Fréttatíminn - 19.04.2013, Page 72
4 brúðkaup Helgin 19.-21. apríl 2013
Frábær brúðargjöf
Mikið úrval af gjafavöru
fyrir dömur og herra
· Töskur
· Hanskar
· Seðlaveski
· Ferðatöskur
· Tölvutöskur
· Belti
· Skart og skartgripaskrín
Góðar vörur
Sanngjarnt verð
Persónuleg þjónusta
®
Nú skiptir hvert kíló máli
Fisléttar ferðatöskur
Harðar og mjúkar
Sjá ítarlegar upplýsingar á www.drangey.is
8.995,-
St. 36 - 42
Einnig til í svörtu
og grænu
8.995,-
St. 36 - 42
Einnig til í svörtu
og grænu
12.995,-
St. 36 - 41
Einnig til í svörtu
12.995,-
St. 36 - 41
Einnig til í svörtu
12.995,-
St. 36 - 42
Einnig til í svörtu
13.995,-
St. 36 - 41
Einnig til í svörtu
Fjarðagötu 13 • Í Firðinum Hafnarfirði • S. 555 4420
Gerum hús að heimili
Brúðar
gjafir
við allra
hæfi
tripod
standlampi
37.000 kr.
tiL Í
tVEiMUr
LitUM
Lampaskermar
í miklu úrvali.
Skermur er ekki
innifalinn í verði.
TEKK COMPANY og HABITAT
Kauptúni | Sími 564 4400
www.habitat.is | Vefverslun á www.tekk.is
Opið mán.–lau. kl. 11-18 og sun. kl. 13-18
H jálmar segir fólk kjósa að ganga í hjónaband því það vilji staðfesta góðan veru-
leika. „Fólk vill segja já við hvort
annað við altarið. Fólk vill líka stað-
festa fyrir fjölskyldu og vinasam-
félagi að þetta sé ekki bara samn-
ingur um hjónaband heldur lífsstíll.“
Hjálmari þykir ósköp ljúft að ganga
inn í það andrúmsloft að taka þátt
í því með brúðhjónum að skapa
fallega athöfn þannig að dagurinn
verði eftirminnilegur og kalli fram
hlýjar tilfinningar.
Brúðkaupsdagurinn
er mikilvægur
Í tengslum við jarðarfarir og gerð
æviágrips er brúðkaupsdagsins nær
alltaf getið. Við undirbúning jarðar-
fara spyr Hjálmar eftirlifandi maka
oft hvaða minningar viðkomandi
eigi tengdar sínum brúðkaupsdegi.
Bæði við undirbúning brúðkaupa og
önnur tækifæri spyr Hjálmar fólk
oft hvað það hafi verið í fari makans
sem hafi heillað í fyrstu. „Margir
muna það ljómandi vel,“ segir Hjálm-
ar glaðlega og bætir við að honum
finnist ekkert fallegra en ung ást-
fangin hjón, nema gömul ástfangin
hjón sem saman hafa farið langa leið
þar sem skin og skúrir hafa skipst á.
„Brúðkaupsdagurinn er stór dagur
og það er ekki kastað til höndum.
Ég er alveg viss um það þó stundum
sé talað um að þetta sé bara glamúr
þá er afar sjaldgæft að manni finn-
ist ekki full heilindi,“ segir Hjálmar.
Svarið við altarið
Að sögn Hjálmars fyllast brúðhjón
stundum kvíða yfir því að skipu-
leggja svo mikilvægan dag. „Ég
segi nú oft við brúðhjón að ef þau
vita hvað þau ætla að segja þegar ég
spyr þau við altarið, þá sé allt í góðu
Hjálmar jónsson glaðværð einkennir Hjónavígslur
Undirbúningur með
brúðhjónum ljúft starf
„Brúðkaup er stutt athöfn með langtímagildi,“ segir Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur sem blæs á
þær ráðleggingar að fólk eigi aldrei að fara ósátt að sofa. Þvert á móti telur Hjálmar gott fyrir fólk að
sofa á málunum og ræða þau eftir að hvíld er náð.
lagi. Allt annað eru umbúðir og þær
ber að hafa bara eins og þær koma
fyrir. Það getur ekkert komið upp á
ef brúðhjónin vita hvað þau ætla að
segja og það vita þau alltaf,“ segir
Hjálmar.
Oft eiga brúðhjón börn og því tel-
ur Hjálmar eðlilegt að þau taki þátt
í athöfninni, til dæmis sem hringa-
berar. „Börnunum er málið skylt og
því fá þau stundum að vera nokk-
urs konar aðstoðarprestar þegar
að hringunum kemur. Mér finnst
það svo fallegt því þetta er líka fjöl-
skylduathöfn.“
Á árum áður starfaði Hjálmar sem
prestur á Sauðárkróki þar sem allir
þekkja alla. Eftir að hann hóf störf í
Reykjavík tók hann upp þá reglu að
biðja brúðhjón alltaf að svara nokkr-
um spurningum eins og til dæmis
hvenær fólk hafi áttað sig á því að
það vildi búa saman og hvenær það
hafi vitað að það væri ástfangið.
Með þessu gerir Hjálmar starfið sitt
persónulegra og kemur í veg fyrir að
honum finnist hann vera að vinna
færibandavinnu þegar annasamir
tímar eru í kirkjunni.
Mismunandi hjónavígslur
„Fyrst og fremst undirbýr fólk hjóna-
vígsluna eins og það sé að undirbúa
sína lífshamingju og það undirbýr
vel,“ segir Hjálmar og bætir við að
stundum sé það þannig að fáir séu
viðstaddir hjónavígslur. „Fólk kallar
saman nánustu fjölskyldu eða nán-
asta vinahóp en stundum eru þetta
stærri athafnir. Helgin, virðingin
og glaðværðin fer ekkert endilega
eftir fjöldanum. Stundum eru bara
tíu manns viðstaddir og það er ofsa
gott líka. Það hefur ekkert um gildi
hjónavígslunnar að segja hvort
margir eða fáir eru viðstaddir,“ segir
Hjálmar.
Umburðarlyndi er mikilvægt
Að sögn Hjálmars er mikilvægt í
hjónabandinu að temja sér umburð-
arlyndi og forðast pirring. „Það þarf
oft afskaplega lítið til. Við erum svo
misjafnlega fyrirkölluð frá degi til
dags. Þannig er nú bara lífið,“ segir
Hjálmar inntur eftir ráðleggingum
fyrir hjón. Hjálmar segist algerlega
ósammála þeirri ráðleggingu að fólk
fari aldrei ósátt að sofa. Þvert á móti
eigi fólk að sofa á málunum og ræða
þau þegar hvíld er náð. „Fólk ætti
ekki að eyða nóttinni í rifrildi held-
ur fara að sofa og sammælast um
að ræða málin næsta dag.„ Hjálm-
ar segir hjónabandið viðkvæmasta
og nánasta samfélag fólks og þess
vegna sé svo gott til þess að hugsa
að svo margir finni í því hamingjuna
og rækti hana.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Hjálmar Jónssson dómkirkjuprestur segir það ljúft að ganga inn í það andrúmsloft
að skapa fallega athöfn með brúðhjónunum. Ljósmynd/Hari