Læknablaðið - 01.06.1967, Blaðsíða 37
LÆKNABLAÐIÐ
79
ÁRSSKÝRSLA STJÓRNAR LÆKNA-
FÉLAGS REYKJAVÍKUR 1966 TIL 1967
Félaga- Félagsmenn L. R. eru nú 195, þar af eru gjaldskyldir fé-
tal. lagar 170. í félagið gengu á árinu 11 nýir félagsmenn, en
fjórir félagar létust. í samræmi við lög L. R. nær félaga-
talið nú aðeins til þeirra lækna og kandídata, sem búsettir eru á félags-
svæðinu og greiða félagsgjald til L. R., nema ógjaldskyldir séu, en ekki
til fyrrverandi félagsmanna, er flutzt hafa á önnur félagssvæði eða af
landi brott.
Stjórn og Á aðalfundi L. R. 9. marz 1966 var kosin ný stjórn
meðstjórn. í félaginu: Árni Björnsson formaður, Guðjón Lárusson
ritari og Magnús Ólafsson gjaldkeri. f meðstjórn voru
kosnir Halldór Arinbjarnar, Ólafur Jónsson og Víkingur H. Arnórsson,
allir til tveggja ára, og Hörður Þorleifsson, Jón Gunnlaugsson og Þor-
geir Gestsson, allir til eins árs. Fyrir voru í meðstjórn þeir Ólafur
Jensson, Sigmundur Magnússon og Stefán Bogason.
Sjóðstjórnir og Stjórn Ekknasjóðs var endurkjörin á síðasta aðal-
endurskoðendur. fundi, þeir Ólafur Einar&son, Bergsveinn Ólafsson
og Halldór Hansen. í stjórn Heilsufræðisýningar-
sjóðs voru endurkosnir þeir Ólafur Helgason og Bjarni Jónsson, en
Björn Önundarson var kosinn í stað Ólafs heitins Geirssonar. Endur-
skoðendur voru endurkjörnir þeir Kristbjörn Tryggvason og Hannes
Þórarinsson og til vara Björgvin Finnsson og Guðmundur Eyjólfsson,
sem var kosinn í stað Ólafs Geirssonar.
Heiðursfélagar. Á aðalfundi 1966 voru kjörnir tveir nýir heiðurs-
félagar L. R., þeir Halldór Hansen og Valtýr
Albertsson.
Fundahöld. Á því starfsári, sem nú er að líða, hafa verið haldnir
átta almennir fundir og fimm aukafundir. Af almennu
fundunum hafa þrír verið haldnir á sjúkrahúsum þeim, sem árlega
bjóða Læknafélaginu til fundarhalda, og hafa læknar hlutaðeigandi
sjúkrahúsa séð um fundarefni. Þrír erlendir gestir hafa flutt erindi á
vegum félagsins, og þrír aukafundir hafa verið haldnir um félagsmál.
Fundahöld hafa nú flutzt í hinn vistlega sal í Domus Medica, og er
tilhögun fundanna sú .sama og var á fundunum í Hótel Sögu, þ. e. a. s.
fundarmenn hafa átt kost á kaffiveitingum.
Fundarsókn hefur yfirleitt verið góð, 50—80 manns sótt fundina.
Auk þeirra fundahalda, sem hér hefur verið minnzt á, hélt L. R. ásamt
með L. í. stofnfund Lífeyrissjóðs lækna hinn 28. des. sl.