Læknablaðið - 01.06.1967, Blaðsíða 41
LÆKNABLAÐIÐ
81
taxta, er launadsilan stóð á síðastliðnu ári. Þá aðstoðaði skrifstofan við
útreikninga í .sambandi við launakjör L. R., og hún tekur nú á móti
launum og heldur skrá yfir þau og heldur enn fremur eftir hluta af
þeim upp í sjóði.
Þá hefur skrifstofan í vaxandi mæli annazt skrifstofuhald fyrir
Domus Medica og lækna í Domus Medica, en í ráði er, að sú starf-
semi fái sérstaka skrifstofu, er fari með málefni þau, er varða Domus
Medica, en sú skrifstofa verður undir eftirliti framkvæmdastjóra
læknafélaganna.
Þá annast skrifstofan reiknishald og afgreiðslu fyrir Námssjóð
lækna.
Af nýjum verkefnum á árinu má nefna afgreiðslustörf fyrir tíma-
ritanefnd og afgreiðslu á auglýsingum fyrir Læknablaðið. í ráði er, að
skrifstofan taki að sér reiknishald fyrir væntanlegan lífeyri&sjóð lækna
og e. t. v. elli- og örorkutryggingasjóð lækna.
Skrifstofan hefur í vaxandi mæli tekið að sér aðstoð við lækna í
sambandi við launamál og skattaframtöl.
Símsvari skrifstofunnar veitir sem fyrr almennar upplýsingar um
ýmiss konar þjónustu lækna. Skrifstofan sér einnig um framkvæmd
neyðarvaktar skv. samningi við Sjúkrasamlag Reykjavíkur og hefur
milligöngu gagnvart læknum þeim, er taka neyðarvaktina.
Þá annast skrifstofan einnig ljósprentun og fjölritun fyrir lækna
gegn þóknun. Viðvíkjandi tækjakaupum ber þe.ss að geta, að keypt var
vandað upptökutæki fyrir fundahöld o. fl., og voru þessi kaup gerð í
samráði við stjórn Læknafélags íslands.
Að .sjálfsögðu hefur kostnaður við skrifstofuna aukizt verulega, en
á móti kemur seld þjónusta og vinna fyrir aðra aðila, svo sem Domus
Medica, tímaritanefnd, einstaka lækna o. fI., en endanlegt uppgjör við
þessa aðila liggur ekki fyrir, en unnið er að því. Þess ber að geta, að
L. í. greiðir nú í fyrsta skipti kostnað við skrifstofuna að hálfu á móti
L. R., svo sem sjá má af reikningum félagsins.
Fyrirhuguð er breyting á vinnuaðstöðu á skrifstofunni, og hafa
þegar verið fest kaup á húsgögnum og innréttingum í samráði við
húsgagnaarkitekt, en kostnaður af breytingum þessum deilist milli fé-
laganna.
Á síðasta aðalfundi var árgjald til L. R. ákveðið 6.000.00 kr. með
heimild til innheimtu 1.500.00 kr. aukagjalds, og var sú heimild
notuð. Af þessu renna 4.000.00 kr. beint til L. í.
Starfslið. Eins og á undanförnum árum hefur verulegur hluti af
daglegum framkvæmdum félagsins hvílt á herðum starfs-
fólks skrifstofunnar og þá fyrst og fremst á Sigfúsi Gunnlaugssyni,
sem er fyrsti framkvæmdastjóri félagsins, er hefur það .sem aðalstarf,
og Guðrúnu Þórhallsdóttur, skrifstofustúlku félagsins. Þakkar stjórn
félagsins þeim vel unnin störf á árinu. Auk þessara tveggja hefur
Sóley Kristinsdóttir starfað allmikið á skrifstofu félagsins, þegar verk-
efni félagsins hafa verið meiri en starfslið skrifstofunnar hefur getað
afkastað með góðu móti. Framkvæmdastjóri félagsins hefur auk dag-