Bændablaðið - 24.01.2013, Page 15
15Bændablaðið | Fimmtudagur 24. janúar 2013
Rá
ða
nd
i -
a
ug
lý
sin
ga
st
of
a
eh
f
BYLTING Í SÓTTHREINSUN
Sagewash sótthreinsikerfið
Hlutlaust efni sem drepur
bakteríur sem valdið geta
sýkingum, ásamt því að halda
tækjum, gólfi og veggjum
skínandi hreinum. Hafðu
samband við ráðgjafa KEMI
og fáðu nánari upplýsingar.
- Stuðningsmenn
VELJUM KJARTAN
TIL FORYSTU
Prófkjör sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi
26. janúar 2013
Velkomin í kosningamiðstöð
Kjartans í Tryggvaskála, Selfossi.
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Með yfirburði í lestri prentmiðla á landsbyggðinni
Starfshópur, undir formennsku
Jóns Loftssonar skógræktar-
stjóra, sem unnið hefur að gerð
stefnumótunar í skógrækt hefur
skilað tillögum sínum til Svandísar
Svavarsdóttur umhverfis- og
auðlindaráðherra. Nefndin, sem
var skipuð árið 2006, hefur unnið
greinargerð með stefnumarkandi
tillögum um áherslur í skóg-
ræktarstarfinu sem hún kynnti
ráðherra í gær.
Í nefndinni sátu fulltrúar
Landshlutaverkefna í skógrækt,
Landssamtaka skógareigenda og
Skógræktarfélags Íslands. Jafnframt
voru drög að greinargerð nefndar-
innar send í almenna kynningu
árið 2010 og bárust þá fjölmargar
ábendingar og athugasemdir sem
voru til leiðsagnar við endanlega
gerð greinargerðarinnar.
Í greinargerðinni er fjallað um
ýmsa þætti skógræktar og hvernig
skógræktaraðilar hyggjast móta og
skipuleggja starf sitt. Þar á meðal
eru markmið um uppbyggingu
skógarauðlindar, endurheimtar
náttúruskóga, hlutverki við bætta
lýðheilsu og útivist og loftslags-
málum svo nokkur mikilvæg atriði
séu nefnd. Jafnframt eru þar tillögur
um gerð heildstæðrar landsáætlunar í
skógrækt, sem framtíðar stjórntækis
til að vinna að framgangi stefnu-
mörkunarinnar.
Stefnumörkun um skóga og
skógrækt á Íslandi er að finna á ýmsum
stöðum; í lögum og reglugerðum,
áætlunum og alþjóðasamningum,
en hana er ekki hægt að finna með
heildstæðum hætti á aðgengilegu
formi. Með greinargerðinni er
ætlun in að bæta úr með þvi að draga
saman og leggja fram heildarstefnu
í skógræktarmálum.
Stefnumörkun
um skógrækt