Fréttatíminn - 19.04.2013, Blaðsíða 74
U ndirbúningurinn fyrir brúðkaupið hefst löngu fyrir brúðkaupsdaginn. Hvað húðina varðar er gott að byrja mánuði áður. Brúður
þarf að huga að fleiri atriðum en bara förðun. Líkam-
inn þarf líka athygli.
Dauðar húðfrumur myndast á líkamanum líkt og
í andliti og því nauðsynlegt að huga vel að því. Góð
sturtusápa, eins og Lait De Douche frá Biotherm,
hreinsar húðina vel án þess að gera hana þurra. Lait
De Gommage kornaskrúbburinn frá Biotherm nær
af dauðum húðfrumum og undirbýr húðina fyrir það
sem koma skal. Til að mýkja húðina og ná fram fal-
legum tóni er húðmjólk borin á líkamann eins og Lait
Corporel frá Biotherm. Margar konur vilja vinna á
appelsínuhúð um leið og þær eru að styrkja sig. Þá er
Celluli Eraser kremið frá Biotherm hin mesta snilld.
Það er vatnslosandi, styrkir húðina, vinnur á appels-
ínuhúð og fyrirbyggir að hún myndist. Sjáanlegur
árangur er eftir aðeins 2 vikur.
Húðin er stöðugt að endurnýja sig og því er reglu-
leg hreinsun húðar nauðsynleg. Mikilvægt er að velja
hreinsi- og andlitsvatn við hæfi. Húðin getur verið
mjög mismunandi, allt frá því að vera mjög þurr með
yfirborðsþurrk og mikinn raka, yfir í að vera feit og
glansandi. Flestir eru með normal húð sem skiptist
í að vera normal/þurr eða normal/feit. Margar kon-
ur með normal húð eru með blandaða/feita húð á „T“
svæði. („T“ svæðið er enni, nef og haka og myndar
einskonar T yfir andlitið.)
Nauðsynlegt að hreinsa andlitið vel kvölds og
morgna. Bæði óhreinindi og farði getur haft áhrif á að
bólur myndist. Á hverju kvöldi þarf að hreinsa andlit
með Galatéis Douceur hreinsimjólk og til að full-
komna hreinsunina er Tonique Éclat sett í bómullar-
skífu og strokið yfir andlit og háls. Að auki þarf ýtar-
legri hreinsun 1-3 sinnum í viku með kornaskrúbb til
að ná dauðum húðfrumum af yfirborði húðarinnar.
Kornaskrúbburinn Exfoliance Clarté frá Lancôme er
góður til að hreinsa af dauðar húðfrumur. Hann inni-
heldur tvær týpur af kornum. Annars vegar lítil blá
korn sem ná dauðum húðfrumum og hins vegar stór
hvít korn með enzímum í sem flýta fyrir losun dauðra
húðfruma. Þær sem eru viðkvæmar í húðinni, t.d.
með háræðaslit í kinnum ættu að velja kornaskrúbb
sem er ekki með neinum kornum eins og YSL Top
Secret Gommage Action Exfoliator. Hann inniheldur
enzím sem losar um dauðar húðfrumur og djúphreins-
ar húðina. Góð djúphreinsun á húðinni gerir það að
verkum að rakamaski, eins og Hydra Intense frá Lan-
côme, nær að fara dýpra niður í húðlögin og mettar
húðina með raka og næringu.
Kvölds og morgna þarf að bera á húðina augnkrem,
dag- og næturkrem. Génifique Youth Activating
kremlínan örvar framleiðslu á próteinum í húðinni og
gerir hana þéttari, stinnari, geislandi, dúnamjúka og
fallega. Génifique línan inniheldur Youth Activator
serum sem endurvekur starfsemi æsku genanna.
Húðin verður sjáanlega yngri á aðeins 7 dögum. Gé-
nifique serumið notast kvölds/morgna undir krem.
Förðunin á brúðkaupsdaginn þarf að endast allan
daginn og fram á nótt. Top Secret Flash Radiance
undirfarðinn frá YSL er fullkominn undir farða.
Undirfarðinn gefur samstundis ljóma í húðina, dregur
úr opnum húðholum, vinnur á þrota og gerir húðina
tilbúna fyrir farðann. Teint Idole Ultra 24H farðinn
frá Lancôme endist í 24 klukkustundir á húðinni, er
olíulaus, smitfrír, þekur vel og gefur jafna og fallega
áferð. Best er að bera farðann á með förðunarbursta.
Þannig næst eðlileg, þunn en samt þekjandi áferð.
Þurfi að hylja t.d. háræðaslit, bólur eða roða þá er
Effacernes hyljarinn frá Lancôme góður. Hann þekur
vel án þess að skilja eftir þykka áferð.
Ef brúðurin þarf á smá upplyftingu að halda þá
gerir Prodigy Liquid Light penninn kraftaverk. Liquid
Light gefur ljóma, birtu, vinnur á fínum línum og er
borin á undir augun á húðina yfir farðann. Einnig má
setja Prodigy Liquid Light í kringum varir og í línur
til að gefa ferskara útlit.
Svartur augnblýantur Feline Blacks frá Helenu Rub-
instein er notaður til að móta augnlínuna. Því næst er
augnförðunin. Mildir fallegir litir eru oftast notaðir
til að fanga fegurð brúðarinnar. Hypnôse Star eyes
augnskuggapalletta númer ST1 frá Lancôme er með
5 mildum brúntóna, fallegum og björtum litum. Með
þessum litum er hægt að móta augun og gera fallega
skyggingu í glóbuslínu. Til að augun verði fullkomin
er Lash Queen Feline Blacks svartur maskarinn
borinn á augnhárin. Nauðsynlegt er að hann sé vatns-
heldur. Eye liner er mikið í tísku þessa dagana og því
um að gera að setja eyeliner línu upp við maskarann
og örlítið upp við ytri augnkrók. Til þess er Eyeliner
Schoking Effet Faux Cils frá YSL góður því með
honum næst mjó og falleg lína.
Augabrúnir þarf að móta og skerpa. Til þess er
Eyebrow powder-gel númer 02 með bursta frábær í
augabrúnirnar.
Kinnalitur setur punktinn yfir i-ið. Það þarf ekki
endilega að nota mikið, bara rétt til að fá ljóma í kinn-
arnar. Créme De Blush kinnalitur númer 09 frá YSL
er mildur bleiktóna litur sem hentar brúðarförðun
fullkomnlega.
Kyssilegar varir nást með Volupté Sheer Candy
varalitnum númer 12 frá YSL. Varaliturinn er mildur,
bjartur bleiktóna litur sem gefur glans og gljáa á var-
irnar. Til að varaliturinn endist betur á er Contour Pro
varablýantur frá Lancôme notaður undir varalitinn til
að móta varirnar. Hægt er að setja varablýantinn yfir
allt varasvæðið til að varaliturinn endist ennþá betur.
Hendur þurfa að vera vel snyrtar til að hringurinn
njóti sín sem best. Biomains handáburðurinn frá
Biotherm gefur góða næringu bæði fyrir hendur og
naglabönd.
Gott er að snyrta og lakka neglur t.d. 2 dögum fyrir
brúðkaupsdaginn. Vernis in LOVE naglalakkið frá
Lancôme númer 301 er mjög mildur bleiktóna nátt-
úrulegur litur sem dregur fram fallegan gljáa á nögl-
unum.
6 brúðkaup Helgin 19.-21. apríl 2013
BrúðkaUpsdagUrinn UndirBúningUrinn tekUr sinn tíma
Hvaða snyrtivörur þarf til
að ná fullkomnu útliti?
Síðan 1844 hefur Kahla framleitt vandað postulín
sem fer jafn vel í hendi og hillu. Kahla hefur unnið
til fjölda verðlauna og er alltaf við hæfi hvort sem
það er í matarboði með öllum vinahópnum eða yfir
sunnudagskaffinu með ömmu.
laugavegi 47, opið mán.- fös. 10-18, lau. 11-17 www.kokka.is kokka@kokka.is
Arfur