Bændablaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 31. október 2013 Sara María Davíðsdóttir, yngsti kúabóndinn á samlagssvæði MS Akureyri, ræsti nýju ostalinuna. Myndir / MÞÞ Egill Sigurðsson, stjórnar formaður MS, sagði þegar hann ávarpaði gesti í húsakynnum MS Akureyri af þessu tilefni að þessar vikurnar væri að ljúka víðtækri endur skipulagningu og endurnýjun í vinnslu- stöðvum fyrirtækisins um allt land. - „Hér í dag eru þátta skil í sögu mjólkur iðnaðar og í sögu Mjólkur- samsölunnar á Akureyri. Hér er nú ræst fullkomnasta osta vinnsla sem Íslendingar hafa átt. Hún leysir af hólmi tæki sem komin voru á þriðja ára tug í aldri. Hér er unnið úr um þriðjungi af heildar- framleiðslu mjólkur á Íslandi, um 37 milljón lítrum á ári,“ sagði Egill. Hann bætti við að með stofnun Mjólkursamsölunnar árið 2007 hefði stefnan verið mörkuð í endurskipulagningu mjólkuriðnaðar í þágu neytenda og bænda. Síðan hefði vinnslustöðvum fækkað og þær orðið sérhæfðari. Á sama tíma hefðu öll flutningakerfi verið endurnýjuð. „Árangurinn er ótvíræður og mjög mikil hagkvæmni hefur náðst í þessari starfsemi, sem skilað hefur verið til neytenda og bænda. Verð til bænda fyrir hráefni hefur hækkað verulega umfram almennt verðlag í landinu vegna þess að aðföng þeirra hafa hækkað mjög í verði eftir hrunið. Þrátt fyrir það hefur tekist að halda aftur af hækkunum á heildsöluverði til neytenda. Það byggir á þeirri hagræðingu sem náðst hefur í mjólkuriðnaðinum,“ sagði Egill Sigurðsson. Víðtæk endurnýjun hjá Mjólkursamsölunni á Akureyri: Þáttaskil í sögu mjólkur- iðnaðar á Íslandi Víðtæk endurnýjun hjá Mjólkursamsölunni á Akueryri: Yngsti kúabóndinn á samlagssvæði MS Akureyri ræsti nýja ostalínu Ný og fullkomin vinnslulína til ostagerðar hefur formlega verið tekin í notkun hjá MS Akureyri. Áætlaður kostnaður við vinnslulínuna auk tengdra framkvæmda í húsnæði mjólkurstöðvarinnar, þ.m.t. 300 fermetra viðbyggingu fyrir lager, losar einn milljarð króna. Þau Sara María Davíðsdóttir, bóndi á Torfum og yngsti kúabóndinn á samlagssvæði MS Akureyri, og osta meistarar mjólkurbúsins, Hermann Jóhannsson og Bragi Egilsson, ræstu nýju ostalínuna formlega við athöfn síðastliðinn föstudag. Dönsk ostalína Samið var við danska fyrirtækið SPX um hönnun og smíði á nýju línunni – þ.m.t. ostatönkum og ostapressum – inn í húsnæði MS Akureyri. Um miðjan ágúst var hætt ostaframleiðslu með gömlu vinnslulínunni, sem var meira en tuttugu ára gömul, og í kjölfarið hafist handa við að setja nýju línuna upp. Með henni og skipulagsbreytingum á húsnæðinu aukast afköst í ostaframleiðslu til muna á Akureyri og framleiðslu- og vöruflæði verður á allan hátt betra og markvissara. Ostagerð hefur alla tíð verið stór þáttur í mjólkurvinnslu á Akureyri – lengst af undir merkjum Mjólkursamlags KEA, síðan Norðurmjólkur og nú MS. Í ostagerðina fara á bilinu 60-65% af innveginni mjólk á Akureyri, sem á þessu ári er áætluð um 37 milljónir lítra. MS Akureyri er og hefur lengi verið langstærsti ostaframleiðandi landsins með um 40 tegundir osta og tengdra vara. / MÞÞ Sara María og Hermann Jóhannsson, ostameistari MS Akureyri. „Hér er nú ræst fullkomnasta ostavinnsla sem Íslendingar hafa átt,“ sagði Egill Sigurðsson, stjórnarformaður MS. Árleg lækkun vinnslukostnaðar meiri en tveir milljarðar Einar Sigurðsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar, sagði í ávarpi sínu að á undanförnum árum hefði Mjólkursamsalan lagt í miklar fjárfestingar. Þar væri um að ræða um átta milljarða króna á núvirði til að endurnýja aðstöðu, tæki og búnað í mjólkuriðnaðinum. Auk uppbyggingar á Akureyri er búið að flytja alla mjólkurpökkun fyrir vestan- og sunnanvert landið frá Reykjavík til Selfoss. Var tækjabúnaður vegna þess ræstur á Selfossi 11. október. Einar Sigurðsson, Sara María Davíðsdóttir, Hermann Jóhannsson og Bragi Egilsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.