Bændablaðið - 31.10.2013, Síða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 31. október 2013
Lesendabás
Vettlingaprjón er
handavinnubók
með 64 uppskriftum
að vettlingum
á kríli, krakka,
konur og karla.
Hér eru einfaldar og
skýrar uppskriftir
sem og gagnlegar
leiðbeiningar, góð
ráð og örstutt
kennsla í því prjóni
og hekli sem notað
er í uppskriftunum.
Þ e t t a e r
þriðja hannyrða-
bók Guðrúnar S.
Magnús dóttur, sem
áður hefur gefið út
Sokkaprjón (2011)
og Húfuprjón (2012) sem báðar
njóta mikilla vinsælda. Sem fyrr
er bókin fallegt fjölskylduverkefni
því sonur Guðrúnar tekur
ljósmyndirnar og dóttir hennar
sér um umbrotið.
Bækur
Undanfarnar vikur hafa
borist fréttir af misjafnri
korn uppskeru og foktjóni á
ökrum bænda. Úrkomusömu,
sólarlitlu og stuttu sumri
er kennt um hægari þroska
kornsins í sumar miðað við
síðustu ár. Kornrækt krefst
ákveðinnar hitasummu,
þ.e. hitastigs sinnum lengd
vaxtartímabils, svo að
ræktunin takist vel. Ljóst er
að hækka má hitastig á ökrum
og jafnvel heilu svæðunum með
trjábeltum.
Þetta eru ekki ný fræði en í
fréttaflutningi virðast rannsóknir
Klemensar Kristjánssonar
tilraunastjóra á Sámsstöðum
í Fljótshlíð sem hann gerði í
kringum miðja 20. öldina hafa
gleymst og er því ástæða til að
rifja þær upp. Í stuttu máli varð
uppskera úr 7 ára tilraunum
Klemensar meiri í skjóli trjáa
samanborið við bersvæði: að
jafnaði varð 24% meiri uppskera
af sexraða byggi, 36% meiri af
höfrum og 41% meiri af vorhveiti.
Mestur varð munurinn í köldum
sumrum, allt að helmingsmunur
á uppskeru, en öll tilraunaárin
varð meiri þroski í skjóli en á
bersvæði. Tilraunir Klemensar
voru vandaðar og stóðust
allar gæðakröfur vísindanna.
Niðurstöðurnar eru fullkomlega
gjaldgengar enn í dag. Þess ber að
geta að tilraunirnar voru gerðar á
tímabili sem loftslag var hagstætt
kornrækt um miðja 20. öldina.
Í aldarbyrjun tók Ingvar
Björnsson ráðunautur saman
upplýsingar um kosti og galla
við hagnýtingu skjólbelta í
landbúnaði. Þar segir Ingvar um
kornrækt: ,,Ljóst er að skjól getur
skipt sköpum fyrir kornrækt á
Íslandi í köldum eða þurrum
árum. Í ljósi þeirra niðurstaðna
ætti ræktun skjólbelta að verða
liður í framtíðarskipulagningu
þeirrar ræktunar hér á landi ef
tryggja á árvissari uppskeru og
minni sveiflur milli ára.“
Ljóst er að bændur eru
sumir hverjir landsárir og vilja
ekki láta gott ræktarland undir
skjólbeltaræktun. Rannsóknir
erlendar og innlendar sýna
þó að meiri ávinningur er
af því að rækta skjólbelti
jafnvel á góðu ræktunarlandi.
Uppskeruaukningin vegur upp
tapið á flatarmáli ræktunar-
landsins. Líklegt er enn fremur
að akrar sem umluktir eru
skjólbeltum standist betur
illviðri. Landshluta verkefnin
í skógrækt hafa veitt styrki til
skjólbelta ræktunar í tæpa tvo
áratugi. Hafa skjólbelti sprottið
upp víða um sveitir og árangur
yfirleitt verið góður, en svo
virðist sem bæta megi verulega
í, sér í lagi í kringum kornakra.
Það vekur nokkra undrun hversu
lítið kornbændur hafi notfært
sér rannsóknaniðurstöður
Klemensar og fleiri aðila sem
og möguleikana á styrkjum til
skjólbelta ræktar, enda miklir
hagsmunir í húfi að korn nái
nægilegum þroska, sér í lagi í
köldum árum.
Ingvar Björnsson, 2000.
Um hagnýtingu skjólbelta
í landbúnaði. http://saga.
bondi.is/wpp/almhand.nsf/
id/CBABD86098FE7920002
569BA004165C6
Sjá Klemenz Kr. Kristjánsson,
1976. Áhrif skógarskjóls á
kornþunga. Skógræktarritið
1976, bls. 23-26. http://skog.
is/skjol/Rit1976/
Virðingarfyllst,
Hreinn Óskarsson
skógfræðingur
Kornrækt í skjóli trjáa
Skálholt – framtíðarsýn
heimamanns
Ég var á ágætu málþingi í Skálholti
laugardaginn 19. okt. sl., en
það var haldið að frumkvæði
Skálholtsfélagsins nýja, sem stofnað
var í sumar. Þar var fjallað um
framtíð Skálholts, þar sem m.a.
voru til umræðu spurningar um
hlutverk og rekstur staðarins
og framkomnar hugmyndir um
miðalda„kirkju“, sem setja á inn
á deiliskipulag sem nú er í vinnslu
fyrir Skálholtsjörðina. Þar voru
fróðleg framsöguerindi og ágætar
pallborðsumræður á eftir. Í mínum
huga er niðurstaðan eftirfarandi.
Það er mikilvægt að gott samráð
verði haft við alla sem málið
varða, við kirkjuna, heimamenn
í nágrannasveitum, tónlistarfólk,
ferðaþjónustu aðila, hollvini staðarins
o.s.frv. og komist verði að niðurstöðu
sem allir geta verið sáttir við, þannig
að staðurinn geti áfram þjónað sem
menningar-, fræðslu- og kyrrðarsetur
fyrir landsmenn alla, en jafnframt sinnt
auknum ferðamannastraumi, miðlað
merkilegri sögu staðarins á sem
áhrifaríkastan og fagmannlegastan
hátt, og sem, ef vel tekst til,
gæti skotið sterkari fótum undir
fjárhagslegan grundvöll staðarins
sem menningarseturs. Skálholt þarf
að verða sjálfbært.
Það kom fram í máli Kristjáns Vals
Ingólfssonar að mikið viðhaldsstarf
og dýrt liggur fyrir í Skálholtskirkju
og er orðið mjög brýnt. Gera þarf
við gluggana, hin fögru listaverk
Gerðar Helgadóttur og einnig við
kirkjuklukkurnar og festingar þeirra,
en ein þeirra liggur enn brotin á
turnloftinu eftir að hún slitnaði niður
fyrir mörgum árum.
Pétur H. Ármannsson, arkitekt á
Minjastofnun Íslands, sagði mikið
verk óunnið í skráningu fornminja
á Skálholtsjörðinni. Ekki verði hægt
að ganga frá deiliskipulagi fyrr en slík
skráning liggi fyrir. Mikið á líka eftir
að gera í fornleifauppgrefti.
Fyrir liggur því að ganga til
þessarar skráningarvinnu áður en
frekar verður aðhafst.
Sem heimamaður í Biskups-
tungum hef ég átt þá ósk heitasta
að byggt verði gott safnaðarheimili
í nágrenni kirkjunnar, þar sem þeir
sem vinna í kirkjunni, þar með talið
tónlistarfólk og heimamenn, hefðu
vinnuaðstöðu og salernisaðstöðu.
Hluti af kjallara Biskupshússins
hefur gegnt því hlutverki, en er allt
of þröng aðstaða eins og er. Einn
möguleiki væri að taka stærri hluta
kjallarans til þeirra nota og sóknirnar
og tónlistarfólk greiddu þá einhverja
húsaleigu fyrir aðstöðuna. Þetta þarf
allt að semja um og ræða.
Eins er mikilvægt að búskapur
haldi áfram á jörðinni, og gefi
umhverfi kirkjunnar líf og tilgang.
Ég er alin upp við það að ásýnd
staðarins eigi að vera stílhrein, ekkert
megi skyggja á kirkjuna, og er ég enn
þeirrar skoðunar. Þær byggingar sem
kæmu yrðu að falla inn í umhverfið
og þann byggingarstíl sem fyrir er.
Í þessu efni má ekki flana að neinu
heldur vanda til verka. Víti til
varnaðar er Þorláksbúð – eins og það
er fallegt og vel smíðað hús, ef það
stæði einhversstaðar annarsstaðar.
Varðandi ferðaþjónustuna er ég
sammála um að það verður að taka á
móti ferðamönnum af fagmennsku og
gestrisni á þann hátt að það trufli sem
minnst helgi staðarins. Og móttaka
ferðamanna þarf að vera opin alla
daga og á ákveðnum tímum, alltaf.
Ef tekinn er aðgangseyrir þarf líka
eitthvað að vera í boði.
Ég hef oft tekið í húninn á
þjónustu skúrnum á hlaðinu hér fyrir
framan skólann, en hingað til hefur
hann nær alltaf verið lokaður. Ekki
er von að reksturinn gangi vel ef aðrir
hafa sömu reynslu.
Klósettin mætti vel útbúa þannig
að gestir borguðu sig inn. Útlendingar
eru vanir að þurfa að borga fyrir
klósettaðstöðu og Íslendingar myndu
venjast því líka. Klósettpappír er
dýr í alla þá túrista sem stoppa á
Skálholtshlaðinu.
Í þessu sambandi langar mig að
segja frá upplifun minni af því að
koma til Stonehenge í Englandi, en
mér dettur í hug að eitthvað svipað
mætti gera í Skálholti.
Þegar ekið er í áttina að
Stonehenge blasa þessir risastóru
steinar við á hæð inni á milli sléttra
akra í aðeins öldóttu landslagi, en
engin önnur sýnileg mannvirki þar í
kring. Þegar komið er að staðnum er
ekið í sveig niður á bílastæði í dálítilli
lægð, sem ekki sést neins staðar frá,
og þar er gengið inn í þjónustuhús
með öllu því sem ferðamanninn
vantar. Allt neðanjarðar og sést
ekki heldur tilsýndar. Yfirborðið er
grænn akur. Þar er klósettaðstaða,
vönduð margmiðlunarsýning um
sögu staðarins, minjagripaverslanir,
o.fl o.fl. Þar borgar maður sig inn,
getur leigt heyrnartæki með lýsingu á
því sem fyrir augu ber, valið um ýmis
tungumál, og síðan gengur maður upp
á yfirborðið eftir vel mörkuðum og
merktum göngustíg í þögn meira
og minna og upplifir staðinn. Þeir
sem vilja njóta kyrrðar geta það líka
með því að taka niður heyrnartækin.
Þegar við vorum þarna var stanslaus
straumur ferðamanna gegnum staðinn,
en það var ekki óþægilegt og maður
kom til baka margs vísari og hrifinn.
Væri þetta ekki betri lausn en
risa fornaldar timbur„kirkja“? Það
hefur ekki verið kynnt svo ég viti
hvað eigi að fara fram þar inni,
sennilega eitthvað svipað og í öðrum
ferðamannamiðstöðvum. Fólk á að
borga sig inn og kaupa minjagripi og
horfa á sýningar. Ég bý í timburhúsi
og veit að timburhús þurfa viðhald
og það er dýrt. Hvað þá þegar um er
að ræða risa timburkirkju í íslensku
veðurfari. Hefur verið hugsað út í
það? Illa viðhaldið hús hefur lítið
aðdráttarafl. Kirkjur annars staðar
í heiminum eru flestar mun stærri
en á Íslandi og það getur varla þótt
merkilegt að koma inn í eftirlíkingu
af timburkirkju, þótt stór sé á
íslenskan mælikvarða.
Að mínu mati þarf ekki að reisa
neina eftirlíkingu. Saga staðarins
stendur fyrir sínu og má segja hana
í öðrum sölum með áhrifaríkum og
nútímalegum hætti. Og einnig segja
sögu kirkjunnar sem nú stendur og
þeirra listaverka sem prýða hana
áður en fólk fær að ganga inn í
helgidóminn – í þögn. Eins þarf að
beina gangandi umferð um afmarkaða
og merkta göngustíga um umhverfið,
gjarnan með „audioguide“.
Ein hugmynd er að byggja
ferðamannamiðstöðina yfir rústirnar
fyrir sunnan kirkjuna, sem yrðu
þá hluti af sýningu og upplifun á
fornri sögu staðarins. Rústirnar yrðu
sýnilegar en jafnframt varðveittar.
Slíkt hefur verið gert með góðum
árangri á stöðum þar sem mikið er
af fornminjum, t.d. í Aþenu – eða í
Reykjavík...
Grasþak færi örugglega ekki illa
sunnan við kirkjuna og hægt væri að
tengja bygginguna göngunum inn í
safnið í kjallara kirkjunnar og þaðan
upp? (Þyrfti að laga það aðgengi,
jafnvel koma þar fyrir klósettum
fyrir kirkjugesti?..)
Ferðamannamiðstöðin þyrfti þó
auðvitað ekki að vera neðanjarðar
eða með sléttu grasþaki, en bara
þannig að húsið truflaði ekki
ásýnd staðarins, væri lágreist og í
sama stíl og önnur hús á staðnum
og með aðgengi sem ekki truflaði.
Nauðsynlegt er að húsið yrði
eins viðhaldsfrítt og unnt er og
umhverfisvænt.
Þetta eru bara hugmyndir sem
hafa verið að gerjast síðan á síðasta
íbúaþingi um Skálholt í nóvember
í fyrra og mér dettur í hug að gætu
verið innlegg í umræðuna um framtíð
staðarins.
Geirþrúður Sighvatsdóttir,
félagi í Skálholtsfélagi hinu nýja.
Víti til varnaðar er Þorláksbúð – eins og það er fallegt og vel smíðað hús, ef það stæði einhvers staðar annars staðar.
Mynd / HKr.
Vettlingaveður alla daga