Fréttatíminn - 21.12.2012, Blaðsíða 103
Söngsveitin Fílharmonía heldur
friðartónleika á milli jóla og
nýárs í Kristskirkju í Landakoti
þann 27. desember klukkan 20. Á
efnisskránni eru jólalög af ýmsu
tagi eins og þjóðlagið Hátíð fer að
höndum ein í útsetningu Jóns Ás-
geirssonar, Ave María Sigvalda
Kaldalóns, Ecco aría úr Jólaórató-
ríu Bach og gömul erlend lög eins
og Hin fegursta rósin er fundin
og franska 16. aldar lagið Opin
standa himins hlið. Einsöngvari
er Hallveig Rúnarsdóttir sópran,
organisti Steingrímur Þórhalls-
son en öllu saman stjórnar Magn-
ús Ragnarsson.
Að sögn aðstandenda mun
hátíðarbragur svífa yfir vötnum
og eru tónleikarnir kjörið tæki-
færi fyrir hvíld og hugarró eftir
annasama aðventu og stressið
sem oft einkennir síðustu dagana
fyrir jól. Allir unnendur kórtón-
listar ættu af hafa gott og gaman
af tónleikunum sem eru um
klukkustundarlangir. Hægt er að
nálgast aðgöngumiða í safnaðar-
heimili Kristskirkju og hjá kór-
félögum.
Tónleikar á milli jóla og nýjárs
Fílaharmónía og einsöngvari í Landakoti
Sirkushátíðin VOL.CAN.O
verður haldin í Vatnsmýrinni
4.-14. júlí næsta sumar. Reist
verða 4 sirkustjöld og lofa
aðstandendur töfrum og
leikjum í þessa tíu daga. Það
eru Norræna húsið í Reykjavík,
Cirkus Xanti og Cirkus Cirkör
sem standa að hátíðinni sem
verður að teljast til tíðinda í
íslensku menningarlífi.
Nú þegar er byrjað að selja
miða á einn af sirkusunum sem
mæta, Cirkus Cirkör, en mið-
arnir fást í afgreiðslu Norræna
hússins. Sýningar Cirkus Cirkör
nefnast „Wear it Like a Crown“
og fara fram 4., 5., og 6. júlí
klukkan 20. Eins og myndirnar
hér við hliðina bera með sér er
sýningin lífleg og skemmtileg.
Cirkus Cirkör kom síðast til
Íslands 2005 með sýninguna
99% Unknown og var uppselt á
allar sýningarnar. Cirkus Cirkör
kemur við á Íslandi á ferð sinni
um heiminn. Þau fljúga hingað
frá Buenos Aires og næsta
stopp á eftir Íslandi er Mont-
real. Þess má geta að Cirkus
Cirkör sá um listrænt atriði
fyrir konunglegt gala matarboð
Nóbelsverðlaunanna nú síðast
og þykir það einstakur heiður
í Svíþjóð. Þá er ekkert svið
heldur þarf að aðlaga atriðið
að kirkju þar sem hátíðarhöldin
fara fram.
Sirkusþorp í
Vatnsmýrinni
Síðast var uppselt á allar sýn-
ingar Cirkus Cirkör en ráðgert
er að reisa fjögur sirkustjöld í
Vatnsmýrinni í sumar.
menning 103 Helgin 21.-23. desember 2012