Bændablaðið - 31.10.2013, Qupperneq 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 31. október 2013
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Lax, lax, lax og aftur lax
Hafliði og Ingibjörg, ábúendur í
Garpsdal, hófu búskap vorið 1973
með blandaðan búrekstur. Hafliði
er frá Garpsdal og Ingibjörg úr
Reykjavík. Árið 1980 stóðu þau
frammi fyrir því að þurfa að
byggja upp og ákváðu að fara út í
sauðfjárbúskap og byggja fjárhús.
Þau hafa bæði alltaf unnið mikið
með búskapnum; Hafliði í verktöku
og sæðingum, en Ingibjörg er
hjúkrunar fræðingur á heilsugæslunni
á Reykhólum og Búðardal. Börnin
voru þrjú; Kristján Viðar, Haflína
Ingibjörg og Sigurður Rúnar. Kristján
lést árið 2003 í bílslysi. Á álagstímum
vor og haust koma Haflína og
Sigurður Rúnar til aðstoðar. Eins er
Aron, elsta barnabarnið, mjög mikið
hjá ömmu sinni og afa og hjálpar
verulega mikið til, enda hefur hann
mikinn áhuga á búskap.
Býli? Garpsdalur, Reykhólahreppi.
Staðsett í sveit? Gilsfjörður.
Ábúendur? Hafliði Viðar Ólafsson
og Ingibjörg Kristjánsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra)?
Tveir fullorðnir, þrír hundar og tveir
kettir.
Stærð jarðar? Tæplega 3.000 ha.
Gerð bús? Sauðfjárbú , dúntekja og
skógrækt.
Fjöldi búfjár og tegundir? 450 fjár
og um 1.000–1.200 æðarfuglar.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Misjafnt eftir árstíma.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Sauðburður og
dúntekja eru skemmtilegust en
viðgerðir og að krafsa dún leiðin-
legast.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir
fimm ár? Vonandi svipaðan.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Held að þau séu
sæmileg, við erum ekki góð í að
fylgjast með því.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í fram tíðinni?
Vonandi vel en það þarf að gefa
ungu fólki betra tækifæri og
styðja betur við bakið á því, til að
eðlileg endurnýjun verði.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Smjör, mjólk og ostur.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Lambakjöt og fiskur.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Það hefur margt komið
upp á löngum tíma, en ætli það sé
ekki eitt haustið þegar við vorum að
reka féð inn, þá var hópur af kindum
(systur og fjölskyldur þeirra) sem
hafði verið erfitt að ná, þær voru
mjög léttar á sér og stukku yfir allt
sem fyrir var og létu illa. Þegar leið
á haust leit út fyrir slæmt veður og
við að reka inn, þá tekur ættmóðirin
sig til og stekkur yfir girðingar til
hópsins. Við vorum ekki ánægð en
kemur sú gamla ekki röltandi með
allan hópinn og inn fóru þær.
Laxveiðiárið var veiðimönnum
gjöfult og víða eru frystikistur
fullar af fiski. Laxinn er úrvals-
hráefni og sannkallaður herra-
manns matur. Við Íslendingar
erum heppnir að hafa ferskan
og góðan fisk á okkar borðum
allt árið um kring. Galdurinn í
eldamennsku á fiski er að ofelda
hann ekki og fara spar lega með
kryddið – salt er oft það eina sem
þarf!
Nú tökum við graflaxinn föstum
tökum, steikjum svo laxaflak upp á
gamla mátann með kartöflusmælki
og bjóðum upp á ofngrillaðan lax
í lokin.
Léttgrafinn lax í kóríander,
dilli og sítrónu – fyrir 4-6
› 500 g laxaflak
› 100 g salt
› 70 g sykur
› 10 g (ca. ½ tsk.) svartur pipar
› 1 msk. fennel (duft)
› 1 msk. kóríander (duft)
› 3 msk. dill
› Sítrónubörkur af einni sítrónu
Aðferð
Blandið öllum kryddum saman og
stráið 1/3 af blöndunni í botninn á
bakka. Leggið laxaflakið í bakkann
þannig að roðið snúi niður og stráið
svo restinni af kryddinu yfir flakið.
Lokið bakkanum vel með plastfilmu.
Látið standa úti á borði í þrjár
klukkustundir og síðan inni í kæli
í sólarhring.
Þá er flakið hreinsað undir köldu
vatni og þerrað á pappír. Loks er
fersku dilli stráð yfir og berki af
sítrónu. Munið að rífa aðeins ysta
skærgula lagið af sítrónuberkinum.
Laxinn sneiddur þunnt og borinn
fram með graflaxsósu og ristuðu
brauði.
Steiktur lax með kartöflum
› 800 g laxaflök án roðs
› 200 g kartöflusmælki
› 1 stk. hvítlauksgeiri, marinn
› 1 stk. gulrót, smátt skorin
› 1 stk. fennel, smátt skorið
› 1 stk. rauðlaukur, smátt skorinn
› vatn
› salt
› smjör
Aðferð
Ristið smátt skorið grænmetið á
pönnu og takið til hliðar. Setjið smá
salt út í.
Sjóðið kartöflurnar með hvítlauk
í vatni í u.þ.b. 25 mín. við vægan
hita.
Skerið laxinn í 4 steikur og steikið
í smjöri í u.þ.b. 3 mín. á hvorri hlið
við miðlungs hita. Kryddið laxinn
með salti.
Bætið grænmetinu á pönnuna í
lokin og framreiðið með laxinum.
Ofngrillaður lax með rauðu
greip – fyrir 4
› 800 g lax
› 100 g kartöflusmælki
› 1 stk. fennel
› 100 ml ólífuolía
› salt og pipar
› 1 stk. pera
Aðferð
Laxinn er skorinn í hæfilegar steikur
og kryddaður með salti og pipar.
Penslið yfir laxinn ólífuolíu. Setjið
undir grill við háan hita í 2-5 mínútur
eða þar til fiskurinn er hálfeldaður í
gegn. Bætið þá rauðum greipávexti
við í fatið ásamt fínsöxuðum
fennel. Framreiðið með soðnu
kartöflusmælki og steiktri peru.
MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI
Garpsdalur
Kristján Snær og Geirmundur Viðar
Sigurðssynir.