Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.12.2012, Page 30

Fréttatíminn - 21.12.2012, Page 30
andi en hún telji þó að lafði Macbeth sé um margt mis- skilin. „Ég held að flestir sem segi að hún sé rosaleg persóna séu ekkert endilega búnir að lesa verkið og hafi bara heyrt svo mikið um hana. Hún er með „reputation“ og það er eiginlega það besta við hana. Ég vil alls ekki líkja henni við Hallgerði langbrók en mér finnst þær dálítið eiga þetta slæma orðspor sameigin- legt. Þær eru báðar samþykktar þangað til eitthvað annað kemur upp á og þá er ég ekki að tala um morðin heldur ákveðin persónueinkenni. Lafði Macbeth er mjög mögnuð að þessu leyti.“ Það fossar blóð Þegar talið berst að verkinu sjálfu ber strax blóð á góma. „Þetta er auðvitað rosalega blóðugt verk og mörg morð framin,“ segir Margrét og bendir á að slíkt sé þó ekkert einsdæmi þegar Shakespeare er annars vegar. „Það eru nú margir drepnir á óhuggulegan hátt í flestum þessum verkum hans. Í Hamlet, Lé kon- ungi og það er auðvitað alltaf stríð og þarna eru alltaf hermenn sem eru að snúa aftur úr stríði. Eins og í Rík- harði III, Guð minn góður! Þetta er svolítið svipað og í Ríkharði III þar sem Macbeth bíður ekki eftir sínum tíma. Í upphafi fær hann nýja titla og vegsemd af því hann stóð sig svo vel í stríðinu og myrti svo rosalega.“ Margrét segir auðvelt að finna hliðstæður við blóðugan heim Shakespeares í stríðshrjáðum sam- tíma okkar. „Við þekkjum þetta í dag en skiljum þetta kannski ekki. Sérstaklega ekki Íslendingar og við erum ef til vill voða hissa á því að hermenn eigi erfitt með að aðlagast samfélaginu þegar þeir koma heim. Þú ert þarna með drápstól og kannski er auðveldara en margan grunar að ýta við hermannseðli þeirra. Egna þá með því að spyrja hvort þeir séu menn eða mýs og þá kannski hrekkur þessi vél í gang.“ Morðóð maskína Þetta er einmitt meðalið sem lafði Macbeth notar á eiginmann sinn sem hún í ofmetnaði virkjar til illra verka. „Macbeth er svo ótrúlega spennandi á margan hátt. Spennan milli þeirra hjóna er mikil. Þau eru ástfangin í upphafi og kynferðisleg spennan á milli þeirra er mik- il. En svo fara þau í rauninni alveg hvort í sína áttina. Fyrst er hún til í tuskið og þarf að sannfæra hann þótt hann hafi jafnvel plantað hugmyndinni í huga hennar. Þá dregur hún hann áfram og peppar hann upp í þetta eina morð. Á kónginum. En hún veit ekki hvað hún er búin að kveikja því hann hættir ekki þar og byrjar að drepa og drepa þannig að hún fær taugaáfall yfir því hvernig hann missir tökin. Hún endar geðveik en hann heldur áfram eins og morðóð maskína.“ Jólin verða rauð hjá leikkonunni Mar- gréti Vilhjálmsdóttur, óháð veðurfari í desemberlok, þar sem hún stígur á svið Þjóðleikhússins að kveldi annars dags jóla í hlutverki lafði Macbeth í hinu blóði drifna leikriti skáldjöfursins William Shakespeare. Lafðin er óneitanlega með bitastæðrari kvenhlutverkum leikhúsbókmenntanna en Margrét segist þó varla geta talað um að hún sé komin í draumahlutverkið. Það sé í raun frekar martröð rétt eins og magn- þrungin sagan sem Shakespeare segir. Þótt leikkonan sé með höfuðið á kafi í drungalegu verkinu tekst henni samt að njóta aðventunnar með börnunum. Framhald á næstu opnu Margrét Vilhjálmsdóttir sér rautt þessa dagana enda á kafi í undirbúningi fyrir frumsýningu Þjóð- leikhússins á Macbeth á öðrum degi jóla þar sem hún leikur hina mögnuðu persónu lafði Macbeth. Hún hefur samt gefið sér tíma til þess að njóta aðventunnar með fjölskyldunni, er búin að fella jólatré og baka piparkökuhús. Ljósmynd/Hari Blóðrauð jól Margrétar Vilhjálms Þ að er ekki laust við að í manni sé örlítill uggur þegar maður ranglar áttavilltur um ganga Þjóðleikhússins á nöprum desembermorgni í leit að Margréti Vil- hjálmsdóttur sem er einhvern veginn strax runnin saman við lafði Macbeth í huga blaða- mannsins. Óttinn gufar hins vegar upp um leið og Margrét stekkur gleiðbrosandi og hlýleg út úr her- bergi sínu á efstu hæð leikhússins. Hún reiðir fram bleksvart og rótsterkt kaffi, stingur jólaljósaseríu í samband á meðan hún lætur dæluna ganga um Mac- beth, eitt þekktasta verk Shakespeares. „Ég er nú bara að koma mér í gírinn. Það líður svo langur tími frá því að maður er búin að vera að fara í gegnum verkið, heimspekina í því og fræðilega hlutann. Svo er ég allt í einu dottin inn í hlutverkið og þegar lafði Macbeth hefur tekið mann yfir þarf oft að rifja aðeins upp hvað þetta á eiginlega að fyrir- stilla í heildarmyndinni,“ segir Margrét og ákafinn leynir sér ekki. Alræmd og misskilin kona Margrét segir persónuna sem hefur undanfarnar vikur rutt sér til rúms í höfði hennar ákaflega spenn- 30 viðtal Helgin 21.-23. desember 2012
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.