Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.04.1966, Side 40

Læknablaðið - 01.04.1966, Side 40
64 LÆKNABLAÐIÐ 9. Röntgenrannsókn í leit að magakrabba Röntgenrannsókn er enn þá ein mest notaða aðferðin í leit að maga- krabba. Miklu máli skiptir, hvernig rannsóknin er framkvæmd. Að sjálfsögðu verður sjúklingurinn að vera fastandi á mat og drykk. Sé klíniskur grunur um teppu (retentio), þarf að skola og tæma magann a. m. k. í einn sólarhring, áður en rannsókn er gerð. Skuggaefnið, sem almennt er notað, er svifblanda af bariumsúlfati í vatni. Þykkt á þeirri svifblöndu þarf að ákvarða með tilliti til hörku þeirra röntgengeisl- unar, sem notuð er til myndatökunnar. Skyggning er mikilvægur þátt- ur rannsóknarinnar, og er þá allt undir því komið, að „adaptatio" skyggnandans sé fullkomin, þannig að hann geti fylgzt með hreyfingu magans og mýkt veggjarins, en til þess þarf að nota hæfilegan þrýst- ing á kvið sjúklingsins með þar til gerðum koddum. Með sjónvarpsskyggnimögnun batnar aðstaða skyggnandans mjög, og tækni öll við magaskyggningu verður nokkuð frábrugðin eldri tækni við magaskyggningu.18 Nauðsynlegt er að taka röntgenmyndir, er sýna slímhúð magans sem bezt, en auk þess myndir af maganum vel fylltum í mismunandi stöðum. 10 17 Við röntgenrannsókn geta komið fram breytingar, sem eru aug- ljóslega eða mjög sennilega af völdum krabbameins. Aðrar breytingar geta bent til illkynja vaxtar, en eru ekki eins einhlítar, og loks getur röntgenrannsókn verið algjörlega neikvæð, þótt um illkynja vöxt sé að ræða í maganum. Fyllingarrof í skuggaefnið í vel fylltum maga er venjulega ótví- rætt merki um illkynja æxlisvöxt; sömuleiðis óregluleg rof í slímhúð- armyndina, en þau sjást mjög oft við ífarandi vöxt í magaveggnum. Meðal þeirra einkenna, sem benda mjög eindregið til illkynja æxl- is, má nefna sár með sérstöku útliti (3. mynd), stífni í hluta maga- veggjarins, þrengsli í sinus- og canalis-hluta magans og einstöku sinn- um breiðar, fremur stífar slímhúðarfellingar. Þessar síðasttöldu breyt- ingar eru þó ekki einhlít einkenni um illkynja æxlisvöxt. Loks getur verið krabbameinsvöxtur hvar sem er í slímhúð mag- ans, án þess að röntgenrannsókn geti sýnt hann. Einkum er þetta í fornix- og cardia-svæðum magans, en það geta einnig verið útbreiddar íferðir um slímhúðarbeðinn, án þess að magaveggurinn sé áberandi stífur. Oftast má þó í þeim tilfellum sjá einhverjar óljósar breytingar, sem hvetja til frekari rannsókna. Sjálfsögð og einföld aðferð, sem oft gefur góðan árangur, er loftfylling magans: Sjúklingurinn fær um 1.5 g acid. tartaricum og um 2 g natri bicarbonas í dufti, sem hann kyngir með einum eða tveim sopum af skuggaefnisblöndu (eða aðeins vatni). Við þetta fæst mikil loftmyndun í magann, og má þá oft sýna fram á æxlisvöxt í maganum, einkum í fornix-svæðinu, sem erfitt er að greina á venjulegum röntgenmyndum (4. mynd). Frekari árangri má ná í vafatilfellum með parietografiu.1X,16 Dælt er 200—300 ml af súr- efni inn í kviðarhol, lofti bætt í magann með áðurgreindri aðferð, en síðan teknar sneiðmyndir í fyrirfram ákveðnum stöðum. Þessi rann- sókn veitir oft mjög góðar upplýsingar um útbreiðslu æxlis gegnum magann og íferð í aðliggjandi vefi.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.