Læknablaðið - 01.06.1967, Qupperneq 33
LÆKNABLAÐIÐ
75
sjúklingur — eða 16,7% — er á lífi tveimur og hálfu ári eftir að-
gerð. Sá eini sjúklingur, sem við höfum misst eftir aðgerð, hafði
þessa tegund æxlis og fékk herkjufistil og fleiðruholsígerð, svo sem
áður er getið. Hinir dóu 9—27 mánuðum eftir aðgerð.
Hr aðeins einum sjúklingi með oat cell carcinoma hefur
hrottnám reynzt kleift, og er hann enn á lífi, þremur árum eftir
aðgerð, en þvi miður kominn með endurvöxt (residiv) nú. Mein-
vörp voru komin í miðmætiseitla, þegar aðgerð var gerð. Þessar
tvær síðasttöldu tegundir eru þær alverstu eða illkvnjuðustu af
lungnaæxlum, ef svo má að orði komast. Miklu færri sjúklingar
reynast skurðtækir, sem hafa þessar tegundir æxla, og batahorfur
eru mun lakari, jafnvel þó að takist að nema æxlið hrott.
Oat cell æxli hefur svo slæmt orð á sér, að fjölmargir skurð-
læknar telja aðgerðir vonlausar með öllu, ef rannsóknir leiða í
ljós þessa tegund æxlis, og því miður er það staðreynd, að þær
eru mjög vonlitlar.
Þessar tvær síðasttöldu tegundir krahbameina eru miklu al-
gengari hér hjá okkur en nokkurs staðar annars staðar að því er
vitað er — eða 68,1% allra lungnakrahljameina á móti 12,4—
38,5% annars staðar.'* Skaplegasta krabbameinið, flöguþekju-
krahhinn, þar sem árangur og horfur eru langbeztar, er hér að-
eins 19,8%, en í skýrslum annars staðar frá 48—73% af heild-
inni.°
Helmingur sjúklinga með adenocarcinoma reyndist hafa
skurðtæk æxli, en enginn þeirra er á lífi nú, og lifðu þeir aðeins
þrjá til sjö mánuði eftir aðgerð. Einn fékk blóðtappa í lunga, en
hinir dóu af völdum krabhameinsins. Það reyndist kleift að nema
brott meinið úr öllum sjúklingum með alveolar cell carcinoma.
Enginn þeirra er á lífi nú, en þeir lifðu fimm mánuði og allt að
tveimur og hálfu ári eftir aðgerðina. Helmingur þessara sjúklinga
var kominn með meinvörp í miðmætiseitla, þegar aðgerð var
framkvæmd.
Af öllum þeim sjúklingum, sem brottnám æxlisins reyndist
kleift úr, eru 37,5% á lífi nú tveimur og hálfu til sjö árum eftir
aðgerð.
Umræður — Ályktun og niðurstaða
I. tafla leiðir í ljós ótvíræða aukningu lungnakrabba hér á
landi, sem virðist fylgja í kjölfar mjög aukinnar vindlinganeyzlu