Fréttatíminn - 21.12.2012, Side 42
Seldu milljón plötur á átta mánuðum
Hljómsveitin Of Monsters and Men sigraði í Músíktilraunum vorið 2010. Fyrsta breiðskífa
sveitarinnar kom út haustið 2011 og í kjölfarið fylgdi útgáfusamningur við risann Universal. Í vor
og sumar kom platan út um allan heim og meðlimir Of Monsters and Men hafa verið á stöðugum
tónleikaferðalögum til að kynna hana. Árangurinn er óumdeilanlegur; um milljón eintök af hafa
selst af plötunni og 2,3 milljónir eintaka af smáskífunni vinsælu, Little Talks. Í vikunni náði breið-
skífan gullsölu í Bandaríkjunum. Engin íslensk sveit hefur náð viðlíka frægð á svo skömmum tíma.
F
jórir krakkar af Suður-
nesjum og úr Garðabæ
komu, sáu og sigruðu á
Músíktilraunum í mars
árið 2010. Of Monsters
and Men þóttu verðugir sigurveg-
arar. „Sveitin er leidd af Nönnu
Bryndísi Hilmarsdóttur og stýrði
hún gangi mála af miklu öryggi.
Söngrödd hennar er frábær;
brestur á réttum stöðum, hæfi-
lega hrjúf og ljúf í senn. Tónlistin
„Seabear“-ískt nýþjóðlagapopp,
melódískt mjög, lögin fullmótuð
og sveitin einnig. Hnökralaust, svo
gott sem, og síðasta lagið, „Love,
Love, Love“ algjör snilld,“ sagði
í umsögn tónlistarsérfræðings-
ins Arnars Eggert Thoroddsen í
Morgunblaðinu. Fleiri en hann
hrifust af bandinu. Haraldur Leví
Gunnarsson, útgefandi hjá Record
Records, var fljótur að semja við
krakkana um útgáfu á fyrstu breið-
skífunni.
Beint í sjötta sæti Billboard
Nanna Bryndís Hilmarsdóttir og
Ragnar Þórhallsson eru forsprakk-
ar hljómsveitarinnar. Þau syngja
bæði og spila á gítar. Auk þeirra
eru í bandinu Brynjar Leifsson
gítarleikari, Arnar Rósenkranz
Hilmarsson trommari og Kristján
Páll Kristjánsson bassaleikari.
Eins og kemur fram annars staðar
í umfjölluninni hætti Árni Guð-
jónsson nýverið í sveitinni en hann
lék á hljómborð. Fréttatíminn
sagði frá því á dögunum að Stein-
grímur Karl Teague úr hljóm-
sveitinni Moses Hightower hefði
hlaupið í skarðið fyrir Árna á nýaf-
staðinni tónleikaferð. Hann er ekki
genginn í Of Monsters and Men
en gæti haldið áfram að spila með
þeim á tónleikum.
Leon, Noruh Jones og Tom Waits
og kann því vel til verka.
My Head is an Animal kom út í
Bandaríkjunum og Kanada 3. apríl
en ekki fyrr en 27. ágúst í Bret-
landi. Strax frá fyrstu viku var
ljóst að eitthvað stórt var í uppsigl-
ingu því platan skaust beint í sjötta
sæti Billboard-vinsældalistans.
Tónleikaferð fram í september
á næsta ári
Á þessum átta mánuðum sem
liðnir eru frá útgáfu plötunnar
hafa krakkarnir í Of Monsters
and Men verið afar duglegir við
tónleikahald og kynningarstörf.
Að sögn Heather Kolker, umboðs-
manns sveitarinnar, hefur Of Mon-
sters and Men troðið upp á um 150
tónleikum um allan heim síðan í
mars. Stærstu tónleikarnir voru á
tónlistarhátíðum í sumar þar sem
oft voru tugþúsundir áhorfenda.
Hún nefnir Lollapalooza-hátíðina
sem sérstaklega stóra tónleika.
Þið eruð þegar búin að skipu-
leggja fjölda tónleika á næsta ári.
Verður sveitin á tónleikaferðalagi
allt árið?
„Já, mestallt árið. Líklega fram í
september,“ segir Kolker.
Er farið að huga að næstu plötu?
Eru þau farin að semja nýtt efni?
„Hljómsveitin er byrjuð að semja
nýtt efni en það hefur gengið hægt
því þau eru svo upptekin við tón-
leikahald.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Fyrsta plata Of Monsters and
Men, My Head is an Animal, kom
út í september árið 2011 og náði
strax talsverðum vinsældum hér á
landi. Mánuði síðar var tilkynnt að
sveitin hefði gert útgáfusamning
við risann Universal í Bandaríkj-
unum.
Universal ætlaði Of Monsters
and Men strax stóra hluti. Banda-
ríski upptökustjórinn Jacquire
King kom til Íslands í byrjun þessa
árs og hjálpaði krökkunum að
betrumbæta plötuna fyrir útgáfu á
alþjóðavísu. King hefur unnið með
listamönnum á borð við Kings of
Á tónleikum. Raggi og Nanna á sviði á Latitude tónleikahátíðinni í England í sumar. Ljósmynd/NordicPhotos/Getty Meira á næstu opnu
42 úttekt Helgin 21.-23. desember 2012