Bændablaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 34

Bændablaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 31. október 2013 Nautgriparæktin á tímamótum Um 370 manns mættu á haustfundi Landssambands kúabænda sem haldnir voru á fjórtán stöðum víðs vegar um land, dagana 15. til 23. október. Þegar þetta er ritað á eftir að halda fund á Ísafirði, en honum var frestað vegna veðurs. Á fundunum fóru forsvarsmenn Landssambands kúabænda, ásamt forsvarsmönnum Auðhumlu, yfir stöðu mjólkurframleiðslunnar á þeim tímamótum sem hún er nú á. Sala mjólkurafurða, einkum þeirra fituríkari, gengur betur en dæmi eru um áður. Á sama tíma hefur framleiðslan heldur dregist saman. Standa bændur nú frammi fyrir því að greitt verður fullt afurðastöðverð fyrir alla innvegna mjólk umfram greiðslumark, frá októberbyrjun til áramóta í ár. Sem dæmi um gang sölunnar var sala á smjöri 26% meiri í september 2013 en hún var í sama mánuði í fyrra. Slík söluaukning er fordæmalaus, þótt reyndar hafi söluaukning á fitu síðastliðin tíu ár verið tvöfalt hraðari en á próteininu. Þá hefur verið gerð tillaga að meiri aukningu greiðslumarksins á næsta ári en dæmi eru um, úr 116 milljónum lítra í 123 milljónir lítra. Á fundunum kom fram að verið er að vinna að breytingum á verðhlutföllum fyrir fitu (25%) og prótein (75%) í afurðastöðvaverði, með það að markmiði að auka vægi fitunnar verulega. Þá standa líkur til að greitt verði fullt afurðastöðvaverð fyrir alla innvegna mjólk á næsta ári einnig, en ákvörðun um slíkt ætti að liggja fyrir í marsmánuði 2014, að teknu tilliti til birgðastöðu. Við slíkar aðstæður er virði greiðslumarksins talsvert umhugsunarefni. Markaðsstaða mjólkurafurða er bændum mikið gleðiefni og felur í sér einstök tækifæri fyrir greinina til að auka tekjur, þróast og sækja fram. Lyfta þarf grettistaki til 2021 Ef tiltölulega hófstillt spá um sölu á fitugrunni næstu átta árin gengur eftir þarf mjólkurframleiðslan að vera komin í um 135 milljónir lítra árið 2021. Samkvæmt mannfjöldaspá Hagstofunnar verða landsmenn orðnir um 345.000 talsins og fjöldi ferðamanna 1,5 til 2 milljónir árlega. Til þess að anna svo stórum markaði þarf að lyfta grettistaki á flestum sviðum innan mjólkurframleiðslunnar. Í fyrsta lagi er nauðsynlegt að stöðva þá þróun að kúnum fækki ár frá ári, en að jafnaði hefur kúnum fækkað um 1,1% á ári síðastliðin 20 ár. Á sama tíma þarf að auka meðalafurðir um 50-70 kg á ári, tvöfalt til þrefalt meira en undanfarin 5 ár. Þá þarf einnig að auka endingu kúnna umtalsvert, en þær endast að jafnaði í tvö ár og átta mánuði (973 dagar líða frá fyrsta burði að förgun). Hér á landi eru kvígur um tveggja og hálfs árs gamlar að jafnaði þegar þær bera fyrsta kálfinum. Það er nokkuð eldra en gengur og gerist í nálægum löndum og felur í sér verulegan kostnað fyrir bændur. Burðaraldurinn þarf því að lækka. Einnig þarf að draga úr þeim af föllum sem verða á kvígum í uppeldi, en um 20% af ásettum kvígum ná aldrei að verða mjólkurkýr, af ýmsum ástæðum. Þá er geldstaðan óþarflega löng, bil á milli fyrsta og annars burðar er að jafnaði rúmlega 400 dagar. Að lokum má geta þess að mjólkuriðnaðurinn hefur nú ráðið dýralækni til mjólkureftirlitsins, m.a. til að vera bændum sem glíma við króníska júgurbólgu til ráðgjafar. Sé litið til næstu mánaða eru þau úrræði nærtækust að seinka slátrun og sést þess þegar staður, enda dróst kúaslátrun saman um 14% í september, miðað við sama mánuð í fyrra. Þá má víða auka fóðurstyrk með aukinni kjarnfóðurgjöf. Mikilvægt er að fleiri bændur geri fóðuráætlanir og nýti sér alla tiltæka ráðgjöf til að aukin kjarnfóðurgjöf skili tilætluðum árangri og arðsemi. Núverandi staða felur því í sér mikla áskorun fyrir ráðgjafar- þjónustuna. Aukin fagmennska í nautakjötsframleiðslu Fyrstu sjö mánuði ársins var inn- flutningur nautgripakjöts svipaður og á sama tíma í fyrra. Fyrirsjáanlegt er að hann muni aukast með vaxandi samdrætti í slátrun kúa, þá hefur ásetningur nautkálfa farið minnkandi. Enda er það svo að stjórnvöld hafa nýverið gefið út reglugerð 877/2013 um úthlutun á opnum tollkvótum vegna innflutnings á hakkefni úr nautgripa kjöti. Hliðstæðar reglu gerðir hafa verið gefnar út undanfarin ár. Þannig hafa stjórnvöld sýnt að þau eru tilbúin að slaka á tollverndinni eftir því sem þurfa þykir. Í ljósi þess að forsvarsmenn LK hafa á undanförnum árum ítrekað rætt möguleika á því við stjórnvöld hvernig auka megi skilvirkni nautakjöts framleiðslunnar og skjóta undir hana traustari stoðum sem sjálfstæða búgrein, skýtur það mjög skökku við að reglugerðir um opna tollkvóta hafi á sama tíma verið einu skilaboð stjórnvalda til nautakjötsframleiðenda! Það er þó ljóst að mikil tækifæri eru til að auka fagmennsku í nautakjötsframleiðslunni. Það mátti t.d. sjá í veffræðsluerindi Þóroddar Sveinssonar, lektors við LBHÍ á heimasíðu LK, naut.is, sem flutt var á dögunum. Þar kom m.a. fram að eldistími nauta hér á landi er 25 mánuðir, samanborið við 16 mánuði í nálægum löndum. Það leiðir af sér að fóðurnotkun pr. kg falls er u.þ.b. 70% meiri hér á landi en í nágranna- löndunum, vegna mikils fóðurs sem fer til viðhaldsþarfa. Styttri eldistími og kraftmeiri fóðrun skilar margfaldri framlegð á við langan eldistíma á kraftlitlu fóðri. Á fundunum var einnig farið yfir stöðu á endurnýjun á erfðaefni holdanautastofnanna, sem verið hefur til umfjöllunar hjá LK samfellt í fjögur ár. Hugur LK stendur til að sækja um innflutning á holdanautasæði sem ætlað væri til almennrar dreifingar, að því gefnu að niðurstaða áhættumats verði jákvæð. Umsókn þar að lútandi var afgreidd af stjórn samtakanna á stjórnarfundi í september, ásamt ítarlegum heilbrigðiskröfum. Staða þess máls er sú að ráðherra hefur ákveðið að gera áhættumat annars vegar á beinum innflutningi sæðis og fósturvísa á almenn bú, hins vegar á innflutningi sæðis og fósturvísa í einangrunarstöð. Síðari kosturinn er óheyrilega tímafrekur, gríðarlega kostnaðarsamur og ljóst er að nautakjötsframleiðslan getur engan veginn staðið undir slíkum rekstri til langframa. Fyrirmyndarbú Á haustfundunum var lítillega tæpt á vinnu LK og SAM við gerð leiðbeininga um góða búskaparhætti. Ljóst er að slíkar leiðbeiningar, með tilvísunum í reglur og lög, verða afar umfangsmikið plagg. Því hefur verið ákveðið að gefa leiðbeiningarnar einnig út á samanþjöppuðu formi, sem fengið hefur vinnuheitið Stefna LK og SAM um fyrirmyndarbú. Stefna þessi tekur á flestum grunnstoðum mjólkur framleiðslunnar; mjólkur- gæðum, matvælaöryggi, dýravelferð og umhverfismálum. Vonast er til að þessari vinnu ljúki fyrir aðalfund LK 2014. Daginn fyrir aðalfundinn, fimmtudaginnn 27. mars næstkomandi, hyggst LK halda fagþing nautgriparæktarinnar 2014, sem ætlað er að nýtist sem vettvangur fyrir miðlun á fagefni fyrir greinina, bæði á sviði mjólkur- og nautakjötsframleiðslu. /BHB Á annað hundrað manns mættu á á fyrsta haustfund Lands sambands kúa bænda (LK) sem haldinn var í Þing borg í Flóa þriðjudags- kvöldið 15. október síðast liðinn. Framsögumenn voru Sigurður Loftsson, for maður LK, Baldur Helgi Benjamíns son, framkvæmdastjóri LK, og Einar Sigurðs son, forstjóri MS, en sérstakur gestur fundarins var sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson. Á fundinum biðlaði forstjóri MS til kúabænda að framleiða meiri mjólk með öllum tiltækum ráðum vegna gríðarlegar sölu á mjólkurafurðum, ekki síst íslenska smjörinu, rjóma, skyri og feitum ostum. Fram kom í máli Einars að fitusalan í mjólk árið 2013 yrði 4 milljónum lítra meiri en 2012. 1,5 milljónir lítra eru vegna f j ö l g u n a r neytenda á milli ára og 2,5 milljónir lítra vegna meiri fitusölu á mann. Ekkert bendir til þess að hægi á þessari þróun því áhersla l ands manna liggur í minni k o l v e t n i s - neyslu og gjör- breyttu við- horfi gagn vart mettaðri fitu. /MHH Sigurður Loftsson, formaður LK, sagði á haustfundi í Þingborg á Suðurlandi að kúabændur yrðu að stöðva fækkun í kúastofnunum til að þjóna markaðnum. Kúnum hefur fækkað að meðaltali um 1,1 % á ári síðustu 20 ár. Í dag er um 24.000 kýr í landinu en þeim þyrfti að fjölga um nokkur þúsund á næstu árum til að anna eftirspurn eftir mjólkurvörum. Mynd / MHH Biðlað til kúabænda um að framleiða meiri mjólk Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kom víða við í erindi sínu og hvatti bændur til dáða í framleiðslu sinni. Hann fagnaði sérstaklega mikilli söluaukningu á mjólkurafurðum og hvað neytendur væru ánægðir með vörurnar frá kúabændum. Myndir / MHH Baldur Helgi fjallaði m.a. um stöðuna á nautakjöts- markaðnum og sagði að nú þegar væri búið að flytja inn 105 tonn af kjöti fyrstu sjö mánuði ársins 2013 og að innflutningur ætti eftir að aukast mikið. Þá gerði hann grein fyrir stöðunni á verkefninu um endurnýjun á erfðaefni holdanauta. Fjölgið kúnum, fjölgið kúnum, voru einkunnarorð Einars Sigurðssonar, forstjóra MS, á fundinum. Hann varpaði mörgum mjög áhugaverðum glærum á tjaldið, sem sýndu stöðuna svart á hvítu. Hann biðlaði til kúabænda og bað um meiri mjólk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.