Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.12.2012, Blaðsíða 94

Fréttatíminn - 21.12.2012, Blaðsíða 94
94 viðtal Helgin 21.-23. desember 2012 HANSEN | 3.990 MÖLLER | 2.490 BLÖNDAL | 3.990 BRIEM | 4.490 OLSEN | 8.990 NÝJA ULLARLíNAN ER KOMIN! R ödd Kristins R. Ólafssonar ætti að vera flestum Íslend-ingum kunn en hann hefur í um 30 ár þjónað sem fréttaritari Íslands á Spáni. Á Spáni hefur hann búið síðan 1977 en er nú fluttur heim og upplifir sinn fyrsta vetur á Íslandi í langan tíma. „Ég er í vægu menningaráfalli,“ segir Kristinn kíminn en hann hefur átt erfitt með að venjast ósiðum Ís- lendinga, ef slíka mætti kalla. „Það eru þessir litlu hlutir sem ég á erfitt með að venjast. Það fyrsta sem ég hef tekið eftir er þetta með samskiptahefðina, þegar maður mætir fólki eða er samferða því í lyftu, þá eru í öllum menningarsamfélögum svona reglur um hvernig beri að haga sér. Þetta vantar hér en ég hugsa að það sé komið til vegna þess hve stutt er síðan við urðum borgar- þjóð, það eru ekki nema um fimm- tíu ár síðan.“ Kristinn útskýrir að þetta tengist því ekki ókurteisi heldur ómótuðum siðvenjum. „Ég lendi í stökustu vandræð- um í verslunum með þetta. Ég veit ekkert hvað ég á að segja við starfsfólkið,“ segir hann og hlær. Þetta er einn af þessum smáu núningum sem ég hef fundið fyrir. En það er nú aðallega til gamans heldur en hitt. Það er svo annað með umræðuhefðina sjálfa en það hefur löngum einkennt ís- lenska umræðuhefð svokallað ad hominem, að vaða í manninn ekki málefnið. Það einkennist kannski af smæðinni, það er auðveldara að kalla frændur sína bara hálfvita í stað þess að eiga við þá í rökræð- um. Þetta er óþægilegt því það er Kristinn R. Ólafsson talar ei meir frá Madríd Kristinn R. Ólafsson er með þekktari útvarpsröddum landans. Hann hefur um áratugaskeið miðlað fréttum sunnan úr Mið- jarðarhafi en er nú fluttur heim til Íslands, til harðlífislands lútherskunnar þar sem getur reynst erfitt að temja sé nýjar siðvenjur eða öllu heldur skortinn á þeim. Blaðamaður Frétta- tímans sótti Kristin heim þar sem hann hefur komið sér fyrir í Vesturbænum og átti við hann spjall yfir rótsterkum kaffibolla að hætti Spánverja. ógjörningur að fá einhverja grunn- sýn í málefnin sem virðast brenna hvað mest á landanum. ESB og verðtryggingin bera þar hæst, já og femínisminn. Það vantar hlut- lausa úttekt á málum. Svo er það þessi pólitíska rétttrúnaðarstefna sem gengur ansi langt hér á Ís- landi. Það má ekkert segja orðið,“ segir Kristinn sem segist þó vera femínisti. „Án þess að ég vilji skil- greina mig nokkuð opinberlega, það er best að halda skoðunum sínum fyrir sig, í pólitík og öðru slíku þegar maður fæst við mína vinnu.“ Hvar er „la crisis?“ Á Spáni er vaxandi áhugi á Íslandi og fjöldi mótmælendahreyfinga horfir hingað vegna lausna frá erf- iðleikum spænsku kreppunnar. Á Spáni er nú um 25 prósent atvinnu- leysi og að sögn Kristins vex nú úr grasi svokölluð hvorki né kyn- slóðin, eða „nie nie“. Það ku vera fólkið sem hvorki hefur atvinnu né menntun. „Þetta er týnda kynslóð- in. Hér á Íslandi virðist allavega vera atvinna þó að atgervisflótti hafi vissulega verið einhver, launin eru auðvitað lág og hér er dýrt að lifa en það er samt sem áður tölu- verður munur á löndunum og við erum komin tiltölulega langt út úr þessum erfiðleikum. Fyrir ekki svo löngu var ekki hægt að hitta Íslending án þess að hann ræddi um kreppuna, nú er það eiginlega búið. Það tala að minnsta kosti fáir um hana ennþá. Hvort það sé merki þess að henni sé lokið verður að liggja á milli hluta en Spánverjar líta margir hingað til lausna. Mótmælahreyf- ingin M15 hefur til að mynda búið til sína útgáfu eða goðsögn af Ís- landi sem þau nota til hliðsjónar í sinni baráttu. Ég heimsótti tjald- búðir þeirra og þegar spurðist út að ég væri frá Íslandi báru þau mig á höndum sér. Ég var eins og bylt- ingarleiðtogi, Fidel Castro bara,“ segir Kristinn hlæjandi og bætir við, „í búðunum mátti líta fána með áletrunum „Islandia es el camino“ eða „Ísland er fyrirmyndin“. Fyrir „Ég kom heim að leita ástar. Hvað svo sem það nú þýðir verður að fá að liggja á milli hluta,“ segir Kristinn dularfullur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.