Fréttatíminn - 21.12.2012, Side 86
86 bílar Helgin 21.-23. desember 2012
Skoda FramleiðSla haFin nýrri gerð hinS vinSæla milliStærðarbílS
Glæsileg þriðja kynslóð
Octavia af færibandinu
Kia pro_cee‘d fékk iF hönnunarverðlaunin
Kia pro_ceé d, nýjasti bíllinn frá suður-kóreska bílaframleið-
andanum, hlaut á dögunum hin eftirsóttu iF hönnunarverð-
laun. Það merkilega við þetta er að bíllinn hlýtur verðlaunin
áður en hann kemur á markað, að því er fram kemur í til-
kynningu Öskju, umboðsaðila Kia. Þar segir enn fremur:
„Kia bilar hafa vakið mikla athygli á undanförnum árum
fyrir fallega hönnun og frá árinu 2009
hefur bílaframleiðandinn fengið alls
20 hönnunarverðlaun, þar af fimm iF
hönnunarverðlaun, sem eru með þeim
eftirsóttustu í heimi.
Þjóðverjinn Peter Schreyer er yfir-
hönnuður Kia og hann á tvímælalaust
stærstan heiðurinn af þessari miklu
velgengni Kia á hönnunarsviðinu.
Schreyer var áður aðalhönnuður VW-samsteypunnar og er
m.a. ábyrgur fyrir hönnun bíla eins og nýju Bjöllunnar, Audi
A6 og A3 og Audi TT. Ráðning hans virðist hafa skilað sér því
Kia hefur sópar að sér hönnunarverðlaunum síðan Þjóðverj-
inn snjalli kom yfir í herbúðir suður-kóreska fyrirtækisins.
Kia pro cee‘d, sem nú var verðlaunaður, er þriggja dyra bíll
með sportlegar línur. Hann kemur
á markað næsta vor. Dómnefndin
í valinu var skipuð 30 sérfræðing-
um úr bílageiranum og lagði mat á
þætti eins og hönnun, gæði, útlit,
nýjungar, virkni og öryggi.“
Kia pro_cee´d er væntanlegur á
markað næsta vor.
„Öryggi
farþega og
ökumanns
tryggja
meðal
annars níu
loftpúðar,
þar af einn
til verndar
hnjám
öku-
manns.“
Erlendir bílasérfræðingar segja að bíll-
inn sé meðal laglegustu bíla Volkswa-
gen-samsteypunnar.
F ramleiðsla er hafin á nýjum Skoda Octavia, þriðju kynslóð, í verksmiðj-um tékkneska bílaframleiðandans í
Mlada Boleslav. Verksmiðjan var endurnýj-
uð í því hléi sem myndaðist milli framleiðslu
þeirrar gerðar sem verið hefur í framleiðslu
og hinnar nýju. Myndir hafa borist af hinum
vinsæla bíl og óhætt er að segja að ný Oc-
tavia sé glæsileg en bíllinn hefur verið með
þeim söluhæstu hér á landi. Þar hafa farið
saman gæði og gott verð.
Nýja Octavian er byggð á sama MQB
undirvagni og nýr Volkswagen Golf, sjönda
kynslóð, sem kynntur var á bílasýning-
unni í París í haust og Hekla hefur auglýst
að sé væntanlegur á markað hér á landi.
Audi A3 og Seal Leon eru einnig með sama
undirvagn en allar þessar bílgerðir tilheyra
Volkswagen móðurfélaginu. Langbaksút-
færsla Octavia kemur á markaðinn næsta
sumar og enn síðar fjórhjóladrifin gerð. Þá
hefur framleiðsla kraftaútgáfunnar, RS,
einnig verið staðfest.
Vélarnar sem í boði verða eru þær sömu
og í A3, Golf og Leon, 3 bensínvélar, allt að
178 hestaafla vélar og 2 dísilvélar, allt að 148
hestafla. Bíllinn léttist frá forveranum um
allt að 102 kílóum, eftir búnaði. Bíllinn er
samt 9 cm lengri og 4,5 cm breiðari en var.
Þá er til muna lengra milli hjóla en á fyrri
gerð, svo munar 10,8 cm. Skottrými bílsins
er 590 lítrar. Helstu mál eru: Lengd 4659
mm, breidd 1844 mm og lengd milli hjóla
2686 mm. Fótapláss er það mesta sem þekk-
ist í þessum stærðarflokki bíla, C-flokki,
og fylgir hin nýa Octavia þar í kjölfar stóra
bróður, Skoda Suberb, en þar er fótarými
hið mesta í þeim stærðaflokki bíla, D-flokki.
Í umsögn erlendra bílasérfræðinga kemur
fram að hinn nýi Skoda Octavia sé meðal
laglegustu bíla Volkswagen-samsteypunnar.
Skodaverksmiðjurnar í Tékklandi binda
miklar vonir við sölu þessa bíls enda búist
við að hann verði ein helsta uppistaðan í
sölu verksmiðjanna. Þar á bæ ætla menn að
sala Skoda verði komin í 1,5 milljón bíla á ári
árið 2018. Alls hafa verksmiðjurnar framleitt
3,7 milljónir Octavia frá því að framleiðsla
þessarar fornfrægu gerðar Skoda hófst að
nýju árið 1996.
Innra rými er í senn glæsilegt og nútíma-
legt og öryggi farþega og ökumanns tryggja
meðal annars níu loftpúðar, þar af einn til
verndar hnjám ökumanns.
Flottur að framan. Hinn
nýi Skoda Octavia er meðal
annarra bíla Volkswagen-sam-
steypunnar, byggður á sama
undirvagni og nýr Volkswagen
Golf sem kynntur var í haust
og er væntanlegur á íslenskan
markað innan skamms.
Skoda Octavia, árgerð 2013, er meðal laglegustu bíla í
Volkswagen-fjölskyldunni allri, þ.e. VW, Skoda, Seat og Audi.
Nútímaleg innrétting. Bíllinn er
meðal annars búinn níu loftpúðum.