Fréttatíminn - 21.12.2012, Blaðsíða 106
Tónleikar rokk á Bar 11 HverfisgöTu
Dýrðin og Sindri Eldon and The Ways
Á þriðja í jólum, 27. desember klukk-
an 22, ætla Dýrðin og Sindri Eldon
and the Ways að halda mikla tónleika
á Bar 11, Hverfisgötu. Dýrðin er
nýbúin að gefa út aðra breiðskífu
sína sem ber heitið Gull og Vitleysa
en á henni er að finna pönkað popp
og pönkið er ekki langt að sækja
enda er trommari sveitarinnar hinn
goðsagnakenndi Tóti sem var í
Risaeðlunni og Bubbleflies og sem
hefur verið að spila síðan hann var
barn að aldri í Vonbrigðum í Rokk í
Reykjavík.
Sindri Eldon þarfnast vart við-
kynningar. Hann ætlar að koma fram
með hljómsveit sinni The Ways en
þeir eru um þessar mundir að taka
upp plötu og ætla félagarnir dreifa
demóinu Holuhjarta á tónleikunum.Sindri Eldon and the Ways.
Dýrðin
í allri
sinni
dýrð.
Í var Schram er í háskólanum þar sem hann nemur félagsráðgjöf. Hann er í óða önn við að skrifa BA rit-gerðina sína sem fjallar um tvöfalt lögheimili skiln-
aðarbarna við sameiginlega forsjá. Hann gefur sér þó
tíma til að hitta blaðamann Fréttatímans í spjall um nýju
plötuna og atburðinn sem platan fjallar að stóru leyti
um. Þrátt fyrir að vera í námi og hafa nær alla ævi verið
viðloðandi einhverjar íþróttir segir Ívar aðaláhugamálið
samt vera tónlistina. Tónlistin sé það áhugamál sem
rækta beri hvað mest og þegar að hljómsveitin Original
Melody, sem Ívar hefur verið í um langt skeið, fór í hlé í
fyrra ákvað hann að gera sína eigin plötu.
Hefur aldrei fundið fyrir reiði til gerandans
Ívar hélt síðan til Barcelona að leita sér innblásturs.
„Það kaldhæðnislega í þessu öllu er að innblásturinn
fékk ég, í tíunda veldi,“ segir Ívar en hann hélt utan
ásamt vini sínum. Þeir höfðu dvalið við gott atlæti hjá
öðrum vini, sem búsettur er ytra. Tveimur dögum fyr-
ir heimförina átti atvikið sér stað þegar vinirnir voru
á leiðinni heim í íbúð eftir að hafa borðað kvöldmat í
nágrenninu.
„Ég man atvikið sjálft ekki svo vel. Við vorum tveir á
heimleið og vinur minn átti í viðskiptum við götusala, en
hann ætlaði að kaupa drykkjarföng til þess að taka með
heim í íbúðina. Ég rölti mjög hægt á undan honum og
þegar ég kem fyrir horn þá er í minningunni eins ég hafi
hreinlega orðið fyrir bíl. Ég man ekki neitt nema bara eft-
ir högginu. Það er þarna sem ég missi bara meðvitund.“
Þegar vin Ívars bar að garði sér hann hvar maður
liggur yfir Ívari klofvega. Sá hleypur þó burt þegar
hann verður vinarins var. „Það fyrsta sem ég man er
allt blóðið á skyrtunni minni og tilfinningin sem ég
fann fyrir þegar ég reyndi að loka munninum. Ég gat
ekki sett saman varirnar. Ég man þegar að vinur minn
sagði við mig, „það vantar vörina á þig.“ Það var mjög
sérstök tilfinning. Tíminn eftir það líður áfram í ein-
hverri móðu, sjúkrabíllinn var mjög lengi á leiðinni og
ég datt svona inn og út.“
Gerandinn í máli Ívars náðist aldrei og engar vís-
bendingar eru um það hvað vakti fyrir manninum. Ívar
segist þó aldrei fundið fyrir neinni reiði í hans garð.
„Kannski er það af því að ég hef enga mynd af honum í
höfðinu. Ég veit þess vegna ekki hvert ég ætti að beina
reiðinni. Ég er samt ekki þannig gerður að ég finni fyrir
neinni ofsareiði í garð fólks eða mig langi til að beita
það ofbeldi. Ég vildi samt alveg að hann hefði fundist til
þess ég gæti kært hann. En það er það sem er svo erfitt
í þessu máli. Lögfræðilega hlið þess er svolítið snúin.“
Samkvæmt íslenskum lögum er íslenska ríkið ekki
bótaskylt í málum Íslendinga sem verða fyrir tjóni utan
landsteinanna nema við sérstök tilefni. Bótanefndin
vísaði beiðni Ívars frá en tilefni hans þótti ekki eiga við
sem sérstakt tilefni.
Með tóbaksklút fyrir vitum
Til að byrja með hélt Ívar sig til hlés og fór ekkert út úr
húsi án þess að hafa tóbaksklút fyrir vitum sér. Hann
segir að sú hugsun sem hafi leitað hve mest á hann hafi
verið hvort hann ætti nokkurn tímann eftir að rappa
aftur, en tal hans bjagaðist eðlilega fyrst um sinn. Það
hefur þó allt gengið til baka og er Ívar mjög bjartsýnn á
framhaldið. Hann hefur gengist undir nokkrar aðgerðir
og á eina stóra eftir, er vörin verður byggð upp í sína
fyrri mynd.
„Vörin er bara barn að fæðast og ég verð bara að bíða
þolinmóður í því ferli. Þetta böggar mig ekkert og það
er í raun magnað að sjá alltaf nýja og nýja spegilmynd.
Ég er bara svo ánægður að það hafi komið eitthvað gott
úr þessari lífsreynslu. Þetta hefur kennt mér svo margt
svo ég er í raun bara þakklátur,“ segir Ívar æðrulaus.
Muntu einhvern tímann fara aftur til Barcelona?
„Ég veit það ekki alveg. Mér stóð til boða að fara
þangað til þess að taka upp myndband fyrir lag á plöt-
unni. Ég afþakkaði þá því ég treysti mér ekki alveg
til þess. Ég hræðist borgina ekkert sérstaklega, en
veit ekki hvernig mér mundi líða að fara þangað. Ég er
ennþá var um mig og forðast það jafnvel að labba einn
hér heima.
Ég er einhvern veginn varkárari. Ætli þetta hafi ekki
breytt mér meira en mig grunar.“
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Ívar scHram gefur úT plöTuna Barcelona
Missti vörina og
rappar um reynsluna
Ívar Schram er 27 ára Vesturbæingur sem gaf á dögunum út sína fyrstu sólóplötu. Platan er
uppgjör við atburð sem Ívar varð fyrir í fyrra þegar neðri vörin var bitin af andliti hans, af
ókunnugum manni úti á götu í Barcelona. Atvikið segir Ívar hafa haft á hann mikil áhrif, en
þó ekki á þann hátt sem ætla mætti. „Ég ákvað það strax í flugvélinni á leiðinni heim að láta
þetta atvik ekki há mér á neinn hátt. Ég tók bara ákvörðun um að vera ekkert að velta sjálfum
mér upp úr þessu og hugsunum eins og, hvað ef ég hefði gert eitthvað öðruvísi.“
Ívar Schram er mjög bjartsýnn á framhaldið. Hann hefur
gengist undir nokkrar aðgerðir og á eina stóra eftir, er vörin
verður byggð upp í sína fyrri mynd. Ljósmynd/Hari
Man tilfinninguna
þegar ég reyndi að
loka munninum.
Jólaró
á Þorláksmessu
í anddyri Hörpu kl. 17-18
einsöngvarar syngJa
Jóla-og Hátíðarlög
arndís Halla ásgeirsdóttir
auður gunnarsdóttir
elsa waage
Hallveig rúnarsdóttir
sesselJa kristJánsdóttir o.fl.
antonía Hevesi, píanó
allir velkomnir
ókeypis aðgangur!
106 tónlist Helgin 21.-23. desember 2012