Bændablaðið - 31.10.2013, Qupperneq 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 31. október 2013
Sara María Davíðsdóttir, yngsti kúabóndinn á samlagssvæði MS Akureyri, ræsti nýju ostalinuna. Myndir / MÞÞ
Egill Sigurðsson, stjórnar formaður
MS, sagði þegar hann ávarpaði
gesti í húsakynnum MS Akureyri
af þessu tilefni að þessar vikurnar
væri að ljúka víðtækri
endur skipulagningu og
endurnýjun í vinnslu-
stöðvum fyrirtækisins
um allt land. - „Hér
í dag eru þátta skil í
sögu mjólkur iðnaðar
og í sögu Mjólkur-
samsölunnar á
Akureyri. Hér er nú
ræst fullkomnasta
osta vinnsla sem
Íslendingar hafa átt.
Hún leysir af hólmi
tæki sem komin voru
á þriðja ára tug í aldri.
Hér er unnið úr um
þriðjungi af heildar-
framleiðslu mjólkur á
Íslandi, um 37 milljón
lítrum á ári,“ sagði
Egill.
Hann bætti við að með stofnun
Mjólkursamsölunnar árið 2007
hefði stefnan verið mörkuð í
endurskipulagningu mjólkuriðnaðar í
þágu neytenda og bænda. Síðan hefði
vinnslustöðvum fækkað og þær orðið
sérhæfðari. Á sama tíma hefðu öll
flutningakerfi verið endurnýjuð.
„Árangurinn er
ótvíræður og mjög mikil
hagkvæmni hefur náðst
í þessari starfsemi, sem
skilað hefur verið til
neytenda og bænda.
Verð til bænda fyrir
hráefni hefur hækkað
verulega umfram
almennt verðlag í
landinu vegna þess
að aðföng þeirra hafa
hækkað mjög í verði
eftir hrunið. Þrátt fyrir
það hefur tekist að halda
aftur af hækkunum
á heildsöluverði til
neytenda. Það byggir
á þeirri hagræðingu
sem náðst hefur í
mjólkuriðnaðinum,“
sagði Egill Sigurðsson.
Víðtæk endurnýjun hjá Mjólkursamsölunni á Akureyri:
Þáttaskil í sögu mjólkur-
iðnaðar á Íslandi
Víðtæk endurnýjun hjá Mjólkursamsölunni á Akueryri:
Yngsti kúabóndinn á samlagssvæði
MS Akureyri ræsti nýja ostalínu
Ný og fullkomin vinnslulína
til ostagerðar hefur formlega
verið tekin í notkun hjá MS
Akureyri. Áætlaður kostnaður
við vinnslulínuna auk tengdra
framkvæmda í húsnæði
mjólkurstöðvarinnar, þ.m.t. 300
fermetra viðbyggingu fyrir lager,
losar einn milljarð króna. Þau
Sara María Davíðsdóttir, bóndi
á Torfum og yngsti kúabóndinn
á samlagssvæði MS Akureyri, og
osta meistarar mjólkurbúsins,
Hermann Jóhannsson og Bragi
Egilsson, ræstu nýju ostalínuna
formlega við athöfn síðastliðinn
föstudag.
Dönsk ostalína
Samið var við danska fyrirtækið
SPX um hönnun og smíði á nýju
línunni – þ.m.t. ostatönkum og
ostapressum – inn í húsnæði
MS Akureyri. Um miðjan ágúst
var hætt ostaframleiðslu með
gömlu vinnslulínunni, sem var
meira en tuttugu ára gömul, og í
kjölfarið hafist handa við að setja
nýju línuna upp. Með henni og
skipulagsbreytingum á húsnæðinu
aukast afköst í ostaframleiðslu til
muna á Akureyri og framleiðslu- og
vöruflæði verður á allan hátt betra
og markvissara. Ostagerð hefur alla
tíð verið stór þáttur í mjólkurvinnslu
á Akureyri – lengst af undir
merkjum Mjólkursamlags KEA,
síðan Norðurmjólkur og nú MS. Í
ostagerðina fara á bilinu 60-65% af
innveginni mjólk á Akureyri, sem á
þessu ári er áætluð um 37 milljónir
lítra. MS Akureyri er og hefur lengi
verið langstærsti ostaframleiðandi
landsins með um 40 tegundir osta
og tengdra vara. / MÞÞ
Sara María og Hermann
Jóhannsson, ostameistari
MS Akureyri.
„Hér er nú ræst fullkomnasta ostavinnsla sem Íslendingar hafa
átt,“ sagði Egill Sigurðsson, stjórnarformaður MS.
Árleg lækkun vinnslukostnaðar
meiri en tveir milljarðar
Einar Sigurðsson, forstjóri
Mjólkursamsölunnar, sagði í
ávarpi sínu að á undanförnum
árum hefði Mjólkursamsalan lagt
í miklar fjárfestingar.
Þar væri um að ræða um átta
milljarða króna á núvirði til
að endurnýja aðstöðu, tæki og
búnað í mjólkuriðnaðinum. Auk
uppbyggingar á Akureyri er búið að
flytja alla mjólkurpökkun fyrir vestan-
og sunnanvert landið frá Reykjavík til
Selfoss. Var tækjabúnaður vegna þess
ræstur á Selfossi 11. október.
Einar Sigurðsson, Sara María Davíðsdóttir, Hermann Jóhannsson og Bragi
Egilsson.