Bændablaðið - 31.10.2013, Page 23

Bændablaðið - 31.10.2013, Page 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 31. október 2013 frekar þessar læsingar og þá hvort ráðist verði í fjárfestingar vegna tækjakaupa til slíkrar einingarfram- leiðslu. Það hefur verið ákveðinn aðili að vinna með okkur í því. Málið er í raun komið á lokastig gagnvart stjórn og eigendum fyrirtækisins.“ Mikill vinnusparnaður Guðmundur Magnússon segir að einn stærsti kosturinn við þennan byggingarmáta sé gríðarlegur vinnu- sparnaður. Segir hann að arkitekta- stofan Batteríið hafi gert kostnaðar- samanburð á svona húsi miðað við hefðbundinn byggingar máta. Þeir hafi komist að þeirri niðurstöðu að þessi hús geti verið um 20% ódýrari. Þá hafi sýnt sig að einangrunargildi þessara húsa sé mun meira en þekkist í hefðbundnum húsum, sem minnki kyndingarkostnað. „Sem dæmi byggðum við 120 fermetra einbýlishús með þessari tækni úti á Snæfellsnesi og það kom út á rúmar 25 milljónir króna full- frágengið utan sem innan. Ég held að jarðvinnan sé þó ekki inni í þeirri tölu. Þetta hús byggðum við bara hér heima og fluttum það vestur í tvennu lagi.“ Afar þétt og ódýr í kyndingu „Þeir sem hafa keypt svona hús segja að það kosti mjög lítið að kynda þau. Ég hef látið þéttleikamæla svona hús og hafa menn aldrei mælt svo þétt hús áður. Þessi hús eru líka miklu sterkari en hefðbundin timburhús. Þetta er fjórða húsið sem við reisum með þessari tækni í sumar,“ segir Guðmundur Magnússon smiður og bætir við að næsta verkefni verði að reisa parhús úr svona einingum á Flúðum. /HKr. Hér sést vel hvernig þak og veggir mætast. Lásar milli þakeininganna eru jafnframt nýttir eins og hefðbundnar sperrur til að bera uppi þakkant. NÚ MÁ SNJÓA! VANDAÐUR VETRAR- OG ENDURSKINSFATNAÐUR KÍKTU Á DYNJANDI.IS! Skeifunni 3 - Sími: 588 5080 - dynjandi.is Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Háskólinn á Hólum auglýsir eftirfarandi kynbótahryssur til sölu 1. För IS2003258309 (BLUP 127), fengin við Trymbli IS2005135936. 2. Þraut IS2006258300 (BLUP 123), fengin við Svaða IS2009158304. Skrifleg tilboð þurfa að berast skrifstofu skólans í síðasta lagi 8. nóvember nk. merkt: „Háskólinn á Hólum, Guðmundur Eyþórsson – tilboð í hross“. Áskilinn er réttur til að hafna öllum tilboðum. Frekari upplýsingar hjá vikingur@holar.is.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.