Læknablaðið - 01.04.1966, Síða 68
90
L Æ K N A B L A Ð IÐ
Árni Björnsson:
II. ALÞJÓÐAÞING UM RANNSÓKNIR
Á BRUNASÁRUM
(Second International Congress for Research in Burns) var hald-
ið í Edinborg dagana 20.—24. september 1965.
Fyrsta alþjóðaþing um þetta efni var haldið í Washington D.C.
árið 1960.
Boðið var til þings þessa læknum og vísindamönnum frá öll-
um löndum heims, þeim sem fengizt hafa sérstaklega við rannsóknir
og meðferð á brunasárum.
Til fundarins komu fulltrúar frá 42 löndum, flestir frá Brezka
samveldinu og Bandaríkjunum, en alls voru fulltrúar um 400 með
aukafulltrúum. Frá íslandi var boðið Ófeigi J. Ófeigssyni og Árna
Björnssyni. Forseti undirbúningsnefndar var Alister B. Wallace og
ritari Anne Sutherland, en nefnd brezkra lækna hafði annazt allan
undirbúning og boðað til fundarins, þar eð ekki hefur fram að þessu
verið til nein alþjóðleg samtök um rannsóknir á bruna og bruna-
meðferð.
Þingið var haldið í nýjum húsakynnum Edinborgarháskóla í Hume
Tower og var sett að morgni hins 20. september.
Umræðuefni mánudagsins 20. sept. voru nýrnaskemmdir við
bruna, rannsóknir á þeim og meðferð og á hvern hátt sé hægt að
koma í veg fyrir þær. Þá var rætt um brunalost, aðallega um það,
hverjum aðferðum má beita til að koma í veg fyrir það og hver með-
ferð sé heppilegust við ólíkar aðstæður og hverjar séu orsakir bruna-
lostsins.
Síðari hluta sama dags var rætt um breytingar á vökvajafnvægi,
hlutföllum lífrænna og ólífrænna efna í líkamanum við bruna og
hvernig og hvort hægt sé að halda réttu jafnvægi með viðeigandi
meðferð.
Dagskrá fyrri hluta þriðjudags var helguð þróunarlöndunum, og
fluttu fulltrúar frá þeim erindi um það, hversu tíð brunaslys eru í
þessum löndum og hversu erfitt er um slysavarnir og meðferð slys-
anna vegna ófullnægjandi sjúkrahúsa, læknaskorts, fátæktar og fá-
fræði. Þennan morgun voru einnig flutt erindi um fjöldaslys af eldi
og tölfræðilegar rannsóknir á sjúkleika- og dauðsfallatíðni við bruna.
Erindi síðari hluta þessa dags fjölluðu um ýmis atriði varðandi bruna-
meðferð, m. a. um skinnflutning o. fl.
Miðvikudaginn 22. sept. var eingöngu rætt um ígerðir (infection)
í brunasárum, um það, hvernig eðli þeirra hefur breytzt á síðari ár-
um með fúkalyfjameðferð. Kom þar fram, að ígerðir vegna pseudo-
monas pyocyanea eru orðnar lang-hættulegastar og raunar aðaldánar-
orsök við meiri háttar bruna, en enn hafa ekki komið fram neinar
árangursríkar aðferðir til að halda þessum ígerðum niðri eða í skefjum.