Bændablaðið - 31.10.2013, Síða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 31. október 2013
Nautgriparæktin á tímamótum
Um 370 manns mættu á haustfundi
Landssambands kúabænda sem
haldnir voru á fjórtán stöðum víðs
vegar um land, dagana 15. til 23.
október.
Þegar þetta er ritað á eftir að
halda fund á Ísafirði, en honum
var frestað vegna veðurs. Á
fundunum fóru forsvarsmenn
Landssambands kúabænda, ásamt
forsvarsmönnum Auðhumlu, yfir
stöðu mjólkurframleiðslunnar á
þeim tímamótum sem hún er nú á.
Sala mjólkurafurða, einkum þeirra
fituríkari, gengur betur en dæmi
eru um áður. Á sama tíma hefur
framleiðslan heldur dregist saman.
Standa bændur nú frammi fyrir því
að greitt verður fullt afurðastöðverð
fyrir alla innvegna mjólk umfram
greiðslumark, frá októberbyrjun til
áramóta í ár.
Sem dæmi um gang sölunnar var
sala á smjöri 26% meiri í september
2013 en hún var í sama mánuði í fyrra.
Slík söluaukning er fordæmalaus,
þótt reyndar hafi söluaukning á
fitu síðastliðin tíu ár verið tvöfalt
hraðari en á próteininu. Þá hefur
verið gerð tillaga að meiri aukningu
greiðslumarksins á næsta ári en dæmi
eru um, úr 116 milljónum lítra í 123
milljónir lítra.
Á fundunum kom fram að
verið er að vinna að breytingum á
verðhlutföllum fyrir fitu (25%) og
prótein (75%) í afurðastöðvaverði,
með það að markmiði að auka vægi
fitunnar verulega. Þá standa líkur til
að greitt verði fullt afurðastöðvaverð
fyrir alla innvegna mjólk á næsta ári
einnig, en ákvörðun um slíkt ætti að
liggja fyrir í marsmánuði 2014, að
teknu tilliti til birgðastöðu. Við slíkar
aðstæður er virði greiðslumarksins
talsvert umhugsunarefni.
Markaðsstaða mjólkurafurða er
bændum mikið gleðiefni og felur í
sér einstök tækifæri fyrir greinina til
að auka tekjur, þróast og sækja fram.
Lyfta þarf grettistaki til 2021
Ef tiltölulega hófstillt spá um sölu
á fitugrunni næstu átta árin gengur
eftir þarf mjólkurframleiðslan að
vera komin í um 135 milljónir lítra
árið 2021. Samkvæmt mannfjöldaspá
Hagstofunnar verða landsmenn
orðnir um 345.000 talsins og fjöldi
ferðamanna 1,5 til 2 milljónir árlega.
Til þess að anna svo stórum markaði
þarf að lyfta grettistaki á flestum
sviðum innan mjólkurframleiðslunnar.
Í fyrsta lagi er nauðsynlegt að
stöðva þá þróun að kúnum fækki ár frá
ári, en að jafnaði hefur kúnum fækkað
um 1,1% á ári síðastliðin 20 ár. Á
sama tíma þarf að auka meðalafurðir
um 50-70 kg á ári, tvöfalt til þrefalt
meira en undanfarin 5 ár.
Þá þarf einnig að auka endingu
kúnna umtalsvert, en þær endast að
jafnaði í tvö ár og átta mánuði (973
dagar líða frá fyrsta burði að förgun).
Hér á landi eru kvígur um tveggja
og hálfs árs gamlar að jafnaði þegar
þær bera fyrsta kálfinum. Það er
nokkuð eldra en gengur og gerist
í nálægum löndum og felur í sér
verulegan kostnað fyrir bændur.
Burðaraldurinn þarf því að lækka.
Einnig þarf að draga úr þeim af föllum
sem verða á kvígum í uppeldi, en um
20% af ásettum kvígum ná aldrei
að verða mjólkurkýr, af ýmsum
ástæðum.
Þá er geldstaðan óþarflega löng,
bil á milli fyrsta og annars burðar er
að jafnaði rúmlega 400 dagar.
Að lokum má geta þess að
mjólkuriðnaðurinn hefur nú ráðið
dýralækni til mjólkureftirlitsins,
m.a. til að vera bændum sem glíma
við króníska júgurbólgu til ráðgjafar.
Sé litið til næstu mánaða eru þau
úrræði nærtækust að seinka slátrun
og sést þess þegar staður, enda
dróst kúaslátrun saman um 14% í
september, miðað við sama mánuð í
fyrra. Þá má víða auka fóðurstyrk með
aukinni kjarnfóðurgjöf. Mikilvægt er
að fleiri bændur geri fóðuráætlanir
og nýti sér alla tiltæka ráðgjöf til að
aukin kjarnfóðurgjöf skili tilætluðum
árangri og arðsemi.
Núverandi staða felur því í
sér mikla áskorun fyrir ráðgjafar-
þjónustuna.
Aukin fagmennska í
nautakjötsframleiðslu
Fyrstu sjö mánuði ársins var inn-
flutningur nautgripakjöts svipaður og
á sama tíma í fyrra. Fyrirsjáanlegt er
að hann muni aukast með vaxandi
samdrætti í slátrun kúa, þá hefur
ásetningur nautkálfa farið minnkandi.
Enda er það svo að stjórnvöld hafa
nýverið gefið út reglugerð 877/2013
um úthlutun á opnum tollkvótum
vegna innflutnings á hakkefni úr
nautgripa kjöti. Hliðstæðar reglu gerðir
hafa verið gefnar út undanfarin ár.
Þannig hafa stjórnvöld sýnt að þau
eru tilbúin að slaka á tollverndinni
eftir því sem þurfa þykir.
Í ljósi þess að forsvarsmenn LK
hafa á undanförnum árum ítrekað
rætt möguleika á því við stjórnvöld
hvernig auka megi skilvirkni
nautakjöts framleiðslunnar og
skjóta undir hana traustari stoðum
sem sjálfstæða búgrein, skýtur það
mjög skökku við að reglugerðir
um opna tollkvóta hafi á sama tíma
verið einu skilaboð stjórnvalda til
nautakjötsframleiðenda!
Það er þó ljóst að mikil tækifæri
eru til að auka fagmennsku í
nautakjötsframleiðslunni. Það mátti
t.d. sjá í veffræðsluerindi Þóroddar
Sveinssonar, lektors við LBHÍ á
heimasíðu LK, naut.is, sem flutt
var á dögunum. Þar kom m.a. fram
að eldistími nauta hér á landi er 25
mánuðir, samanborið við 16 mánuði
í nálægum löndum. Það leiðir af sér
að fóðurnotkun pr. kg falls er u.þ.b.
70% meiri hér á landi en í nágranna-
löndunum, vegna mikils fóðurs sem
fer til viðhaldsþarfa. Styttri eldistími
og kraftmeiri fóðrun skilar margfaldri
framlegð á við langan eldistíma á
kraftlitlu fóðri.
Á fundunum var einnig farið
yfir stöðu á endurnýjun á erfðaefni
holdanautastofnanna, sem verið hefur
til umfjöllunar hjá LK samfellt í
fjögur ár.
Hugur LK stendur til að sækja um
innflutning á holdanautasæði sem
ætlað væri til almennrar dreifingar, að
því gefnu að niðurstaða áhættumats
verði jákvæð. Umsókn þar að lútandi
var afgreidd af stjórn samtakanna á
stjórnarfundi í september, ásamt
ítarlegum heilbrigðiskröfum. Staða
þess máls er sú að ráðherra hefur
ákveðið að gera áhættumat annars
vegar á beinum innflutningi sæðis
og fósturvísa á almenn bú, hins vegar
á innflutningi sæðis og fósturvísa í
einangrunarstöð. Síðari kosturinn
er óheyrilega tímafrekur, gríðarlega
kostnaðarsamur og ljóst er að
nautakjötsframleiðslan getur engan
veginn staðið undir slíkum rekstri til
langframa.
Fyrirmyndarbú
Á haustfundunum var lítillega
tæpt á vinnu LK og SAM við gerð
leiðbeininga um góða búskaparhætti.
Ljóst er að slíkar leiðbeiningar, með
tilvísunum í reglur og lög, verða afar
umfangsmikið plagg. Því hefur verið
ákveðið að gefa leiðbeiningarnar
einnig út á samanþjöppuðu formi, sem
fengið hefur vinnuheitið Stefna LK
og SAM um fyrirmyndarbú. Stefna
þessi tekur á flestum grunnstoðum
mjólkur framleiðslunnar; mjólkur-
gæðum, matvælaöryggi, dýravelferð
og umhverfismálum. Vonast er
til að þessari vinnu ljúki fyrir
aðalfund LK 2014. Daginn fyrir
aðalfundinn, fimmtudaginnn 27.
mars næstkomandi, hyggst LK
halda fagþing nautgriparæktarinnar
2014, sem ætlað er að nýtist sem
vettvangur fyrir miðlun á fagefni fyrir
greinina, bæði á sviði mjólkur- og
nautakjötsframleiðslu. /BHB
Á annað hundrað manns mættu á
á fyrsta haustfund Lands sambands
kúa bænda (LK) sem haldinn var
í Þing borg í Flóa þriðjudags-
kvöldið 15. október síðast liðinn.
Framsögumenn voru Sigurður
Loftsson, for maður LK, Baldur Helgi
Benjamíns son, framkvæmdastjóri
LK, og Einar Sigurðs son, forstjóri
MS, en sérstakur gestur fundarins
var sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson.
Á fundinum biðlaði forstjóri MS
til kúabænda að framleiða meiri mjólk
með öllum tiltækum ráðum vegna
gríðarlegar sölu á mjólkurafurðum,
ekki síst íslenska smjörinu, rjóma,
skyri og feitum ostum. Fram kom í
máli Einars að fitusalan í mjólk árið
2013 yrði 4 milljónum lítra meiri en
2012. 1,5 milljónir
lítra eru vegna
f j ö l g u n a r
neytenda á
milli ára og 2,5
milljónir lítra
vegna meiri
fitusölu á mann.
Ekkert bendir
til þess að hægi
á þessari þróun
því áhersla
l ands manna
liggur í minni
k o l v e t n i s -
neyslu og gjör-
breyttu við-
horfi gagn vart
mettaðri fitu.
/MHH
Sigurður Loftsson, formaður LK, sagði á haustfundi í Þingborg á Suðurlandi að
kúabændur yrðu að stöðva fækkun í kúastofnunum til að þjóna markaðnum.
Kúnum hefur fækkað að meðaltali um 1,1 % á ári síðustu 20 ár. Í dag er um
24.000 kýr í landinu en þeim þyrfti að fjölga um nokkur þúsund á næstu
árum til að anna eftirspurn eftir mjólkurvörum. Mynd / MHH
Biðlað til kúabænda um að framleiða meiri mjólk
Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kom víða við í erindi sínu og hvatti bændur
til dáða í framleiðslu sinni. Hann fagnaði sérstaklega mikilli söluaukningu á mjólkurafurðum og hvað neytendur
væru ánægðir með vörurnar frá kúabændum. Myndir / MHH
Baldur Helgi fjallaði m.a.
um stöðuna á nautakjöts-
markaðnum og sagði að
nú þegar væri búið að
flytja inn 105 tonn af kjöti
fyrstu sjö mánuði ársins
2013 og að innflutningur
ætti eftir að aukast mikið.
Þá gerði hann grein fyrir
stöðunni á verkefninu um
endurnýjun á erfðaefni
holdanauta.
Fjölgið kúnum,
fjölgið kúnum, voru
einkunnarorð Einars
Sigurðssonar, forstjóra
MS, á fundinum. Hann
varpaði mörgum
mjög áhugaverðum
glærum á tjaldið, sem
sýndu stöðuna svart á
hvítu. Hann biðlaði til
kúabænda og bað um
meiri mjólk.