Bændablaðið - 31.10.2013, Qupperneq 1
21. tölublað 2013 Fimmtudagur 31. október Blað nr. 406 19. árg. Upplag 31.000
á haustin. Þá koma menn gjarnan saman, slá upp hátíð, gera sér glaðan dag
og halda sýningar þar sem fé sem þykir skara fram úr í gæðum fær sína dóma.
Félag sauðfjárbænda í Rangárvallasýslu hélt þannig Dag sauðkindarinnar
hátíðlegan hinn 19. október síðastliðinn. Auðvitað fékk unga fólkið að fylgjast
með og hér er Viðar Steinarsson á Kaldbak með Viðar Frey í fanginu sem er
þokkalega stoltur og með verðlaunum í hendi fyrir efsta lambhrútinn. – Sjá
nánar bls. 7 Mynd / Einar Magnússon
Íslenski sveppamassinn bannaður í lífrænni ræktun:
Að óbreyttu leggst lífrænt vottuð
grænmetisframleiðsla af
– framleiðendur í lífrænum búskap telja óraunhæft að hægt sé að mæta kröfum Vottunarstofunnar Túns um slíka ræktun
Frá því var greint í Bændablaðinu
hinn 3. október síðastliðinn
að notkun sveppamassa sem
áburðargjafa í lífrænt vottuðum
landbúnaði væri á undanþágu til
næsta ræktunartímabils. Þórður
Halldórsson, Akri í Laugarási,
er formaður Félags framleiðenda
í lífrænum búskap. Hann segir
óraunhæft fyrir bændur sem
framleiða lífrænt vottað grænmeti,
ávexti og krydd að mæta þessum
kröfum.
Gunnar Gunnarsson frá Vottunar-
stofunni Túni sagði í blaðinu 3.
október síðastliðinn að notast væri við
ákvæði sem heimiluðu undanþágur
á meðan lífræn búfjárrækt væri að
byggjast upp í einstökum löndum.
Nú væri hins vegar komið að því að
framleiðendur kæmu sínum málum
í lag.
Jarðvegur Flúðasveppanna
Sveppamassinn, stundum kallaður
rotmassi, er sá jarðvegur sem
Flúðasveppir spretta úr. Í sveppamassa
er meðal annars notaður hænsnaskítur
úr hefðbundinni hænsnarækt og það
er ástæða bannsins.
Rótin að umfjöllun
Bænda blaðsins um
þetta mál er grein
sem birtist í blaðinu
4. júlí síðastliðinn,
með fyrirsögninni
Sveppamassi
bannaður frá
og með 1. júlí
2013. Hana skrifaði
Christina Stadler,
kennari við Landbúnaðar-
háskóla Íslands.
Í greininni var greint frá
niðurstöðum verkefnis
sem Christina Stadler
stýrði, en tilgangur
þess var einmitt
að kanna hvaða
áburður gæti
komið í staðinn
fyrir sveppa-
massann í
lífrænni ræktun. Þar
kemur fram að það sé
lítil sem engin lífræn
ræktun hænsnfugla og því
falli lítið til af vottuðum slíkum
skít – sem gæti hentað í lífrænt vottaðan
eða viðurkenndan sveppamassa.
Niðurstaða verkefnisins er að molta
úr búfjáráburði er talin vera jafngóð
sveppamassanum og fiskimjöl enn
betra.
Aðgengi ekki fyrir hendi
Þórður segir að félagið hafi ekki tekið
formlega afstöðu til ákvörðunar Túns.
Það sé hins vegar ljóst að aðgengi
að nothæfum áburði, í svipuðum
gæðaflokki, sé ekki fyrir hendi.
Frekar er rætt við Þórð um málið
á blaðsíðu 2. /smh
Hollenskt fjárfestingarfyrir-
tæki, EsBro, hefur hug á því að
byggja stórt gróðurhús í nágrenni
Grindavíkur og rækta þar tómata
til útflutnings. Ef verkefnið verður
að veruleika yrði um 15 hektara
gróðurhús að ræða. Magnús
Ágústsson, garðræktarráðunaut-
ur hjá Ráðgjafarmiðstöð land-
búnaðarins, telur litlar líkur á að
verkefni af þessu tagi geti borið sig.
Allt að 6,5 milljarða dæmi
Að því er fram kom á kynningar-
fundi í Grindavík fyrr í mánuðinum
verður kostnaður við uppbygginguna
á bilinu 5 til 6,5 milljarðar króna og
myndu um 125 ný störf skapast ef
af yrði. Þá kom einnig fram að búið
væri að semja við birgja í Bretlandi
um smásölu á tómötunum.
Fyrir tveimur árum síðan var undir-
ritaður samningur milli Orkuveitu
Reykjavíkur og Geogreenhouse ehf.
um uppbyggingu á stóru ylræktar-
veri til tómataframleiðslu í nágrenni
Hellisheiðarvirkjunar. Um mjög
áþekkt verkefni var að ræða og það
sem EsBro hefur nú kynnt. Enn hefur
hins vegar ekki orðið neitt úr þeim
framkvæmdum.
Vekur margar spurningar
„Þetta kemur mér nú spánskt fyrir
sjónir, ég verð að segja eins og er,"
segir Magnús Ágústsson „Rekstur
fyrirtækja af þessu tagi í Hollandi
gengur nú ekki allt of vel. Þó að
horft sé til ódýrari orku hér á landi
þarf umtalsvert meiri lýsingu en úti
í Hollandi til að ná sama árangri.
Hér á landi er algengast að verið
sé að nota 220 vött á fermetra en
þessir aðilar eru að tala um að nota
80 til 100 vött á fermetra. Með því
væru þeir búnir að búa til svipaðar
aðstæður og eru úti í Hollandi, en
án lýsingar.“
Magnús segir að fleiri atriði veki
spurningar.
„Þarna er sagt að um lífræna
ræktun verði að ræða. Ef svo er má
ekki nota tilbúinn áburð og ég velti
fyrir mér hvar þeir ætli að nálgast
lífrænan áburð. Samkvæmt reglum
hér má heldur ekki rækta lífræna
tómata nema í jarðvegi hér á landi.
Það má sem sagt ekki rækta í fötum
eða pokum. Hvar er sá jarðvegur sem
til þarf þarna í Grindavík? Í ofanálag
er tveggja ára aðlögunartími að líf-
rænni ræktun hér á landi en á það
hefur ekki verið minnst.“
Skýjaborgir
Magnús segist telja að þarna séu
menn að reisa skýjaborgir.
„Mér finnst verst ef Grindvíkingar
verða plataðir inn í þetta. Það verð
sem tíðkast á tómötum úti er þannig
að ég sé ekki að þetta geti gengið.“
/fr
Risatómataver í Grindavík
talið vera skýjaborgir
– margt vanhugsað í dæminu segir garðræktarráðunautur hjá RML
16
Yngsti kúabóndinn ræsti
nýja ostalínu MS á Akureyri
26
Óveðurspeysa
Aðalheiðar Láru
Guðmundsdóttur
heitir Kafla
34
Nautgriparæktin
á tímamótum