Læknablaðið - 01.06.1967, Síða 38
80
LÆKNABLAÐIÐ
Þá fór formaður félagsins ásamt fulltrúa L. í., Ásmundi Brekkan,
um mánaðamótin september—október til Svíþjóðar, og var tilgangur
fararinnar að hitta íslenzka lækna á Norðurlöndum. Var haldinn
fundur með þeim í Gautaborg hinn 1. okt., og hefur fundargerð þessa
fundar þegar birzt í Læknablaðinu.
Skv. ósk stjórnar L. R. var haldinn almennur aukafundur hinn 11.
febrúar 1967 til að kynna félagsmönnum tillöguuppkast læknisþjón-
ustunefndar Reykjavíkurborgar. Voru tillögur nefndarinnar ræddar
mjög rækilega á fundi þessum, og kom fram veruleg gagnrýni á til-
lögurnar, aðallega þær greinar uppkastsins, sem fjölluðu um afskipti
Sjúkrasamlagsins af .störfum lækna.
Þá var á almennum fundi hinn 9. nóv. 1966 borin fram tillaga af
hálfu stjórnarinnar, þar sem hún fór fram á stuðning félagsmanna
við stefnu stjórnarinnar í launamálum lækna, en stjórnin taldi nauð-
synlegt að hafa slíka stefnuyfirlýsingu frá félaginu að baki sér í vænt-
anlegum kjarasamningum. Var tillaga stjórnarinnar samþykkt .sam-
hljóða.
Fundir í stjórn og meðstjórn voru alls 16 á árinu. Eru fundir
haldnir reglulega í byrjun hvers mánaðar, en aukafundir, ef þurfa
þykir vegna mikilvægra mála. Hafa nær öll mikilvæg mál L. R. verið
rædd á fundum með stjórn og meðstjórn, og hefur samvinna verið
með afbrigðum góð.
Bókaðir stjórnarfundir hafa verið 32 að tölu, en stjórnin hefur
svo sem áður haldið reglulega fundi í hverri viku. Auk þess hefur
stjórnin setið sameiginlega fundi með stjórn L. í., ef um hefur verið
að ræða mál, er varða bæði fálögin. Stjórnin hefur enn fremur setið
nokkra fundi með stjórn Domus Medica, en auk þess með heilbrigðis-
málaráðherra og/eða fulltrúum hans nokkrum sinnum á árinu, og
hafa þar verið rædd ýmis vandamál í sambandi við stefnu lækna í
kjaramálum, um ráðningu yíirlækna og lyfjaskrármálið. Það skal tekið
fram, að fundir þessir hafa allir verið mjög vinsamlegir, og væri æski-
legt, að þessi vísir að samskiptum milli stjórna læknafélaganna og
heilbrigðisyfirvalda megi haldast og aukast í framtíðinni.
Stjórnir L. í. og L. R. hafa sent út tvö fréttabréf á árinu, þar sem
drepið hefur verið á öll þau mál, sem efst hafa verið á baugi innan
læknasamtakanna, og verður sendingu þessara fréttabréf-a haldið
áfram eftir þörfum.
Starfsemi Þegar síðasti aðalfundur var haldinn, höfðu hafizt
skrifstofunnar. flutningar á áhöldum skrifstofunnar frá Ðrautar-
holti 20 í hið nýja húsnæði í Domus Medica. Var
flutningi skrifstofunnar lokið u. þ. b. viku eftir aðalfund. Húsnæði það,
sem skrifstofan hefur nú, er allrúmgott og að verulegu leyti búið
nýjum húsgögnum.
Starfsemi .skrifstofunnar er í örum vexti. Auk hinna daglegu verk-
efna: bréfaskrifta, skýrslugerða, innheimtu árgjalda, afgreiðslu Lækna-
blaðsins, sendingu fundarboða o. s. frv., hafði skrifstofan með höndum
reikningagerð og innheimtu fyrir spítalalækna, meðan þeir unnu eftir