Bændablaðið - 31.10.2013, Side 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 31. október 2013
Aukin ullargæði forsenda aukinnar
verðmætasköpunar úr íslenskri ull
Framleiðsla og vinnsla íslenskrar
ullar hefur lengi verið samstarfs-
verkefni bænda og Ístex, sem er
að hluta í eigu bænda. Stjórnvöld
hafa einnig lagt verkefninu lið með
ullarstuðningi í búvörusamningum
sauðfjár.
Á síðustu árum hefur sala á
vinnsluvörum Ístex aukist jafnt og
þétt. Bæði hefur innanlands markaður
verið í stöðugum vexti og sala á
vörum frá Ístex aukist víða erlendis.
Góðar vinnsluvörur verða tæpast
fram leiddar nema úr fyrsta flokks
ull. Því stefnir í að skortur á góðri
ull tak marki framleiðslu getu Ístex.
Auk lambsullar er góð hvít
haustull (H 1. H) besta vinnsluefnið.
Afhendi bændur meira magn af þeirri
ull mun það skila bændum, Ístex og
þjóðarbúinu ábata.
Því er skorað á bændur að horfa
til þessa við haustmeðferð fjárins.
Nefna má eftirfarandi:
Þurfi að hýsa fé áður en það er
rúið er mikilvægt að hús séu þurr og
vel loftræst. Það er því betra að frost
sé í húsum en að raki í lofti og og á
veggjum geri ullina blakka.
Það auðveldar ullarmat við rúning
mjög að forflokka fé eftir litum og
mögulega grófleika. Sé kind ekki
mislit eða áberandi gul í hnakka
og á fótum og togið hvorki sítt né
gróft má ætla að meginhluti reyfis
sé fyrsta flokks. Úr þeim reyfum er
jafnan nóg að taka hnakkaull, kviðull
(sé kviður rúinn) og grófustu ullina
af lærum og aftast af síðum frá,
hitt er góð vinnsluull og á heima í
fyrsta flokki. Kasti rúningsmaður
hnakkaullinn frá og bóndi auðveldar
sér að taka grófu ullina frá, jafnvel
með hjálp heykvíslar, ætti hann að
geta flokkað og sekkjað ull frá tveim
rúningsmönnum um leið og rúið er.
Skili vel undirbúin flokkun meira
magni í fyrsta flokk hefur bóndi af
því verulegan fjárhagslegan ábata því
verðmunur á H 1. og H 2. verður á
komandi hausti væntanlega 176 kr.
á hvert hreint kg. Það skilar nálægt
260 kr á meðalreyfi, þótt hnakka-
ull og grófasta togið sé tekið frá.
Góð meðferð og nákvæm flokkun
haustullar getur því skilað tugum
þúsunda króna í ábata á stærri
fjárbúum.
Hér er því sóknarfæri sem við
hljótum að nýta.
Ari Teitsson,
stjórnarformaður Ístex
Fyrirkomulag ullarviðskipta frá
1. nóvember 2013
Í haust verður gerð breyting á
fyrirkomulagi ullarviðskipta frá
því sem verið hefur.
Ullarskráning:
Eftir að ullin hefur verið flokkuð,
pökkuð og vegin þurfa ullar-
innleggjendur að skrá flokkun á
svokölluðu Bændatorgi á vefslóðinni
http://torg.bondi.is þar sem
ullarmatsskráning verður aðgengileg
undir liðnum „Umsóknir/Eyðublöð“
í valmynd. Að skráningu lokinni þarf
að prenta út skráningarseðil gjarnan
í tvíriti og skal annað eintakið afhent
flutningsaðila.
Ef ekki eru tök á að skrá ullina á
netinu skal skrá á blað upplýsingar
um flokkun, magn í flokka og
pokafjölda og heildarþunga. Þar
skal jafnframt koma fram hvort
og þá hvenær ullin hafi verið
skráð gegnum síma. Blað með
ofangreindum upplýsingum skal
fylgja þeim sendingum sem ekki
fylgir útprentaður skráningarseðill.
Sama vinnulag gildir þótt ull sé
afhent beint í þvottastöð. Skrá verður
kennitölu, ullarflokk og þyngd
pokans á hvern poka.
Ullarflutningur:
Gerður verður samningur við
flutnings aðila sem safna ull á
ákveðnum landssvæðum. Flutnings-
aðilar taka við skráningarseðli eða
skráningarblaði hjá innleggjanda
og staðfesta að pokafjöldi sé réttur
og að fylgt hafi verið ofangreindu
verklagi. Þeir afhenda síðan seðlana
ásamt flutningsskilagrein um leið og
ullin er affermd á Blönduósi. Eftirlit
með flutningum og því að fylgt sé
ofangreindum reglum við móttöku
og flutning ullar verður í höndum
yfirmanns á Blönduósi.
Ullaruppgjör:
Eftir að flokkun hefur verið staðfest
eða leiðrétt er skráning uppfærð á
Bændatorgi. Starfsmenn á Blönduósi
þurfa að skrifa athugasemdir á nótur
ef breyting er gerð á skráningu
innleggjenda. Eftir að nótan hefur
verið uppfærð er ekki hægt að gera
neinar breytingar á henni. Í lok hvers
skráningartímabils er uppfærðum
matsnótum breytt í afreikninga
sem koma til greiðslu á fyrir fram
ákveðinni dagsetningu.
Ístex skilar í lok hvers skráningar-
tímabils skilagrein til Bændasamtaka
um skráða ull og og staðfestu
uppgjöri ullarflokkunar hvers
framleiðanda þegar þvotti er lokið.
Skráningartímabil verði frá
1. nóvember til 31. janúar – með
gjalddaga 30. maí og síðan 1. febrúar
til 30. júní með gjalddaga 30. ágúst.
Gjalddagar á beingreiðslum eru
ákveðnir af Bændasamtökum Íslands
Útprentun afreikninga og
greiðslur Ístex til ullarframleiðenda
verða í höndum gjaldkera Ístex í
Mosfellsbæ.
Mynd / Jón Eiríksson
Málþing
Kaupfélag Þingeyinga boðar til málþings um framtíð
samvinnustarfs á Íslandi , og hvaða tækifæri geta falist
í því rekstrarformi á ýmsum sviðum okkar samfélags.
Málþingið verður haldið í Safnahúsinu á Húsavík laug-
ardaginn 16. nóvember og hefst kl. 14:00.
Samvinnustarf á
Íslandi á 21 öldinni
Dagskrá:
1. Skúli Skúlason stj.f. Samkaupa: Horft út í heim. Og stefnu-
mótun KSK.
2. Jón Sigurðsson fyrrv. ráðherra: Félagsskipan- stjórn-
skipan- fjárhagsskipan samvinnufélaga
3. Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra: Áform stjórnvalda
og möguleg tækifæri við að nýta samvinnuformið til
uppbyggingar.
Kaffihlé.
4. Magnús Sveinn Helgason sagnfræðingur: Samvinnu-
hreyfingin og neytendur.
5. Gunnar Gunnarsson stjórnarm. KHB: KHB í hundrað ár
og hvað svo.
6. Umræður
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Aðalfundur Æðarræktarfélags Íslands
Æðarræktarfélag Íslands mun halda
Aðalfund 2013 laugardaginn 9.
Nóvember næstkomandi. Fundurinn
verður haldinn í Kötlu, 2. Hæð, Radisson
SAS blu – Hótel Sögu. Fundurinn hefst
kl. 11:00 og ráðgert er að hann standi
til kl. 16:00.
Líkt og síðustu ár verða fengnir utan-
aðkomandi aðilar með erindi bæði til
gagns og gamans fyrir félagsmenn.
Stjórn ÆÍ vill koma því á framfæri við félagsmenn sem eiga eftir að greiða
árgjaldið að þeir gangi frá því en greiðslubeiðni liggur í heimabanka þeirra.
Ekki verður tekið við greiðslu félagsgjalda á fundinum eftir að hann hefst
en gjaldkeri verður mættur hálftíma fyrir fund ef einhverjir vilja greiða
gjaldið á staðnum.
Dagskrá fundarins
Kl. 11:00‐12:30
Fundarsetning. Tilnefning fundar-
stjóra og fundarritara
Skýrsla stjórnar; Guðrún
Gauksdóttir.
Skýrsla hlunnindaráðgjafa;
Sigríður Ólafsdóttir.
Reikningar félagsins; Guðni Þór
Ólafsson.
Fyrirspurnir og umræður um
skýrslu stjórnar og reikninga.
Ávörp gesta.
Kl. 12:30 - 13.00
Léttur hádegisverður
Kl. 13:00‐16:00
Fræðsluerindi m.a. frá sendiráðinu
í Japan
Fréttir og tillögur frá deildum
Sölu- og markaðsmál
Kosningar
Tillögur
Önnur mál
Kl. 16:00
Fundarslit og kaffiveitingar