Fréttatíminn - 21.12.2012, Page 88
Helgin 21.-23. desember 201288 tíska
Tíska „second hand“ í aTmo
9 Líf tískufatnaður
fyrir góðan málstað
Verslunin 9 Líf selur notaðan fatnað sem safnast hefur á vegum Rauða krossins og rennur stærsti
hluti ágóðans til samtakanna. Verslunin þykir kærkomin í fjölbreytta flóru hönnunar- og verslu-
narhúsnæðisins Atmo við Laugaveg. „Nauðsynlegur valmöguleiki að geta endurnýtt á þennan
hátt,“ segir verslunar stýran.
Verslunin 9 líf er í Atmo við Laugaveg. Verslunarstýran
segir það frábært hve opnir Íslendingar eru að verða
fyrir endurnýtingu á fatnaði.
Þ etta er okkar lóð á vogarskálarnar því mikilvægi þess að endurnýta hluti er ótvírætt,“ segir Hildur Rósa Konráðs-
dóttir, verslunarstýra 9 Líf. Verslunin selur not-
uð föt sem sérvalin eru af flokkunarstöð Rauða
krossins. Ágóði sölunnar rennur að stærstum
hluta til starfsemi Rauða kross Íslands. „Ég fer
í flokkunarstöðina og vel úr ásamt samstarfs-
fólki mínu. Við höfðum af því veður að Rauða
krossinum bærist mikið magn af fatnaði og
stór hluti þess væri sendur út fyrir landstein-
ana. Okkur langaði að nýta þetta betur hér
innanlands og við höfum fundið fyrir mikilli
ánægju með framtakið.“ Athygli vekur að
fatnaðurinn sem seldur er í versluninni er því
ekki innfluttur, líkt og tíðkast í öðrum „second
hand“ verslunum og hefur því aðeins gengið
Íslendinga á milli
sem er óneitanlega
hlýleg tilhugsun
og slíkt verður að
teljast afar um-
hverfisvænt.
Hildur Rósa
segir að kostir
þess að kaupa
„second hand“
séu ótal margir.
„Gömlu efnin eru
oft vandaðri og
endingarbetri en
þau nýju. Um dag-
inn kom hingað
kona og keypti
tvö ullarteppi til
að gefa í jólagjafir. Mér þótti mjög vænt um að
augu fólks væru að opnast fyrir því að verð-
mæti hlutanna rýrni ekki við það að hafa verið
notaðir áður. Ef hluturinn er vel farinn stenst
hann fyllilega samanburð og verður jafnvel
eilítið sérstakari fyrir vikið.“ Hildur segir að
samstarfið við Atmo gangi mjög vel og gaman
sé að fjölbreytni verslunarhúsnæðisins. „Það er
mjög gaman að vera hér í bland við alla þessa
fallegu hönnun og vegna fjölbreytileikans ættu
allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og mér
þykir það alveg nauðsynlegur valmöguleiki að
geta endurnýtt á þennan hátt.“
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Grensásvegur 8 - S ím i : 517 2040
SKÓ
MARKAÐURINN
S KÓ M A R K A Ð U R
Opið
mánud-föstud. 11-18
laugard. 11-16
Grensásvegi 8
Mikið úrval af
herraskóm fyrir jólin
Jólin
koma !
Vorum að taka upp
frábæran náttfatnað
Kjólar frá 7.990 kr.
Hamraborg 20 S. 544 4088Ynja undirfataverslun
Undirföt
Náttföt
Náttkjólar
Sloppar
Gjafakort
Opið 11 - 21 alla
daga til jóla
Bæjarlind 6, sími 554-7030
Eddufelli 2, sími 557-1730
www.rita.is Ríta tískuverslun
Jólakjólar
Munið gjafakortin
enginn gildistími