Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.12.2012, Side 8

Fréttatíminn - 21.12.2012, Side 8
Samskip með geðveikasta jólalagið Skref 1. Settu kortið í posann. Örgjörvinn snýr upp og fram. Skref 2. Sláðu inn pinnið og staðfestu við skipt in með því að ýta á græna takkann. Bíddu meðan heimild er sótt. Skref 3. Taktu kortið úr posanum. VerTu klár með korTið og pinnið – ÞAð FlÝTir FYrir AFgreiðSlu. Snúðu kortinu rétt. Örgjörvinn á kortinu snýr upp og fram. Örgjörvinn er lítill gylltur eða silfraður kassi á framhlið. pinnið á minnið Með verkefninu Pinnið á minnið er notkun greiðslukorta með örgjörva innleidd á Íslandi. Íslensk fyrirtæki og korthafar uppfylla þannig alþjóðlegar öryggiskröfur. Upplýsingarnar í þessari auglýsingu eru ætlaðar til fróðleiks og eru ekki tæmandi. Í þeim felst engin ábyrgð eða skuldbinding varðandi móttöku greiðslukorta eða miðlun á rafrænum kortafærslum. www.pinnid.is Þ úsundir fjölskyldna á suð-vesturhorni landsins sækja aðstoð til Fjölskylduhjálpar- innar fyrir jólin, að sögn Ásgerðar Jónu Flosadóttur formanns. „Við erum mjög þakklát fyrir hve fyrir- tæki og einstaklingar hafa brugðist vel við og aðstoðað okkur við að að- stoða fólk fyrir jólin sem minna má sín,“ segir Ásgerður. Bókaútgáfan Unga ástin mín gaf til Fjölskylduhjálpar Íslands tvö þúsund barnabækur fyrir börn á aldrinum 0-11 ára. „Unga ástin mín vill með þessu gjarnan leggja sitt af mörkum til að gleðja þau börn og þær fjölskyldur sem minna mega sín um hátíðarnar,“ segir Sara Hlín Hálfdanardóttir, framkvæmdastjóri Ungu ástarinnar minnar. „Það má aldrei gleymast að það er fólk sem þarf á hjálp að halda nú sem fyrr og örugglega mun fleiri en maður áttar sig á og við sem getum veitt aðstoð eigum að gera það. Og börnin eru þar númer eitt. Ef við getum glatt tvö þúsund börn með þessari gjöf þá gleðjumst við hjá Ungu ástinni minni líka,“ segir Sara Hlín. „Meðal þeirra sem lagt hafa fjöl- skylduhjálpinni lið fyrir jólin eru Gylfi Sigurðsson, knattspyrnu- maður hjá Tottenham, sem studdi starfið um hálfa milljón,“ segir Ás- gerður. „Svo ég nefni nokkur fyrir- tæki þá afhenti fjármálafyrirtækið Sparnaður okkur 2,4 milljónir og Orkan hefur gefið krónu af hverjum seldum bensínlítra. Þá gaf Krónan inneign í formi innkaupakorta sem nemur 1 milljón króna og Samkaup sem nemur hálfri milljón. Síminn gaf inneignarkort fyrir 1,5 milljón- ir en að auki hefur fjöldi jólagjafa borist úr ýmsum áttum, útivistar- fatnaður, bíómiðar, leikhúsmiðar, tölvuleikir, leikföng, heimaprjón- aðir ullarsokkar og vettlingar og margt fleira. Á síðasta ári voru fimm þúsund fjölskyldur á skrá hjá Fjölskyldu- hjálpinni, að sögn Ásgerðar, og gefnar voru um 26 þúsund matar- gjafir og kom því hver fjölskylda að meðaltali fimm sinnum yfir árið. Hver matargjöf er frá tveimur inn- kaupapokum upp í sex, eftir fjöl- skyldustærð. Matargjöfin fyrir jólin er óvenju vegleg, að sögn Ásgerðar. Í henni er: Svínabógur, kartöflur, ferskt grænmeti (gulrætur og salat), appelsín, kók og malt, mjólk, skyr, jógúrt, rjómi, smjör, smjörlíki, sýrður rjómi, ostur, hveiti, sykur, egg, grænar baunir, rauðkál, maís, sælgæti, síld, salernispappír, brauð- meti, fiskibollur, kaffi og jólagjafir eftir þörfum. Að auki er hægt að fá jólaskraut og nammipoka fyrir jólasveina til að láta í skóinn og ýmislegt annað sem Fjölskylduhjálpinni hefur áskotn- ast, svo sem 100 bayonneskinkur sem Perlan gaf, skartgripir og fleira. Einnig hafa þrír hárgreiðslu- meistarar boðið upp á ókeypis klippingar fyrir skjólstæðinga Fjöl- skylduhjálparinnar. Síðasta úthlutun fyrir jól fer fram í dag, föstudag, en að sögn Ásgerð- ar mun hún þó aðstoða fólk eftir því sem þörf er á eftir það og fram að aðfangadag og síðan milli jóla og nýárs. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Starfsfólk 15 fyrirtækja tók áskorun Geðhjálpar fyrir þessi jól um að syngja jólalag og búa til myndband því til stuðnings. Landsmönnum gafst svo kostur á að kjósa jólalagið sem þeim þótti skara fram úr og heita á það fé. Lang flestir völdu lag Samskipa en Arion banki hafnaði í öðru sæti og Bláa lónið í því þriðja. Sam- skip söfnuðu einni milljón og hundrað tuttugu og sjö þúsund krónum í áheitum mest allra. Lagið var einnig valið besta lagið af átta manna dómnefnd. Allir þeir fjármunir sem safnast í jólalagakeppninni verða nýttir til að hanna aðgerðaráætlanir á vinnustöðum. En samkvæmt aðstandendum Geðhjálpar er mikilvægt fyrir fyrirtæki að eiga slíkt, komi upp andleg veikindi hjá starfsfólki.  LandLæknir kynjamunur á aLgengi sLysa Drengir í meiri slysahættu k arlar lenda frekar í slysum en kon-ur og drengir frekar en stúlkur, samkvæmt nýjum upplýsingum frá Landlæknisembættinu. Árið 2011 voru 37.510 slys skráð og algengust voru slys í heimahúsum og frítíma sem voru nálægt helmingi allra slysa. Umferðarslys voru næst algengust, því næst vinnuslys og loks íþróttaslys. Talsverður kynjamunur er á algengi slysa og eru karlmenn líklegri til að verða fyrir öllum tegundum slysa að undan- skildum umferðarslysum. Þrefalt fleiri karlmenn en konur slasast við vinnu og tvöfalt fleiri karlar en konur slasast í íþróttum. Slysahætta á barnsaldri er talsverð og einna mest á unglingsárum. Drengir eru líklegri en stúlkur til að slasast á fyrstu fjórum æviárunum og einnig eru unglingsdrengir í meiri slysahættu en unglingsstúlkur. Fram til sjötugs eru karlmenn líklegri til að slasast en konur. Síðan víxlast kynja- munurinn og á aldrinum 70-90 ára eru slys algengari meðal kvenna en karla. Eft- ir nírætt er lítill kynjamunur á slysatíðni. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Drengir slasast oftar en stúlkur. Slysatíðni 15–19 ára drengja er 174 af hverjum 1.000 en 133 af hverjum 1.000 hjá stúlkum í sama aldurshópi. Ljósmynd/Getty  FjöLskyLduhjáLpin Fimm Þúsund FjöLskyLdur Fá aðstoð árLega Gaf Fjölskylduhjálp- inni tvö þúsund bækur Um fimm þúsund fjöl- skyldur njóta aðstoðar Fjölskylduhjálparinnar árlega og sækir stór hluti þeirra matargjafir og jólagjafir fyrir jólin. Fyrirtæki og einstaklingar eru viljugir að aðstoða þá sem minna mega sín og gaf bókaútgáfan Sofðu unga ástin mín tvö þúsund bækur á dögunum. Sara Hlín Hálfdanardóttir, framkvæmdastjóri bókaútgáfunnar Sofðu unga ástin mín, afhendir fulltrúa Fjölskylduhjálparinnar tvö þúsund bækur sem fara í jólagjafir skjólstæðinga Fjölskylduhjálparinnar. Ljósmynd/Hari 8 fréttir Helgin 21.-23. desember 2012
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.