Bændablaðið - 28.11.2013, Síða 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. nóvember 2013
Kristján og Herdís fluttu í Efri-
Múla 7. júlí 1995. Búskaparhættir
hafa verið svipaðir frá þeim tíma.
Byggður var mjaltabás í fjósinu
sem tekinn var í notkun 2006 og
mjólkað í honum til ársins 2010.
Þá var breytt og aftur farið að
mjólka með rörmjaltakerfi. Er
þeim bændum tjáð að þau séu
líklega einu bændurnir á landinu
sem hafa skipt yfir í mjaltabás og
síðan aftur til baka í rörakerfi.
Nú á næstu dögum er þó verið að
taka mjaltabásinn aftur í notkun
en það kemur ekki til af góðu.
Kristján lenti í því óhappi að
fótbrotna og mjólkar ekki meira
í básum með rörmjaltakerfi.
Býli: Efri-Múli.
Staðsett í sveit: Saurbæ í
Dalabyggð.
Ábúendur: Kristján Garðarsson og
Herdís Rósa Reynisdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Börnin eru fjögur. Haraldur Garðar
og kona hans Valgerður eru búsett á
Akranesi en heima við eru Elísabet
Ásdís, Stefán Rafn og Árdís Lilja.
Gæludýrin eru kattadrottningin
Mjöll og nokkrir undirmenn hennar
í fjósinu, naggrísinn Bjalla, kanínan
Bunny, hundarnir Boris og Collý,
trippið Ásborg og gælugrísir.
Stærð jarðar: 80 hektarar.
Gerð bús: Kúabú.
Fjöldi búfjár og tegundir: Ætli
séu ekki rétt rúmlega 100 gripir í
fjósinu þennan veturinn.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á
bænum? Börnin fara til sinnar
vinnu kl.7.30. Sú yngsta fer í
Grunnskólann í Búðardal en hin
tvö í framhaldsskóladeildina sem
einnig er í Búðardal. Upp úr því
fara svo karl og kerling ásamt
vinnumanninum Katarínusi til
sinna verka. Það er sama rútínan
365 daga á ári, morgunmjaltir og
gegningar, önnur störf sem til falla
og svo kvöldmjaltir.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin: Ansi mörg verk geta
flokkast sem skemmtilegustu
verkin en ætli það sé samt ekki
heyskapurinn sem stendur upp úr.
Allir á heimilinu eru sammála um
að leiðinlegast sé að gefa kálfunum
mjólk, þetta litla, fallega ungviði
breytist í villidýr þegar það er
svangt.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir 5 ár?
Í blóma!
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Já, svo mikla að
við tjáum okkur ekki um það hér.
Hvernig mun íslenskum
landbúnaði vegna í framtíðinni?
Heimurinn hlýtur einhvern
tíma að átta sig á mikilvægi
matvælaframleiðslu svo það getur
ekki annað verið en björt framtíð
í landbúnaði og sérstaklega
íslenskum.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Mjólkurvörur á Ameríkumarkað.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Ekkert, ef þú spyrð börnin, en
annars er það líklega mjólkin.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Steiktur fiskur.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin: Þegar kýrnar fóru sína
fyrstu ferð í gegnum mjaltabásinn.
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Hrökkbrauð og brauðstangir fyrir bóndann
Nú er aðventan að bresta á
af öllum sínum þunga með
tilheyrandi bakstri og fjöl-
breyttustu kræsingum. Þar sem
desember er ekki ennþá runninn
upp koma hér tvær uppskriftir að
hrökkbrauði og brauðstöngum
til að krydda hversdagsleikann.
Það er kjörið að maula á þessu
þurrmeti áður en veisluhöldin
hefjast!
Hollt hrökkbrauð
› 50 g haframjöl
› 180 g hveiti / heilhveiti
› 1dl vatn
› ½ dl olía
› 1 tsk. lyftiduft
› 1tsk. salt
› 50 g sesamfræ
› 50 g hörfræ
› 50 g sólkjarnafræ
› 50 g graskersfræ
Fyrst þarf að hræra saman öllu
þurrefninu og bæta svo vatninu og
olíunni við.
Síðan er deiginu skipt í tvennt.
Athugið að deigið er mjög blautt.
Leggið bökunarpappír á plötu
og annan hlutann af deiginu ofan á
bökunarpappírinn.
Leggið svo aðra örk af bökunar-
pappír ofan á deigið og hinn partinn
af deiginu ofan á. Leggið síðan
pappír ofan á seinna deigið. Þá
eru komin tvö lög af deigi með
bökunarpappír á milli, undir og yfir.
Auðveldast er að fletja deigið út
með þessari aðferð. Það hjálpar líka
til við þrifin að ekkert deig festist
við kökukeflið.
Hægt er að setja hvaða krydd eða
fræ sem er á toppinn.
Setjið inn í ofn sem stilltur er á
180 gráður og bakið í 20–30 mínútur
eftir því hversu þunnt deigið er.
Gott með hvaða áleggi sem er –
t.d. osti, hummus eða kæfu.
Brauðstangir bóndans
Brauðstangir eða „Grissini“ er
auðvelt að gera og breyta eftir
smekk. Hægt er að setja ýmis
krydd á stangirnar eins og rósmarín
eða hin fjölbreyttustu fræ. Stökkt
brauðið eru gott með ídýfu og hentar
líka ágætlega sem snakk. Gott er að
strá ögn af sjávarsalti á stangirnar
áður en þær eru bakaðar.
› ½ bolli heitt vatn
› 1 pakki þurrger
› 1 tsk. sykur
› 1¼ bollar hveiti
› ½ bolli heilhveiti
› 2 matskeiðar ólífuolía
› 1 tsk. sjávarsalt
› 1 msk. saxað rósmarín
Blandið vatni og geri saman
í stórri skál ásamt sykrinum og
helmingi af hveitinu. Setjið til hliðar
í 10 mínútur.
Bætið í deigið 1 matskeið af fínt
söxuðu fersku rósmaríni. Það má líka
í staðinn nota ferskan malaðan pipar,
timian eða kúmen.
Hrærið restina af hveitinu,
heilhveiti, ólífuolíu og salti. Hnoðið
í um 5 mínútur eða þar til deigið er
slétt og teygjanlegt. Penslið skál
með örlítilli ólífuolíu. Setjið deigið
í skálina, lokið með plastfilmu og
leyfið að lyfta sér á heitum stað í
um 1 klst.
Takið deigið úr skálinni og skiptið
því í fjóra hluta. Setjið á borðið með
ögn af hveiti. Rúllið út hvert stykki í
um 4–12 cm langar lengjur. Leyfið
grissini-stöngunum að lyfta sér í
um 30 mínútur. Á meðan er ofninn
hitaður upp í 200 gráður.
Bakið í um 10 mínútur, eða þar
til brauðstangirnar eru brúnar og
fallegar.
Efri-Múli
MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI
Árdís Lilja stolt hjá kúnni sinni Frúði nýborinni.
Heimasætan Elísabet Ásdís vippar böggum til með bros á brá.
Stefán Rafn hjálpar þriðja ættlið kúastofns síns heim á leið en kvígan Blíða
og ættmóðirin Fríða fylgjast með tilburðunum.