Bændablaðið - 31.10.2013, Page 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. október 20138
Fréttir
Stefna hugbúnaðarhús opnaði
nýverið starfsstöð í Hrísey.
Þar vinnur margmiðlunar-
fræðingurinn Ingólfur Sigfússon að
uppsetningu nýrra Moya-vefja fyrir
viðskiptavini Stefnu. Skrifstofan
er í Hlein við Hólabraut, en
þar deilir Stefna skrifstofu með
námsveri fyrir fjarnema í Hrísey.
Staðsetningin er góð og vinnur
Ingólfur í samstarfi við kollega sína
hjá Stefnu á Akureyri og Kópavogi
með aðstoð upplýsingatækninnar.
Hríseyingar stóðu nýverið
fyrir málþingi um framtíðarsýn í
atvinnumálum og byggðaþróun
sem var vel sótt og kom þar meðal
annars fram að margir gætu hugsað
sér að búa á eyjunni hefðu þeir þar
atvinnu. Matthías Rögnvaldsson,
framkvæmdastjóri Stefnu, segir að
það sé Stefnu mikil ánægja að opna
starfsstöð í Hrísey og stuðla þannig
að fjölbreyttara atvinnulífi í eyjunni.
Sinna þjónustu í dreifðari
byggðum
„Við erum stoltir af staðsetningu
nýja útibúsins okkar og ánægðir að
auka með því fjölbreytni í atvinnulífi
Hríseyjar. Opnun útibúsins undirstrikar
að ýmis konar þjónustu er hægt að
sinna í hinum dreifðari byggðum og
jákvætt að fólk hafi tækifæri að búa
og starfa þaðan sem það hefur hug á,“
segir Matthías Rögnvaldsson í frétt á
heimasíðu Stefnu.
Stefna hefur opnað
starfsstöð í Hrísey
Laugardaginn 9. nóvember
næstkomandi verður aðalfundur
Samtaka selabænda haldinn í
Kötlu, 2. hæð, Hótel Sögu.
Fundurinn hefst kl. 16.30,
Aðalfundur Æðarræktarfélags
Íslands hefst kl 10.00 sama dag og
stendur til kl 16.00. Hin árlega sela-
veisla verður haldin í Haukahúsinu
sama dag, húsið opnar kl. 19.00.
Miðar verða seldir í veitinga-
húsinu Lauga-ási við Laugarásveg
laugardaginn 2. nóvember kl.14.00
til 16.00 og fimmtudaginn 7. nóvem-
ber kl. 19.00 til 21.00. Hallbjörn
Bergmann mun að venju sjá um
miðana, sími 848-6161.
Matseðill
Villijurtagrafinn lax með
sólberjajógúrtsósu
Miðjarðarhafssalat með
ávöxtum og mango-jalapeno
Grillað selkjöt með lauk og
sveppum
Soðinn saltaður selur
Soðinn reyktur selur
Siginn fiskur með selspiki,
hnoðmör og soðnum kartöflum
Súrsuð selshreifasulta
Glóðarsteikt lambalæri með
(smjörsteiktum kartöflum,
ofnbökuðu grænmeti og
madeirakremsósu)
Léttsöltuð uxabringa með
hvítkálsjafningi
Hrár marineraður hvalur að
hætti Japana
(wasabi-soja og súrsuðum
engifer)
Grillað hvalkjöt með beikoni og
papriku
Ofnbakaður lax að hætti
eyjarskeggja
Hákarl
Selaveisla og aðalfundur
Samtaka selabænda
Hverasvæðið í Hveragerði:
Gestum fækkaði um 10 þúsund
eftir að gjaldtaka hófst
Gjaldtaka af ferðamönnum
sem vilja skoða hverasvæðið
í Hveragerði leiddi til þess að
gestum fækkaði um 10 þúsund
í sumar.
Hveragerðisbær hóf gjaldtöku
á hverasvæðinu í Hveragerði í
vor en rukkaðar eru 200 krónur á
mann. Á málþinginu „Sunnlensk
ferðaþjónusta – tölum“ saman á
Hótel Heklu
23. október sl.,
fjallaði Aldís
Hafsteinsdóttir,
b æ j a r s t j ó r i
m.a. um málið
og sagði að
gestum hefði
fækkað um 10
þúsund eftir að
gjaldtakan hófst. Alls voru gestir
svæðisins 2012 um 20 þúsund
yfir sumartímann en fóru niður í
10 þúsund í sumar. Hún vill ekki
kenna gjaldtökunni eingöngu
um því rigningar sumarið 2013 á
Suðurlandi er öllum í fersku minni
og hafði það örugglega áhrif á
aðsókn ferðamanna á hverasvæðið.
/MHH
Ingólfur Sigfússon, margmiðlunarfræðingur hjá Stefnu, starfar í starfsstöð
fyrirtækisins í Hrísey.
Aldís Hafsteins-
dóttir bæjarstjóri.
Frá hverasvæðinu ofan við Hveragerði. Mynd / HKr.
Landeigendafélag Geysis í
Haukadal hefur samþykkt að
innheimta gjald af íslenskum
og erlendum ferðamönnum á
hverasvæðinu í byrjun árs 2014.
Þetta er gert til að mæta dýrri
uppbyggingu á svæðinu en talið
er að það kosti a.m.k. hálfan
milljarð króna að koma svæðinu
í gott stand.
„Að taka gjald af gestum svæðis-
ins er forsenda þess að mögulegt sé að
tryggja sjálfbærni svæðisins og auka
öryggi gesta. Ferðamenn eru almennt
vanir því að greiða fyrir aðgengi að
náttúrutengdri afþreyingu víða annars
staðar og hafa kannanir landeigenda
undanfarin tvö ár á svæðinu gefið
skýra mynd af greiðsluvilja gesta. Það
er mikilvægt að upplifun og greiðsla
séu sem næst hvort öðru í tíma og
mun landeigendafélagið leggja sig
fram við að veita góða þjónustu
þannig að upplifun gesta verði sem
best. Það er skylda landeigenda að
bregðast við þeirri neikvæðu þróun
sem er að eiga sér stað og standa vörð
um náttúru svæðisins,“ sagði Garðar
Eiríksson, talsmaður landeigenda.
Ósamstaða um leiðir
Athygli vekur að ríkið og land-
eigendur virðast ekki samstíga
í þessu máli, ef marka má
viðbrögð Ragnheiðar Elínar
Árnadóttur, ráðherra ferðamála.
Hún tilkynnti nýlega áform um
svokallaðan náttúrupassa fyrir alla
ferðamannastaði hér á landi, en um
svipað leyti sögðust landeigendur við
Geysi, allir nema ríkið, ætla að hefja
gjaldtöku á svæðinu, til að fjármagna
endurbætur. Ragnheiður segist þess
fullviss að áform um gjaldtöku verði
ekki að veruleika.
Tveir þriðju Geysissvæðisins eru
í einkaeigu, en ríkið á um þriðjung,
þar á meðal Geysi og Strokk,
Þrátt fyrir þennan ágreining hefur
verið auglýst hugmyndasamkeppni
um skipulag og hönnun Geysis-
svæðisins í Haukadal. Markmið
samkeppninnar er að fá fram
hugmyndir um skipulag og
uppbyggingu svæðisins og verða
niðurstöður væntanlega kynntar í
byrjun mars 2014. Framkvæmda-
sjóður ferðamanna staða veitti
sveitarfélaginu Bláskóga byggð
styrk til að halda samkeppnina.
Undirbúningsnefnd vann að mótun
lýsingar og dómnefnd vann síðan
keppnisgögn. Samkeppnin fer fram í
samvinnu við Arkitektafélag Íslands,
Landeigendafélag Geysis ehf, ríkið
og Félag landslagsarkitekta og allir
eiga fulltrúa í dómnefndinni.
/MHH/HKr.
Strokkur að gjósa. Mynd / HKr.
Tekist á um gjaldtöku við Geysi
Í sumar settu landeigendur upp bauk
á Geysi fyrir frjáls framlög en nú á
að ganga alla leið á nýju ári og hefja
formlega gjaldtöku.