Læknablaðið - 01.04.1966, Blaðsíða 36
(iO
LÆKNABLACH)
6. Sjúklingar með cancer ventriculi
(6., 7. og 8. tafla).
Af hinum 74 sjúklingum, sem greindir voru með „tumor ventri-
culi“, voru 49 (66.2%) með krabbamein í maga. Að frádregnum æxl-
um utan maga, góðkynja magasárum og öðrum sjúkdómsbreytingum,
auk of- eða vangreininga, voru æxli í maga alls 56. Magakrabbinn er
því 87.5% allra æxla í maga í þessari rannsókn, en góðkynja æxlin
12.5%.
Átta krabbameinssjúklinganna voru dæmdir algjörlega óskurð-
tækir, enda létust þeir skömmu síðar, og sjúkdómsgreiningin þar var
staðfest við krufningu. Einn sjúklingur lézt í heimahúsum fyrir 1.
júlí 1965 og var ekki krufinn, en einn sjúklingur vildi ekki gangast
undir skurðaðgerð. Feril hans hefur ekki tekizt að rekja, og er hann
talinn meðal lifenda í 6. töílu.
Hjá þessum síðasttöldu sjúklingum má röntgengreining teljast
örugg.
f 7. töflu er greind aldurs- og kynjaskipting 47 sjúklinga; þ. e.
ailra þeirra, er sjúkdómsgreiningin „cancer ventriculi“ var staðfest
hjá, annaðhvort við skurðaðgerð eða krufningu.
8. tafla gerir samanburð á aldursdreifingu þess hóps og skráningu
krabbameinsskrár 1955—1963. 4 Kvennahópurinn, sem hér er til at-
hugunar, er of lítill til raunhæfs samanburðar, en í karlahópnum er
allgott. tölulegt samræmi milli þessara tveggja athugana.
Toble 8: Percenlqge oge distribution of Stomoch concer.
I
Q
Concer Regisfry
1955 - 1963
Presenf
Series (47 coses)
8. tafla
Samanburður í hundraðstölum á aldursskiptingu.