sjálfsögðu hátt. Rakel er í fjórða bekk í MR og hefur ákveðið að feta náttúrufræði- brautina við skólann. Hún verður átján ára í október en hefur æft söng og leiklist frá því hún var níu ára og hefur að sjálfsögðu tekið virkan þátt í starfi leikfélagsins Herranótt þau tvö ár sem hún hefur verið í MR. „Ég lék eitt af aðalhlutverkunum í Herranótt í ár í Doktor Fástus í myrku ljósi eftir Gertrude Stein,“ segir Rakel sem framleiðendur Falsks fugls höfðu heyrt af áður en hún fór í prufuna sem skilaði henni hlutverkinu. -þþ 66 dægurmál Helgin 19.-21. apríl 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.