Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.12.2012, Side 62

Fréttatíminn - 21.12.2012, Side 62
 Úttekt Æðisköst ársins á Facebook Á Facebook hefur hver og einn fengið sitt gjallarhorn og getur látið rödd sína og skoðanir óma laus undan oki hinna hefðbundnu fjölmiðla sem voru fyrir tíma bloggs og samfélagsmiðla hliðverðir umræðunnar. Hávaðinn á Facebook er því oft mikill, sérstaklega þegar hitamál springa út á vefnum og fók ryðst upp á sína kassa og hefur upp gól sín á umræðutorginu. Múgæsingin er sjaldan langt undan og kyndlar og heykvíslar innan seilingar. Fréttatíminn rifjar hér upp nokkur deilumál sem ærðu óstöðuga netverja á árinu sem er að líða. Ólafs þáttur Grímssonar Forseti vor var ítrekað í eldlínunni á árinu og stuðaði netverja oft hressilega. Hann varði forsetastól- inn í óvæginni kosningabaráttu og tryggði sér tuttugu ára setu á Bessastöðum. Hann hóf baráttuna bratt með árásum á helstu ógnina, Þóru Arnórsdóttur, við lítinn fögnuð og einhvern veginn fór það þveröfugt í mannskapinn þegar Ameríkanar dubbuðu Ólaf Ragnar Grímsson upp sem Dalai Lama Norðursins. Var að enda við að senda áskorun til Ólafs Ragnars um að gefa kost á sér til forsetakjörs í sumar. Reyndar sem Andrés Önd, en ég er nokkuð viss um að Walt Disney hefði samþykkt þetta. Áskorun mín var nr. 21028! Þetta er alveg að koma!! Á morgun mun ég svo senda inn sem Rocky Balboa. Gaukur Úlfarsson Æi!! Viljiði hætta að suða í Ólafi Ragnari! Sextán ár er yfirdrifið... ekki meira takk! Heiða B. Heiðars Hann hefur náð áður óþekktum hæðum. Dalai Lama norðursins! Alls- herjargoði útrásarvíkinganna! Hans forsetalega hátign! Þráinn Bertelsson Til að styggja ekki bófa í Kína neitaði Dalai Lama norðursins fyrir hálfu þriðja ári að tala við hinn ekta Dalai Lama Jónas Kristjánsson Dalai Lama hefur ákveðið að héðan í frá muni hann einungis gegna kallmerkinu Ólafur Ragnar Suðursins. Helgi Seljan Ég hélt að forsetinn væri verndari þjóð- kirkjunnar, en svo reynist hann bara leiðtogi norrænna búddista. Hver hefði trúað því? Ævar Örn Jósepsson Hvað átti klappstýran Ólafur Ragnar við þegar hann kallaði Þóru Arnórsdóttur „2007 - frambjóðanda“? Getur einhver sagt mér það? Sveinn Andri Sveinsson Ólafur Ragnar þjófstartar kosninga- baráttunni með rangfærslum. Ingibjörg Stefánsdóttir Salt í sárin Gríðarleg reiði braust út í sam- félaginu, réttlát reiði, þegar í ljós kom að þjóðin hafði óafvitandi gætt sér á ýmsum matvælum bragðbættum með iðnaðarsalti í rúman áratug. Eldar loga enn og reykinn leggur að sjálfsögðu yfir Fésbókina. Mig langar í iðnaðarsalt. Hipparnir ykkar. Lára Björg Björnsdóttir Var að fá fax frá Grínlögreglu ríkisins: Saltbrandarakvótinn hefur verið fylltur. Jón Oddur Guðmundsson Eitthvað eru menn súrir yfir salti. Hafliði Helgason Auglýsi eftir upplýstri umfjöllun og umræðu um salt! Rósa Guðbjartsdóttir Það er merkilegt að heyra frá fram- leiðendum matvæla sem segjast ekkert vita hvaða efni þeir nota í matinn. Frú Sigurveig notar ekki salt í hafraklattana né kökurnar sem hún framleiðir, en ögn af Maldon salti – sem er sjávarsalt - í soyabaunirnar sem selur líka. Egill Helgason Verra er þeirra réttlæti Umræðan um landsdómsmál Geirs Haarde fór á tilfinninga- þrungna fleygiferð enn á ný þegar dómur var upp kveðinn og allt varð brjálað. bíður eftir að heyra þá kenningu að Landsdómur sé á einhvern hátt tæki Evrópusambandsins. Þá verður dagurinn fullkomnaður. Stefán Pálsson Því miður hefur hinn popúlíski dóms- málaráðherra ekki ennþá tjáð sig um hvaða miskabætur honum finnist að þjóðin eigi að greiða Geir H. Haarde fyrir ástæðulausa ákæru og óþægindi og kostnað sem hann hefur haft af málinu. Þráinn Bertelsson Sumir eru á þeirri skoðun að það sé ígildi þess að afneita hruninu að fella niður kæruna á hendur Geir H. Haarde. Er það ekki fullmikið í lagt. Hvað ef Landsdómur kemst að þeirri niðurstöðu að Geir sé saklaus? Væri Landsdómur þá að afneita hruninu? Bergsteinn Sigurðsson Loðnar og teygjanlegar vinsældir Bók með því sem kallað er fantasíur íslenskra kvenna rokseldist fyrr á árinu og kynlífsfíkn lesenda náði síðan hámarki þegar 50 gráir skuggar komu út í íslenskri þýðingu. Blautlegar „kvennabækur“ stóðu í fólki á Facebook. Allir höfðu skoðanir á fyrirbærinu en fjöldinn eyddi miklu púðri í að sverja af sér að hafa lesið ósköpin. Mega konur nú ekki hafa rétt á því að eiga sínar fantasíur? fantasíur eru FANTASÍUR – og ástæðan fyrir því að þetta heita fant- asíur er að þetta er ekki raunveruleiki. Bryndis Gyða Michelsen Svona breytist tískan. Í nokkur ár hafa nor- rænar glæpasögur verið á hverju náttborði. Nú eru klámsögur komnar í þeirra stað – og skulu vera skrifaðar af konum, enda hafa karlmenn sem klæmast illt orð á sér og hafa jafnan verið kallaðir „klámhundar“. Skyldi orðið „klámtík“ ná fótfestu í málinu? Þráinn Bertelsson Las ritdóminn um Fantasíubókina í Frétta- blaðinu. Látum nauðgunarvinkilinn liggja á milli hluta... en hvern langar í kynlíf þegar hann/hún liggur með snúinn ökkla útí móa??? Morfín kannski, en ríðingar... nei! Stefán Pálsson Guðbergur tryllir lýðinn á 17. júní Guðbergur Bergsson hefur nánast gert það að ævistarfi að stuða fólk og hleypa öllu í bál og brand. Hann gerði allt brjálað á þjóðhátíðardaginn þegar hann birti grein um mál Egils Einarssonar á Eyjunni. Grúví, hann Guðbergur (má hann þetta, er ekki ólöglegt að tjá skoðanir sínar á Íslandi?) Ætli sérsveit öfgafemínista sé núna á fullu að vígbúast gegn gamla manninum úr Grindavík? Er Boot Camp í Grindavík? Svanur Már Snorrason Hjúkkitt að Guðbergur er ekki forseti, hver veit hvað hann hefði skrifað undir Icesave? Bragi Valdimar Skúlason Grein Guðbergs Bergssonar gerir álíka mikið fyrir málstað Egils Einarssonar og það ef leik- skólakennarar myndu sprengja leikskóla til að mótmæla upp- sögnum. Helgi Seljan Ég vona að kallarnir 3300 sem fagna Guðbergi og skrifum hans þurfi aldrei að horfa upp á dætur sínar, systur, eiginkonur, mæður og/eða vinkonur fást við afleið- ingar nauðgunar. Ekki viss um að kátína þeirra yfir ummælum eins og „stelpupussulátum“ yrði jafn sönn... Grímur Atlason Guðbergur og hans líkar eru ennþá að menga Facebook. Þess vegna fáið þið annað gott kattavídjó. Óttar M. Norðfjörð Ekki vissi ég að Guðbergur Bergsson, rithöfundur, væri í eiturlyfjunum. Andri Þór Sturluson Mér leiðist þessi gamli karl. Ragnar Þór Pétursson 62 úttekt Helgin 21.-23. desember 2012
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.