Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.12.2012, Síða 48

Fréttatíminn - 21.12.2012, Síða 48
Þ að er ótrúlega gott að eiga sam-ferðamann í gegnum lífið með sama áhugamál,“ segir Arngrímur Sigurðsson myndlistamaður um tvíbura- bróður sinn, Matthías Rúnar, einnig myndlistarmann. Bræðurnir hafa að eigin sögn alla tíð teiknað mikið. Þeir nema báðir við myndlistardeild Listahá- skólans og mun það vera í fyrsta skipti sem tvíburar leggja stund á nám innan skólans á sama tíma. Þeir opna samsýn- ingu á verkum sínum í kvöld, föstudags- kvöld, í Kaffistofunni nemendagalleríi við Hverfisgötu. Þeir eru sammála því að myndlist mætti vera aðgengilegri almenn- ingi í öllum skilningi. „Ég gerði mikið af því í fyrra og er enn að fikta við það að gera skúlptúra og þetta verður í fyrsta sinn sem ég sýni skúlp- túrverkin mín,“ útskýrir Matthías en við erum stödd á heimili hans vestur í bæ. Um alla íbúð gefur að líta hinar ýmsu fígúrur sem hann hefur að sögn mótað á síðustu tveimur árum, utan við teikningarnar. Arngrímur sinnir hins vegar málaralist- inni. „Það verður mjög gaman að sjá þetta allt saman uppi á vegg. Þetta eru alveg tveir ólíkir heimar,“ segir Arngrímur. Bræðurnir eru rólegir í fasi og klára gjarn- an setningarnar fyrir hvorn annan. Þeir eru ekki svo líkir í útliti þó að svipurinn leyni sér ekki. „Fólk segist oft þekkja okkur á göngulaginu. Það er víst eitthvað sem einkennir okkur," segir Arngrímur kíminn. „Við erum annars ólíkir í öllum grundvallaratriðum,“ bætir Matthías við. Bræðurnir eiga ekki langt að sækja myndlistarhæfileikana en þeir hafa, að eigin sögn, alla tíð teiknað mikið. Móðir þeirra er myndlistarkonan Kristín Arn- grímsdóttir og þegar drengirnir voru barnungir flutti fjölskyldan til Englands þar sem hún lauk viðbótarnámi í faginu. „Við vorum alltaf með henni og fengum að vaða alveg uppi á vinnustofunni í skólanum en þar eyddum við gjarnan heilu dögunum og fengumst við hvers- konar teikningar og myndlist,“ útskýrir Matthías og bætir við að þeir bræður hafi gjarnan málað Warhammer karla, sem eru lítil módel af skrímslum og hvers- konar vættum. „Ég man eftir því að hafa átt bók eftir Sigmúnd, skopmyndateinara Morgunblaðsins. Ég æfði mig að teikna eftir honum. Ég lærði alveg heilmikið á að herma eftir myndunum hans. Ég sendi honum meira að segja aðdáendabréf ein- hvern tímann og fékk til baka fullt af teikningum og allskonar dót,“ segir Arn- grímur og bætir við, „Matti var svo mikið meira í að teikna skrímsli og þannig.“ Strákarnir hafa fylgst að alla skóla- gönguna en eftir grunnskólann héldu þeir báðir á myndlistarbraut í Fjölbraut í Breiðholti. Að því námi loknu fóru þeir svo saman í ferðalag til Indlands þar sem þeir tóku meðvitaða ákvörðun um að skoða ekki landið á hefðbundinn hátt. „Við sett- umst að í litlum útlagabæ og fundum þar gamlan munk sem kenndi okkur teikn- ingu, Thangka list. Við vorum frekar stefnulausir á þessum tíma svo þetta var mjög gott fyrir okkur,“ segir Arngrímur og Matthías segir að það hafi verið mikil skólun. „Við gerðum ekkert annað en að teikna allan daginn. Svo við lærðum mjög mikið.“ Þrátt fyrir að vera samrýndir hafast þeir töluvert ólíkt að í listsköpun sinni og bera verk þeirra þess merki. Arngrímur útskýrir hvernig hann lætur hugann reika og malla í hugsunum sínum á meðan hann málar en Matthías hugsar, að eigin sögn, vandlega út í hvert pennastrik sem kemur sem viðbragð eða útrás fyrir einhverja líðan. „Ég nota tónlist mikið í minni list- sköpun og oft reyni ég að teikna tóna og túlka hljóð,“ segir Matthías. Sýning þeirra bræðra verður opnuð í Kaffistofunni við Hverfisgötu klukkan átta í kvöld, föstudagskvöld, þar sem hægt verður að skoða teikningar, mál- verk og skúlptúr. „Það væri mjög gaman að sjá sem flesta, fólk talar oft um að það vanti meira af málverkum og teikningu í íslenska listasenu og því erum við sam- mála. Þó við höfum báðir mjög gaman af nýmiðlun þá er þetta eins og allt annað tungumál. Myndmál orkar einhvern veginn öðruvísi á mann en önnur list,“ segir Matthías og Arngrímur bætir við, „Francis Bacon sagði: Þú málar ekki það sem þú getur talað um. Mér finnst það alltaf mjög góð setning og lýsandi fyrir það sem myndlistin er fyrir mér.“ María Lilja Þrastardóttir marialilja@frettatiminn.is „Ég man eftir því að hafa átt bók eftir Sigmund skopmynda- teiknara. Ég æfði mig að teikna eftir honum.“ Sendi skopmyndateiknaran- um Sigmúnd aðdáendabréf Arngrímur og Matthías Rúnar samsýningu opna sýningu í Kaffistofunni á Hverfisgötu í kvöld, föstudagskvöld. Þeir eru ungir og upprennandi listamenn og stunda báðir nám við mynd- listardeild Listaháskóla Íslands. Þetta ku vera í fyrsta skipti sem strákarnir sýna saman, þrátt fyrir að hafa fylgst að alla tíð en þeir eru tvíburabræður. Þeir hafa ólíkan stíl og misjafnar áherslur í myndlistinni en þeir stigu báðir sín fyrstu skref í listinni með að mála Warhammer leik- föng sem börn og lærðu síðar teikningu hjá munki í Indlandi. Tvíburabræðurnir Matthías og Arngrímur opna sína fyrstu samsýningu á ferlinum. Þeir eru báðir myndlistarmenn og nema við Listaháskólann. Ljósmynd/Hari Á R N A S Y N IR util if. is MIKIÐ ÚRVAL SPORTBAKPOKAR FRÁ 4.990 kr. MARGIR LITIR. Á R N A S Y N IR util if. is CASALL MAGAHJÓL 3.790 kr. MIKIÐ ÚRVAL SPORTAUKAHLUTA. Með því að kaupa gjafabréf frá Sól í Tógó og gefa þeim sem þér þykir vænt um, ertu sannarlega að gefa gjöf sem gefur. Andvirði gjafabréfssins rennur til heimilis munaðarlausra barna í Tógó í Afríku sem er eitt fátækasta ríki heims. Gefðu gjöf sem gefur Með því að kaupa gjafabréf frá Sól í Tógó og gefa þeim sem þér þykir vænt um ertu sannarlega að gefa gjöf sem gefur. Andvirði gjafabréfssins rennur til heimilis munaðarlausra barna í Tógó í Afríku sem er eitt fátækasta ríki heims. Heimilið er rekið af Victo sem er nunna í bænum Anehó í Tógó. Fyrir fimmtán árum tók hún að sér unga munaðarlausa stúlku. Síðar bættist önnur stúlka við og smá saman safnaðist í kringum Victo hópur barna. Þegar hún var ráðin til að kenna við skóla í miðbæ Anehó fylgdu börnin með. Nú eru þau orðin rúmlega sjötíu talsins og það er ekki lengur rúm fyrir þau í húsnæðinu við skólann. Þess vegna hefur félagsskapurinn Sól í Tógó tekið að sér að reisa nýtt hús fyrir Victo og börnin. Florentine í Aneho. Nóvember 2012 Gjafabréfin eru að verðmæti 1.500 kr. og 3000 kr. Þau fást í Heilsubúðinni, Njálsgötu 1 og Bókabúðinni, Bergstaðastræti 7. Farðu á www.solitogo.org og fáðu nánari upplýsingar. Þú getur líka sent póst á solitogo@solitogo.org eða hringt í síma 659 7515 og við sendum þér gjafabréf. 48 myndlist Helgin 21.-23. desember 2012
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.