Bændablaðið - 31.10.2013, Blaðsíða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 31. október 2013
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Nautgriparæktarkerfið HUPPA er í stöðugri þróun
Huppa, afurða- og skýrsluhalds-
kerfi nautgriparæktarinnar,
er í stöðugri þróun og unnið að
mörgum hlutum til endurbóta þó
allt af því komi ekki fyrir sjónir
notenda. Margs konar vinnslur
eru þess eðlis að verið er bæta
vinnslu forritsins og fleira í þeim
dúr. Þessi vinna er unnin í góðu
samstarfi Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins og Tölvudeildar
Bændasamtaka Íslands.
Eitt af því sem bættist við
nú fyrr í haust eru endurbætur á
frjósemisskýrslu búsins. Þar var
bætt við flipa með samantekt
eða lykiltölum fyrir frjósemi á
viðkomandi búi. Þar koma fram
rauntölur búsins sl. 12 mánuði sem
hægt er að bera saman við markmið
sem eru útreiknaðir fastar miðaðir við
að frjósemi sé í mjög góðu lagi. Þessi
skýrsla á að geta hjálpað hverjum
og einum við að greina stöðuna á
sínu búi og leita ástæðna fyrir lakri
frjósemi ef um það er að ræða.
Í frjósemisskýrslunni er gripunum
skipt í þrjá hópa; kvígur, 1.kálfs kýr
og eldri kýr. Fyrir hvern flokk eru
svo birtar ákveðna lykiltölur eins og
meðaltími frá burði að 1. sæðingu,
fanghlutfall, sæðingar á kú/grip,
bili milli sæðinga o.fl. Einnig
kemur meðalaldur við 1. burð fram
í skýrslunni sem og meðalaldur
kvígna við 1. sæðingu.
Meðfylgjandi er skjámynd af
frjósemisskýrslu á búi þar sem frjós-
mein hlýtur að teljast í mjög góðu
lagi. Ef við lítum á nokkrar lykiltöl-
ur má sjá að 1. kálfs kýrnar á þessu
búi bera að meðaltali 26,3 mánaða
gamlar meðan að landsmeðaltal er
nærri 29,5 mánuðum. Kvígurnar er
einnig að meðaltali 14,8 mánaða
við 1. sæðingu. Í skýrslunni má sjá
að það líða að meðaltali 86 dagar
frá burði til sæðingar hjá 1. kálfs
kúnum en það sést líka að það eru
þrjár þessara kúa sem eru með meira
en 78 daga frá burði að 1. sæðingu.
Þessar kýr eru því að hækka meðal-
talið og þær hafa að öllum líkindum
legið niðri nokkuð lengi eftir burð
eða að bóndinn hefur ákveðið seinka
næsta burði hjá þeim af einhverj-
um ástæðum. Við sjáum líka að
það er búið að sæða 60% 1. kálfs
kúnna eftir burð, það hefur þurft 1,6
sæðingar á kú og fanghlutfall við
1. sæðingu er 86%. Eitt af því sem
vekur alveg sérstaka athygli þarna
er bili milli sæðinga en það er 19
dagar milli 1. og 2. sæðingar og 19
dagar milli 2. og 3. sæðingar. Það er
vísbending um að beiðslisgreining
sé mjög góð og nákvæm og viðkom-
andi bóndi notar áreiðanlega tæki
eins og gangmáladagtalið til hjálpar.
Við skulum nú líta aðeins á frjó-
semi eldri kúnna. Það er búið að
sæða 64% þeirra en markmiðið er
70%. Einhverjir kunna að spyrja af
hverju markmiðið sé aðeins 70% og
því er til að svara að endurnýjunar-
hlutfall kúastofnsins er yfir 30% og
eðlilegt er að menn ætli ekki að halda
öllum eldri kúm aftur. Auðvitað er
best að þessi tala sé sem hæst, þ.e.
að menn þurfi ekki að endurnýja
mjög stóran hluta hjarðarinnar
árlega. Við sjáum að það eru 9 kýr
sem eru með meira en 78 daga frá
burði til 1. sæðingar en hins vegar
gengur vel að koma kálfi í kýrnar
því það líða ekki nema 18 dagar frá
1. að síðustu sæðingu til jafnaðar.
Þetta endurspeglast í fanghlutfallinu
sem er 67% við 1. sæðingu og ekki
þarf nema 1,6 sæðingar á kú. Ef við
skoðum bili milli sæðinga þá sjáum
við að bil milli 1. og 2. sæðingar er
að jafnaði 29 dagar. Þarna hafa ein
eða fleiri kýr legið niðri 1 gangmál
og ástæðan gæti verið að þær hafi
látið mjög snemma á meðgöngu. Til
þess að greina hvaða gripi er um að
ræða er hægt að fara í flipann „Eldri
kýr“ og skoða tölur fyrir hvern og
einn grip. Þannig má greina hjá hvað
grip eða gripum vandamálið liggur.
Á þessu búi eru allar kvígur
sæddar eins og sjá má og það er
aðeins ein kvíga sem er eldri en 26
mánaða. Meðalaldur við 1. sæðingu
er eins og áður sagði 14,8 mánuðir
og það er engin kvíga eldri en
tveggja ára við 1. sæðingu. Til þess
að koma kálfi í kvígurnar hefur að
jafnaði þurft 1,3 sæðingar og fang-
hlutfall við 1. sæðingu er 80%. Oft
heyrir maður að menn vilji ekki
sæða kvígurnar af því það haldi
svo illa. Þessi bóndi hrekur þá full-
yrðingu svo um munar þannig að
það getur ekki verið ástæðan fyrir
tregðu manna til að sæða kvígurnar.
Bil milli sæðinga hjá kvígunum er
að jafnaði 18 dagar milli 1. og 2.
sæðingar og 197 dagar milli 2. og 3.
sæðingar. Sú tala getur engan veginn
talist eðlileg og því rétt að leita skýr-
inga með því að skoða kvígurnar
nánar undir flipanum „Kvígur“. Þó
ekki fylgi neinar upplýsingar um
einstaka gripi hér er rétt að fram
komi að þarna var um einn grip að
ræða sem hækkar meðaldagafjöld-
ann svo um munar. Þessi kvíga hefur
að öllum líkindum látið og er einmitt
þessi eina óborna kvíga sem er orðin
eldri en 26 mánaða.
Vonandi kemur þessi skýrsla
notendum nautgriparæktarkerfisins
Huppu að notum og hjálpar til við að
bæta frjósemi kúastofnsins.
Nautastöð BÍ að Hesti
Enn höldum við áfram að rýna
í sæðingarstarfsemina undan-
farin ár. Gaman er að sjá hvernig
sæðingar skiptast niður á milli
mánaða. Verulegur munur er
á fjölda sæðinga milli mánaða
en línan er svipuð flest árin. Þó
virðist eins og heldur dragi úr
fjölda sæðinga seinni hluta ársins
á þessum þremur árum. Þá hefur
sumarsæðingum heldur fækkað
og kannski verulega ef litið væri
lengra aftur í tímann.
Janúar er sterkur árið 2012 eins
og flest undanfarin ár en septem-
ber er ávallt sá mánuður þar sem
fæstar sæðingar eru framkvæmdar.
Á mynd 1 má sjá fjölda sæð-
inga eftir mánuðum síðastliðin
þrjú ár.
Mynd 2 sýnir hlutfallslegan
fjölda sæðinga eftir mánuðum.
Þar sést betur sú breyting hversu
dregið hefur úr sæðingum seinni
hluta ársins.
Samhliða fjölda sæðinga í
hverjum mánuði er gaman að
skoða fanghlutfall í þeim sömu
mánuðum. Það má sjá á mynd 3.
Þar sést líka að árangurinn er oft
bestur þegar sæðingar eru fæstar
og spurning hvort flutningur sæð-
inga frá þeim mánuðum er ekki að
hluta skýring á lækkandi fanghlut-
falli síðustu ár. Til skemmri tíma
veldur mestum áhyggjum fallandi
fanghlutfall í lok ársins 2012.
Sveinbjörn Eyjólfsson
framkvæmdastjóri
Nautastöðvar BÍ
að Hesti, Borgarfirði
Pétur Halldórsson
Ábyrgðarmaður
í nautgriparækt
hjá RML
Nautgripasæðingar 2012 – Grein 3
Öxndal.