Fréttatíminn - 21.12.2012, Blaðsíða 44
M ér finnst þetta mjög ánægju-legur árangur hjá þeim. Það eru fáir betur að
þessu komin en þau. Þau hafa nýtt
sitt tækifæri eins vel og hægt er,“
segir Anna Hildur Hildibrandsdóttir,
framkvæmdastjóri hjá Nomex, Nordic
Music Export. Anna er fyrrum fram-
kvæmdastjóri Útflutningsmiðstöðvar
íslenskrar tónlistar, Útón, og hefur
fylgst með uppgangi Of Monsters and
Men frá fyrsta degi. Anna hefur starf-
að um árabil í tónlistarbransanum,
bæði á Íslandi og erlendis, og telur að
sveitin geti náð enn lengra.
J á, það er nú það,“ segir hljómborðs-leikarinn Árni Guð-
jónsson þegar hann er
spurður af hverju hann
kaus að segja skilið við
Of Monsters and Men
á dögunum. „Það var
aldrei stefnan að vera
brjálæðislega lengi í
þessu bandi. Mér fannst
þetta mjög skemmtilegur
tími en þetta gerðist allt
svo hratt. Allt í einu var
ég kominn til Ástralíu og
hugsaði með mér, hvað
er ég að gera hér?“
Fréttatíminn greindi
frá brotthvarfi Árna í
lok nóvember og komu
tíðindin mörgum á óvart.
Það er enda ekki algengt
að menn stökkvi frá
borði þegar allt gengur
hljómsveitum í haginn.
Árni segir að sér finnist
tónlist Of Monsters and
Men góð og krakkarnir
í sveitinni skemmtilegir.
Hann hafi hins vegar
fengið nóg af tónleika-
ferðalögunum.
„Þetta er rosalega
mikið brölt, maður býr
alltaf í ferðatösku. Það
halda allir að þetta sé eitt
stórt frí og maður syndi í
seðlum en það gæti ekki
verið fjær sannleikanum.
Þetta er hörku vinna og
maður er pískaður áfram.
Hugurinn þarf að vera
hundrað prósent í þessu
og ég var ekki alveg þar.
Bandið er að fara spila
rosalega mikið á næsta
ári og mér féllust hendur
við tilhugsunina.“
Árni viðurkennir að
það hafi stundum tekið á
taugarnar að spila sömu
lögin aftur og aftur, enda
hefur sveitin bara gefið
út eina plötu og hafði
verið dugleg við tónleika-
hald hér heima áður en
landvinningarnir hófust.
„En þetta eru góð lög
og þessir krakkar eru
mínir bestu vinir. Við
tókum fund og ræddum
saman. Ég sagði þeim
að þau gætu hringt í mig
ef þau vantar einhvern
tíma hljómborðsleik-
ara í einhver gigg. Það
fóru allir sáttir frá þeim
fundi,“ segir Árni um
brotthvarfið. „Nú er ég
spenntur að fá þau heim
og sérstaklega að fá að
detta í það með honum
Ragnari mínum,“ segir
hann ennfremur, en Árni
og Ragnar, söngvari
og gítarleikari, leigðu
saman þegar Of Mon-
sters and Men sigraði í
Músíktilraunum og Árni
gekk til liðs við sveitina
í kjölfarið. „Hann bað
mig að koma og spila inn
á nokkur lög. Það varð
aðeins meira úr því.“
Árni hefur lært á píanó
síðan hann var sex ára
Engin takmörk fyrir því
hvað þau geta komist langt
Anna Hildur
Hildibrandsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Nomex,
hefur fylgst með
uppgangi Of Mon-
sters and Men.
Hún fagnar því
að íslensk „main-
stream“ hljómsveit
skuli loks slá í gegn
og spáir sveitinni
frekari frama.
Anna
Hildur
Hildi-
brands-
dóttir, fram-
kvæmda-
stjóri
Nomex.Framhald á næstu opnu
Fékk nóg af því að búa í ferðatösku
Árni Guðjónsson hljóm-
borðsleikari hætti í Of
Monsters and Men í
síðasta mánuði. Hann
segir að tónleikaferðirnar
hafi ekki átt vel við sig
og saknar krakkanna og
hlakkar til að detta í það
með Ragnari þegar hann
kemur heim um jólin.
og hefur lokið námi í
tónsmíðum í Listahá-
skólanum. Hann gat
reyndar ekki verið við-
staddur eigin útskriftar-
tónleika því hann var á
tónleikaferðalagi með Of
Monsters and Men. Nú
er Árni aftur farinn að
læra í FÍH og skipu-
leggur framtíðina. „Ég
fékk nú pínu áfall um
daginn og fór að hugsa
um hvað ég ætti eigin-
lega að fara að gera. Ég
ákvað að sækja um skóla
erlendis, hljómsveitar
útflutningsnám í Hol-
landi. Ef ég kemst inn er
það fjögurra ára nám. Ef
ekki, þá verð ég bara hér
og reyni að klára FÍH,“
segir Árni sem er 24 ára.
Meðfram tónlistar-
náminu er hann að vinna
á Mánabar við Hverfis-
götu. „Það voru menn-
ingarvitar sem keyptu
staðinn og eru að reyna
að koma góðu orði aftur
á húsið. Við ætlum að
breyta staðnum í heit-
ustu djassbúllu bæjarins,
við erum með tónleika
hérna og ég sé um vínyl-
plötukvöld á þriðjudög-
um. Ég er svo heimakær,
mér finnst gott að vera
hérna. Svo var ég að
flytja í Hlíðarnar og er
að reyna að njóta lífsins.“
En allar þessar
vinsældir og allt þetta
tónleikahald hlýtur að
skila einhverju. Eitthvað
hlýtur að skila sér inn á
bankareikninginn þinn?
„Blessaður, ég veit
ekki einu sinni hvernig
ég á að borga leigu á
morgun. Ég fæ einhvern
starfslokasamning en
hann verður ekkert
svakalega hár. Ég veit
ekki hvort það verður
hundrað þúsund, milljón
eða hvað. Það kemur
bara þegar það kemur.“
-hdm
Árni Guðjónsson hætti í Of Monsters and Men eftir tónleika sveitarinnar á Airwaves í nóvember. Hann er að vinna á Mánabar, stundar nám í FÍH
og stefnir á nám í Hollandi. Ljósmynd/Hari
1
498.2032
1.000.000
51
0.
00
0
150
2.300.00
0
20.400
115.000
460.000
Plata Of Monsters and Men, My Head
is an Animal, var valin besta plata
ársins hjá netrisanum Amazon.com.
Fjöldi „like“-a á Face-
booksíðu sveitarinnar. Þau skipti sem hljómsveitin hefur troðið
upp í vinsælum spjallþætti Jay Leno. Sveitin
kom einnig fram í þætti Jimmy Fallon og hjá
Graham Norton í Bretlandi.
eintök seld af plötunni My Head
is an Animal um allan heim.
Eintök seld
í Bretlandi.
Fjöldi tónleika sem Of Monsters and
Men hefur komið fram á síðan í mars.
eintök seld
á Íslandi.
eintök seld um allan heim,
utan Bandaríkjanna og Íslands.
ei
nt
ök
s
el
d
í B
an
da
rí
kj
un
um
.
Pl
at
an
n
áð
i g
ul
ls
öl
u
í v
ik
un
ni
.
eintök hafa selst um
allan heim
af sm
áskíf-
unni Little Talks.
44 úttekt Helgin 21.-23. desember 2012