Læknablaðið - 01.04.1966, Síða 42
66
LÆKNABLAÐIÐ
Nauðsynlegt er að gera sér grein fyrir og meta aðrar rannsóknar-
aðferðir, sem hugsanlegt er að beita til þess að ná meiri nákvæmni í
greiningu magakrabba og einkum til þess að greina hann fyrr en nú
gerist almennt. Hér skal lauslega drepið á nokkrar aðferðir, sem rutt
hafa sér nokkuð til rúms á umliðnum áratug og miklar vonir eru
bundnar við:
1) Frumurannsókn (exfoliative cytology). Með réttfram-
kvæmdri magaskolun getur æfður frumufræðingur greint
illkynja frumur úr magaslímhúð með allt að 85% öryggi.
Sé auk þess tekið tillit til þess, að frumugreining getur
einatt verið jákvæð í tilfellum, þar sem röntgengreining
hefur verið neikvæð eða vafasöm, má telja þessa rann-
sóknaraðferð ómissandi. Á núverandi stigi þekkingar okk-
ar leysir þó frumurannsóknin ekki þann vanda, sem staf-
ar af því, hve sjúklingar koma seint til rannsókna vegra
lítilla og óljósra einkenna. Frumurannsóknir eru hins veg-
ar sennilega færari leið til hóprannsókna á einkennalaus-
um einstaklir.gum en röntgenrannsókn. -
2) Raflínuritun (electrogastrografia). Með tilliti til þeirra
leiðslutruflana, er koma við ífarandi vöxt eða bólgur í
magaveggnum, er trúlegt, að raflínuritun geti orðið mik-
ilsverð rannsóknarsðferð í framtíðinni. Rannsóknir á raf-
línuritun eru hins vegar enn mjög á tilraunastigi. 2 Tækist
að fullkomna þessa aðferð, gæti hún verið mjög handhæg
hóprannsóknaraðferð. Sennilega mun raflínuritun þó ekki
geta sýnt æxlisvöxt, sem er á það lágu stigi, að vöðvalög
magans eru algjörlega óskemmd.
3) Magaspeglun og magaljósmyndun (gastroscopiaog„gastro-
camera".1G Tæki til magaspeglunar hafa tekið byltingar-
kenndum framförum á siðastliðnum hálfum áratug. Þau
eru nú orðin mjög auðveld í meðförum. Einn aðalókostur
magaspeglunarinnar var áður, að verulegir hlutar magans
voru óaðgengilegir til speglunar. Með tilkomu hinna svo-
nefndu trefjaglerstækja má nú segja, að langflest svæði
magans séu vel aðgengileg speglun. Nýjustu endurbætur
á þessu sviði er hin svonefnda gastrocamera: Á létt gastro-
scop með trefjaglersspeglun er sett lítil myndavél, er tek-
ur litmyndir af öllum þeim svæðum, sem sérstaklega þarf
að rannsaka. Tæki þessi, sem uporunnin eru frá Japan,
hafa nú verið fullreynd víða um heim, og er árangur af
þeim við sjúkdómsgreiningu talinn mjög góður, einkum
um að greina milli góðkynja og illkynia breytinga og
fylgjast með sjúklingum og staðfesta eða útiloka sjúk-
dómsbreytingar, er grunsamlegar hafa þótt við röntgen-
rannsóknir. Við þessa gastrocameru eru miklar vonir
bundnar, og er rannsóknaraðferðin það tiltölulega einföld,
að jafnvel mætti beita henni við hóprannsóknir.