Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.04.2013, Qupperneq 76

Fréttatíminn - 19.04.2013, Qupperneq 76
8 brúðkaup Helgin 19.-21. apríl 2013 Þ egar Kristín og Eiríkur kynntust fyrst æfðu þau bæði handbolta með FH. Eitt kvöldið var Kristín í Kaplakrika að fagna titli með liðsfélög- um sínum og slóst Eiríkur í hópinn og eftir það kvöld hafa þau verið par. Eftir árs samband trúlofuðu þau sig þó gifting hafi ekki verið á stefnuskránni strax. Það var svo á aðfangadagsmorgun í fyrra að Eiríkur setti upp ratleik sem hófst í skó úti í glugga og endaði við jólatréð þar sem hann bað Kristínar. Eirík hafði langað að biðja Kristínar fyrr um haustið en ákvað að bíða með bónorðið því hún var að læra fyrir próf á þeim tíma. Eiríkur þekkir sína konu og vissi að hún myndi strax fara á fullt að skipuleggja brúðkaupsdaginn. Undirbúningstíminn skemmtilegur Strax á aðfangadag hófust Kristín og Ei- ríkur handa við undirbúning brúðkaups- ins. Þau voru sammála um að það skyldi haldið að sumri til og lögðu inn pöntun hjá prestinum sínum á milli jóla og nýárs. „Ég hafði alltaf ímyndað mér að þegar að brúðkaupinu kæmi myndum við hafa heilt ár til að undirbúa en við fórum á fullt eftir áramót að skipuleggja stóra daginn,“ segir Kristín sem hefur gaman af undir- búningnum en viðurkennir að hann geti líka verið svolítið stressandi. Kristín og Eiríkur spá og spekúlera saman í öllu því sem viðkemur brúð- kaupsdeginum. „Ég myndi segja að þetta skiptist nokkuð jafnt á milli okk- ar. Ég skoða reyndar skraut og svoleiðis meira en Eiríkur en sýni honum alltaf þegar ég finn eitthvað sniðugt á netinu,“ segir Kristín. „Mér finnst mjög gaman að finna eitthvað á netinu sem hún biður mig um,“ segir Eiríkur og bætir við að hann hafi mjög gaman að undirbúningi brúðkaupsins. Stóri dagurinn Eiríkur og Kristín kynntust fyrst í Kapla- krika í Hafnarfirði fyrir sjö árum og hafa verið saman síðan. Því er viðeigandi að veislan verði þar. Giftingarathöfnin fer fram í Fríkirkjunni í Hafnarfirði þann 13. júlí og mun séra Einar Eyjólfsson gefa þau saman. „Það kom aldrei neinn annar prestur til greina en séra Einar. Hann skírði mig og fermdi og skírði dóttur okkar og fermdi Eirík,“ segir Kristín. Athöfnin verður síðdegis og er stefn- an að halda líflega veislu langt fram á nótt. Tveggja ára dóttir Eiríks og Krist- ínar mun taka þátt í athöfninni og ganga inn kirkjugólfið með frænkum sínum og frændum. Undirbúningurinn er langt á veg kominn og hafa þau þegar útvegað sér föt fyrir stóra daginn. Eiríkur keypti sér jakkaföt en Kristín leigir kjól frá kjólaleigunni Tvö hjörtu. Valið á brúðar- kjólnum var nokkuð strembið enda margt í boði. Kristín brá því á það ráð að taka myndir af sér í nokkrum kjólum og skoða þær heima í rólegheitum. „Það var gott að geta skoðað myndirnar heima og sjá hvaða kjóll var bestur,“ segir Kristín. „Við þekkjum kokkinn sem eldar mat- inn í veislunni. Einu sinni vorum við í fermingarveislu og fengum alveg rosa- lega góðan mat. Þá fór ég að grennslast fyrir um það hver kokkurinn væri og þá kom í ljós að ég þekkti hann. Það er frábært að hann geti séð um matinn í veislunni okkar,“ segir Eiríkur. Parið var sammála um að hafa lambakjöt og kal- kúnabringu í aðalrétt en á enn eftir að ákveða hvernig brúðkaupstertan verður. ,,Kakan er smá hausverkur,“ viðurkennir Eiríkur. Ættingjar frá útlöndum Þar sem Kristín á marga ættingja sem búa í Noregi og Svíþjóð létu þau alla brúð- kaupsgestina vita um dagsetningu brúð- kaupsins strax í byrjun ársins. Helgina eftir brúðkaupið verður svo haldið ættar- mót á Íslandi svo gestirnir frá útlöndum geta slegið tvær flugur í einu höggi í ferð sinni til Íslands næsta sumar. Hjónabandið mikilvægt fjölskyld- unni Eiríki og Kristínu finnst mikilvægt að þau gifti sig því nú eiga þau dóttur og eru orðin fjölskylda. „Við eigum tveggja ára dóttur og okkur finnst þetta mikil- vægt hennar vegna. Við förum reyndar ekki í kirkju á hverjum sunnudegi en mér finnst samt alltaf gott að vita af kirkjunni okkar,“ segir Kristín og Eiríkur bætir við: „Formlega erum við fjölskyldan þá orðin eining.“ Kristín og Eiríkur eru einnig sammála um að gott sé að vera gift upp á réttindi og slíkt og þar af leiðandi öryggi fjölskyldunnar. Ekki skemmi svo fyrir að hafa tilefni til að halda stóra veislu. Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is  Kynntust í KaplaKriKa fyrir sjö árum og halda brúðKaupsveisluna Þar Ratleikur og bónorð á aðfangadagsmorgun Kristín Linnet Einarsdóttir og Eiríkur Jónsson ætla að ganga í hjónaband í sumar og hafa staðið í ströngu við undirbúning það sem af er árinu. ,,Mér finnst mjög gaman að skipuleggja brúðkaupið,“ segir Eiríkur sem er jafn liðtækur og Kristín við undirbúninginn. Eiríkur Jónsson og Kristín Linnet Einarsdóttir ætla að gifta sig í Fríkirkjunni í Hafnarfirði 13. júlí og hlakka til að fagna brúðkaupsdeginum með vinum og ættingjum. Ljósmynd/Hari  blómahúsið hlín íslensK blóm Blómaverkstæði í sveitinni Í nágrenni Reykjalundar að Sveinsstöðum í Mosfellsbæ reka hjónin Hlín Eyrún Sveinsdóttir og Sigþór Hólm Þórarinsson Blómahúsið Hlín. Hjónin rækta Maríu- stakk sem vinsæll er í blómvendi og nota nær undan- tekningarlaust íslensk blóm. Blómahúsið Hlín fagnar 20 ára afmæli sínu á þessu ári en það var opnað árið 1993 og var þá í gamla Kaupfélagshúsinu Mosfellsbæ. „Maríustakkurinn finnst mér yndislegur og ég rækta hann sjálf og nota mikið. Sömuleiðis Baldursbrá og Hansarós sem eru svo fallegar. Ég fæ nú líka að klippa annars staðar, blómin leynast víða,“ segir Hlín sem not- ast mikið við blóm sem vaxa úti í náttúrunni í nágrenni blómabúð- arinnar. Hjá Hlín Blómahúsi fást brúðarvendir sem eingöngu eru gerðir úr stráum og laufblöðum og eru þeir í miklu uppáhaldi hjá eigandanum. Að sögn Hlínar eru rósavend- ir alltaf vinsælastir hjá brúðum. „Mér finnst kúluformið á rósa- vöndum alltaf fallegast, alveg sama hvort þeir eru unnir úr rækt- uðum íslenskum rósum eða villt- um,“ segir Hlín og bætir við að oft sé litum blandað saman, svo sem bleikum og kremuðum. Nú þegar eru tvær helgar næsta sumar full bókaðar hjá Hlín Blómahúsi svo Hlín segir gott að hafa góðan fyrirvara á þegar brúð- arvöndurinn er valinn. „Stundum pantar fólk með árs fyrirvara en algengast er nú að panta mánuði fyrir brúðkaup,“ segir Hlín hlæj- andi. Hjá Hlín Blómahúsi eru aðeins notuð íslensk blóm þó að í einstaka tilfellum séu blóm flutt inn til landsins. Nánari upplýsingar má finna á Facebook síðunni Hlín Blómahús. Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is Hlín Eyrún Sveinsdóttir notar villt blóm í brúðarvendi. Brúðarvöndur, höfuðkrans og barmblóm úr maríu- stakk og baldursbrá. Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 Sendum frítt www.lindesign.is Ofið úr Pima bómull sem er einstök að gæðum Yfir 40 tegundir íslenskra rúmfata til brúðargjafa Einstakar brúðargjar Fyrir ykkar mýkstu stundir úr vefverslun Íslensk hönnun
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.