Læknablaðið - 01.06.1967, Qupperneq 35
LÆKNABLAÐIÐ
77
liér 68,1% — eða miklu tíoari en annars staðar. Þess er áður
getið, að horfur eru langbeztar við flöguþekjukrabba. Það er þvi
staðreynd, að við erum að glíma við illkynjaðri lungnaæxli hér
en annars staðar. Kemur það m. a. fram í því, að hér reynist oftar
nauðsynlegt að taka allt lungað, og stundum verður að taka hluta
úr aðliggjandi líffærum, til þess að unnt sé að ná því. Þeim að-
gerðum fvlgir aukin áhætta, og batahorfur eru einnig minni, þar
sem þessi miðlægu æxli hafa oft borizt til annarra líffæra, enda
þótt ekki séu lil staðar einkenni, sem bendi lil þess, þegar aðgerð
er framkvæmd.
Við höfum ekki sönnun fyrir því, hvers vegna þessar tegundir
lungnakrabbameina eru svona miklu algengari hér en annars
staðar. Flöguþekjukrabbi hefur alls staðar verið kallaður reyk-
ingakrabbi, enda algengastur annars staðar en hér. Við teljum
allar líkur á, að mjög auknar vindlingareykingar hér séu aðalorsök
aukinnar tíðni lungnakrahhameinsins, og því hljótum við að álíta,
að þessar tegundir orsakist einnig af reykingum í sama eða jafn-
vel enn ríkara mæli en flöguþekjukrabbi. Gæti þar um valdið
mismunandi erfðaþættir (genetically different host response) eða
svörun berkjuslimhúðarinnar gagnvart hinum krahhavaldandi
efnum tóbaksins.
Á IV. töflu sést, hve margir sjúklinganna revkja, miðað við
tegund æxlisins. Allt of oft vantar upplýsingar um þetta. Athyglis-
vert er, að enda þótt skýrslan sýni aðeins 48,7% stórreykinga-
menn (meira en 20 vindlingar á dag) af þeim, sem hafa oat cell,
þá er ekki vitað um neinn sjúkling hér með þessa tegund, sem
örugglega hefur ekki revkt. Hins vegar vantar upplýsingar um
41,2% sjúklinganna með þessa tegund æxlis.
Af þeirn sjúklingum, sem lungnabrottnám (resectio) er gert
á, eru 37,5% á lífi tveimur og hálfu til sjö árum eftir aðgerð eða
5,2% af öllum sjúklingunum á þessu tímahili. Fyrri talan (37,5)
er svipuð og víða erlendis; hjá Thompson t. d. voru 34,8% á lífi
eftir þrjú ár og 27,3% eftir fimm ár,3 en ekki kemur fram í skýrslu
hans, hver hlutfallstalan er miðað við alla sjúklinga á því tíma-
bili, en ef þeir nema ekki brott lungu úr nema 8—12%, þá er
hún ekki hærri en hjá okkur.
Summary
During the period 1931—1964, 197 cases of primary lung
carcinoma were diagnosed in Iceland (population 200.000). Lung'