Fréttatíminn - 21.12.2012, Síða 52
Á
Grímunni í sumar var
Tengdó valin leiksýning
ársins, Valur Freyr Einars-
son fékk að auki leikskálda-
verðlaunin og var valinn
besti leikari ársins auk þess sem Davíð
Þór Jónsson fékk verðlaun fyrir hljóð-
mynd verksins. Tengdó er samvinnu-
verkefni Commonnonsense leikhópsins
sem myndlistarkonan Ilmur Stefánsdóttir
og eiginmaður hennar, fyrrnefndur Valur
Freyr, starfrækja ásamt Davíð Þór. Þau
segjast hafa ættleitt Jón Pál Eyjólfsson
leikstjóra sem leikstýrði einmitt Tengdó.
Tengdó fjallar um Magneu Reinalds-
dóttur, mömmu Ilmar, og það kemur strax
blik í augu Vals Freys þegar hann minnist
á hana. Honum þykir augljóslega vænt um
tengdamömmu sína. Allavega það vænt
um hana að hann settist niður og skrifaði
heilt leikrit um hana.
„Hún er alveg einstök týpa. Bara síðan
ég kom inn í fjölskylduna hefur hún flutt
kannski tíu, fimmtán sinnum og henni
þykir ekkert tiltökumál að skipta um
vinnu,“ segir Valur og hlær að sögu sem
þau Ilmur byrja að botna fyrir hvert ann-
að um það þegar Magnea vann í einn dag
hjá Nóa og Síríusi („henni fannst vinnan
hreinlega vera ofbeldi,“ segir Valur).
„Mömmu finnst ekkert tiltökumál að
vinna í viku einhvers staðar og halda svo
annað,“ útskýrir Ilmur en hugmyndin að
leikritinu kviknaði fyrir nokkrum árum
þegar hjónin fóru á Feneyjatvíeyringinn.
„Steingrímur Eyfjörð var að sýna fyrir
hönd Íslands,“ segir Valur Freyr og Ilmur
botnar: „Við sátum á kaffihúsi og horfðum
á eldri borgara Feneyja ferðast vel hífaða
á milli öldurhúsa. Þeir stoppuðu í einn
til tvo drykki á hverjum stað og fóru svo
á næstu knæpu. Þá fórum við Valur að
tala um það hvernig eldra fólk í suðræn-
um löndum hættir ekkert að lifa lífinu.
Mamma er einmitt þannig týpa og okkur
langaði að segja sögu hennar.“
Úr varð leiksýning ársins. Hvorki meira
né minna. Sagan fjallar í stuttu máli um
leit mömmu Ilmar, tengdamömmu Vals,
að pabba sínum en hún er svokallað
ástandsbarn. Pabbi hennar var bandarísk-
ur hermaður sem gerði hér stutt stopp í
stríðinu og skildi eftir barn. Stúlkubarn.
Hjónin Valur Freyr Einarsson og
Ilmur Stefánsdóttir gengu lengi
með það í maganum að segja sögu
mömmu Ilmar. Úr varð sýningin
Tengdó sem var valin leiksýning
ársins á Grímunni fyrr í ár. Hjónin
eiga fjögur börn og einn sonurinn er
með sömu leikhúsbakteríuna og for-
eldrarnir og leikur bæði í Dýrunum í
Hálsaskógi og Mary Poppins.
Hjónin
á bak við
leiksýningu
ársins
Formsatriði að fara inntökuprófið í leik-
listarskólanum
Ilmur og Valur eru leikhúsfólk. Hann er leikari,
hún leikmyndahönnuður. Þau eru búin að vera
saman í tuttugu ár og eiga fjögur börn. Elsta dótt-
irin, Salka, er sautján og sagði mér að hún væri
einstæð þriggja barna móðir þessa dagana. Hún
er í Morfísliði MH, eina stelpan, og bróðir hennar,
árinu yngri, var að kaupa miða á jólaballið. Hann er
að lesa Hobbitann. Svo er það hann Grettir („með
ólæknandi leikhúsbakteríu“) sem leikur í Dýrun-
um í Hálsaskógi og Mary Poppins. Gríma er yngst
(„henni finnst skemmtilegast í jazzballet“).
Hjónin grínast með að Valur hafi átt að verða
stelpan í sinni fjölskyldu. „Ég er fimmti strákur-
inn,“ segir hann en Ilmur átti einmitt að vera strák-
ur. Hún á eldri systur og varð fljótt viðhengi föður
síns sem er tæknifræðingur og plötu- og ketilsmið-
ur. Ilmur hefur alltaf verið að búa til hluti og gekk
í myndlistarskóla og verkin hennar voru frá upp-
hafi svo mikið leikhús að það lá beinast við að hún
endaði sem leikmyndahönnuður. Valur var alveg
viss, eftir MR, að hann myndi verða leikari. Hann
og Hilmir Snær og Benni Erlings voru góðir vinir.
Hilmir og Valur leigðu saman og allir þrír héldu
þeir í inntökupróf hjá Leiklistarskóla Íslands. Það
var bara formsatriði, fannst þeim strákunum, því
þeir áttu víst sæti í skólanum.
„Við komumst allir í sextán manna úrtakið en
aðeins átta komust inn í skólann. Þá var þetta
þannig,“ útskýrir Valur, „að maður mætti upp í
skóla og inntökunefndin afhenti öllum sextán bréf.
Átta fengu nei og átta já. Ég kom aðeins of seint
og strákarnir, Benni og Hilmir, voru búnir að gefa
hvor öðrum „high five“ og svona, báðir komnir inn.
Ég náði í mitt bréf og ólíkt öllum öðrum reif ég það
upp fyrir framan nefndina. Aðrir hlupu út í horn
milli vonar og ótta. Ég hélt mér hefði verið rétt vit-
laust umslag. Það stóð eitthvað svona „því miður“
og ég ætlaði að skila þeim bréfinu aftur en þá var
mér sagt að þetta væri „nei.“ Ég komst ekki inn.“
„Ég man eftir honum þarna um kvöldið. Við
þekktumst þá,“ segir Ilmur. „Strákarnir, vinir
hans, voru að skemmta sér og fagna og maður sá
að hann var svona að reyna að átta sig á því hvað
hefði gerst.“
Ári síðar voru þau orðin par.
Í Tengdó gengur
allt upp og allt
stefnir í 50 sýn-
ingar áður en
yfir lýkur.
Hjónin Ilmur og Valur í nýrri
leikmynd Ilmar fyrir Mýs
og menn sem Valur leikur
einmitt í. Ljósmyndir/Hari
Framhald á næstu opnu
52 viðtal Helgin 21.-23. desember 2012