Bændablaðið - 31.10.2013, Page 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. október 201310
Fréttir
Nemendur Borgarhólsskóla á
Húsavík kynntu sér nýverið
starfsemi Norðlenska sem hefur
aðsetur þar í bæ. Í kjölfarið tóku
krakkarnir slátur í skólanum og
báru sig býsna fagmannlega að.
Það voru nemendur í val-
áfanganum Heilsa og velferð sem
tóku þátt og fóru m.a. í heimsókn
í sláturhús Norðlenska á Húsavík.
Í framhaldi af henni gaf fyrirtækið
krökkunum allt efni til sláturgerðar
og hófust þeir þegar handa við að
gera bæði lifrarpylsu og blóðmör.
Með þessu vildu bæði Norðlenska og
skólinn viðhalda þeim menningararfi
sem sláturgerð að hausti er.
Félag eigenda og ræktenda
landnámshænsna (ERL) heldur
aðalfundur sinn laugardaginn 9.
nóvember. Þar er jafnframt um að
ræða 10 ára afmælisfund félagsins.
Fundurinn verður haldinn í
kaffistofu Bændasamtakanna á 3.
hæð í Bændahöllinni við Hagatorg
og hefst kl. 14.00.
Dagskrá fundarins hefst með
ávarpi Júlíusar Más Baldurssonar,
formanns ERL. Í kjölfarið er flutt
skýrsla stjórnar. Þá hefjast venjuleg
aðalfundarstörf og verða breytingar
á lögum félagsins lagðar fyrir
fundinn. Að því loknu fara fram
kosningar og umræða um önnur
mál. Afmæliskaffi verður í boði
stjórnar og félags.
Stjórn ERL skorar á sem flesta
félagsmenn að mæta og eiga góða
stund saman.
Félag eigenda og ræktenda landsnámshænsna:
ERL með 10 ára
afmælisfund
Júlíus Már Baldursson, formaður
ERL, með lítinn landnámshænuunga.
Mynd / HKr.
Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi:
Strýtan köfunarmiðstöð, Sveinn í Kálfskinni
og Gestastofa sútarans verðlaunuð
Húsvísk ungmenni í sláturgerð
Nemendur í valáfanganum Heilsa
og velferð kynntu sér starfsemi
Norð lenska á dögunum og fengu
að lokinni heimsókn í fyrirtækið að
gjöf efni til sláturgerðar.
Efnt var til Uppskeruhátíðar
ferða þjónustunnar á Norðurlandi
nýverið og tóku um 130 manns
þátt.
Hátíðin var haldin á vegum
Markaðs skrifstofu Norðurlands
og fór fram á Akureyri og í
Eyjafjarðarsveit. Á hátíðinni voru
veittar viðurkenningar til þriggja
ferðaþjónustuaðila. Sveinn Jónsson
í Kálfskinni fékk viðurkenningu
fyrir áratuga starf í ferðaþjónustu
á Norðurlandi, Erlendur Bogason
með Köfunarmiðstöðina Strýtuna
fékk viðurkenningu fyrir áhugaverða
nýjung í ferðaþjónustu á Norðurlandi
og Sigríður Káradóttir hjá Gestastofu
Sútarans fékk viðurkenningu fyrir
faglega uppbyggingu.
Köfunarmiðstöð í gamalli
síldarverksmiðju
Strýtan köfunarmiðstöð er í gömlu
síldarverksmiðjunni á Hjalteyri við
Eyjafjörð, en Erlendur byrjaði að
bjóða upp á köfun fyrir ferðamenn í
samstarfi við Sportferðir árið 1994, og
þá á Pollinum niður að skipsflakinu
sem þar er. Fyrsta hverastrýtan fannst
svo í Eyjafirði árið 1997 og síðan
fundust fleiri. Þær eru núna friðaðar,
og er Erlendur sá eini sem býður upp
á tilbúnar ferðir niður að þeim. Þegar
hverastrýturnar í Eyjafirði fundust
varð mikið stökk í starfseminni hjá
honum, og hefur fjöldi gesta vaxið
mjög mikið á hverju ári undanfarin
ár. Nú býður Köfunarmiðstöðin
upp á köfunarnámskeið og köfun
víða á Norðurlandi, ekki eingöngu
við hverastrýturnar í Eyjafirði sem
Erlendur er frægastur fyrir, heldur líka
í Grímsey, í hraungjánum í Öxarfirði
og við Drangey í Skagafirði.
Áratuga störf við ferðaþjónustu
Sveinn Jónsson, ferðaþjónustu-
frumkvöðull hefur komið víða við
um ævina. Sveinn er bóndi í Kálf-
skinni og var byggingameistari
í sinni sveit og víðar. Hann er
mikið félagsmála tröll og hefur
starfað bæði í Ungmennafélaginu
og Búnaðarsambandinu auk fleiri
samtaka, t.d. Landsbyggðin lifi. Hann
var kosinn í sveitarstjórn 1966 og varð
fljótlega oddviti og síðar sveitarstjóri.
Störf Sveins í ferðaþjónustu
hófust með uppbyggingu á ferða-
þjónustu í gamla húsinu í Ytri-Vík.
Fljótlega bættust við sumarhús og
heitir pottar, gestunum fjölgaði
og fyrirtækið byggðist upp, óx og
þroskaðist. Þeir feðgar Sveinn og
Marinó stofnuðu síðar Sportferðir,
alhliða ferðaþjónustufyrirtæki þar
sem unnið er í fjölbreyttu samstarfi
við marga aðila.
Gestastofa Sútarans
Gestastofa sútarans frá Sauðárkróki er
í einu sútunarverksmiðjunni í Evrópu
sem framleiðir leður úr fiskroði.
Með gestastofunni er ferðamönnum
og almenningi opnaður aðgangur
að sútunarverksmiðju og afurðum
hennar á óvenjulegan hátt. Fiskleður
hefur heillað hönnuði heimsþekktra
vörumerkja eins og Prada, Dior
og Nike og hefur Sjávarleður á
Sauðárkróki m.a. fengið alþjóðleg
verðlaun á stórri leðursýningu í Hong
Kong fyrir „Besta lúxus leðrið“ fyrir
vor/sumar línu fyrirtækisins 2014.
Gestastofa Sútarans var önnur
Hagleikssmiðjan á Íslandi sem sett
var upp að kanadískri fyrirmynd, en
svokölluð Economuseum eru rekin
víða um Kanada til að varðveita
handverk, aðferðir og þekkingu.
Boðið er upp á skemmtilega
skoðunarferð um verksmiðjuna þar
sem fylgst er með hvernig roð er
sútað svo úr verður úrvals fiskleður.
/MÞÞ
Sveinn Jónsson í Kálfskinni sem fékk viðurkenningu fyrir áratuga starf í ferðaþjónustu á Norðurlandi, Erlendur
Bogason með Köfunarmiðstöðina Strýtuna sem fékk viðurkenningu fyrir áhugaverða nýjung í ferðaþjónustu á
Norðurlandi og Sigríður Káradóttir hjá Gestastofu Sútarans sem fékk viðurkenningu fyrir faglega uppbyggingu.
Ferðaleikhúsið, sem einnig
gengur undir nafninu Light
Nights, verður með stóran flóa-
markað næstkomandi laugardag,
2. nóvember, frá kl. 14.00 til kl.
18.00 að Baldursgötu 37, 101
Reykjavík – inngangur á jarð-
hæð Lokastígsmegin. Húsið er í
sjónmáli frá Skólavörðustíg.
Á flóamarkaðnum má finna
fjölbreytilegt úrval af fatnaði og
skóm, bæði nýjum og gömlum.
Hér er upplagt tækifæri til að finna
sérstakar jólagjafir og jólafatnað
á alla fjölskylduna á góðu verði.
Einnig eru á boðstólum antíkmunir,
myndir, smíðaverkfæri, gardínur,
borðbúnaður, ritvélar, kompás,
gamlar grammófónplötur og margt,
margt fleira.
Ferðaleikhúsið:
Selur allt milli himins og
jarðar á flóamarkaði
Matvælastofnun stöðvaði í septem-
ber dreifingu á öllu tilbúnu
fóðri frá Fóðurblöndunni, utan
fiskafóðurs, vegna salmonellu sem
greindist í tíu umhverfissýnum í
fóðurverksmiðju fyrirtækisins.
Ítrekuð salmonellusmit hafa komið
upp á alifuglabúum sem hafa
fengið tilbúið fóður frá fyrirtækinu
á árinu, eða alls sex tilfelli. Í byrjun
september innkallaði fyrirtækið
fóður vegna salmonellusmits og
seinni hluta mánaðarins var síðan
sala og dreifing stöðvuð.
Gerðar voru kröfur um að
ákveðin skilyrði yrðu uppfyllt
áður en fyrirtækið fengi á nýjan
leik leyfi til að senda frá sér fóður.
Krafist var að framkvæmd yrði
aðgerðaáætlun um þrif, gæðaeftirlit
og annað sem staðfest skyldi að
hefði skilað árangri með sýnatöku
og rannsóknum. Þá var fyrirtækinu
gert skylt að upplýsa alla kaupendur
fóðurs frá ársbyrjun um að sýni úr
umhverfi og sekkjunarbúnaði hefðu
greinst jákvæð fyrir salmonellu.
Fóðurblandan hafði þegar hafið
úrbætur og þrif áður en ákvörðun
MAST var tekin.
Með úttekt var staðfest að
aðgerða áætlun hefði verið fylgt og
alþrif framkvæmd. Sýnatökur leiddu
í ljós að ekki fannst lengur salmonella
í verksmiðju fyrirtækisins. Að
þessum niðurstöðum gefnum aflétti
MAST banni við dreifingu fóðurs
frá Fóðurblöndunni 17. október
síðastliðinn. Áfram verður hins
vegar fylgst með að fyrirtækið
standi við aðgerðaáætlun um bætta
framleiðsluhætti, aukið gæðaeftirlit
og hitameðhöndlun fóðurs sem til
er á lager.
Fóðurblandan fær heimild
til dreifingar á fóðri á ný