Læknablaðið - 01.06.1967, Qupperneq 55
LÆKNABLAÐIÐ
93
verndarstöðvarinnar og aðstoðarborgarlæknir fengju að ganga inn í
hina nýju samninga við lækna Borgarspítalans. Enn fremur áttu sér
stað allmiklar umræður við fulltrúa Reykjavíkurborgar í þeim tilgangi
að fá kjör borgarlæknis bætt til samræmis við yfirlækna Borgarspítal-
ans, en síðar óskaði borgarlæknir eftir við launanefnd, að hann .semdi
sjálfur um sín mál.
Þá hefur launanefnd aðstoðað ýmsa lækna í samningagerðum við
einkastofnanir og veitt enn öðrum ráð og upplýsingar í sambandi við
þessa nýju samninga.
Báðum þessum samningum, þ. e. við Reykjavíkurborg og .stjórnar-
nefnd ríkisspítalanna, var sagt upp frá síðastliðnum áramótum með
sex mánaða fyrirvara. Var talið sjálfsagt að hafa samninga lausa 1. júlí,
ekki vegna þess að áform séu um nýjar kaupkröfur að óbreyttum að-
stæðum, heldur til þess að sníða ýmsa agnúa af samningunum, sem
í Ijós hafa komið við framkvæmd þeirra. Þá er ekki veigalítil ástæða
til uppsagnar samninga sú staðreynd, að lítið sem ekkert hefur orðið
úr fyrirheitum um bætta starfsaðstöðu á sjúkrahúsunum, sem báðir
þeir aðilar, er L. R. gerði samninga við, gáfu, bæði skriflega og munn-
lega í þeim samningaviðræðum, .sem staðið hafa yfir allt síðastliðið ár
og gera raunar enn. Nægir að benda á eftirfarandi: Byggingamálum
Landspítalans og Borgarspítalans hefur lítið miðað áfram, ekki hefur
heyrzt um tilraunir til að ráða sérmenntaða spítalastjóra, enn vantar
læknisfræðilegt bókasafn, aðstöðu til eftirlits með sjúklingum, sem
legið hafa á spítölunum, ýmsa tæknilega aðstoð handa læknum, og
fleira mætti tína til.
Engar viðræður hafa enn átt sér stað í tilefni samningsuppsagnar,
en L. R. mun á næstunni leggja fram ákveðnar tillögur og óskir um
breytingar á þessum samningum.
Launanefnd hefur notið góðrar lögfræðiaðstoðar Guðmundar Ingva
Sigurðssonar í störfum sínum.
Gjaldskrárnefnd. í gjaldskrárnefnd hafa undanfarið ár verið Guð-
mundur Björnsson, Jósep Ólafsson og Halldór Arin-
bjarnar. Nefndin hefur starfað líkt og áður hefur verið venja og haldið
alls fimm fundi.
Nefndin sendi í október 1966 öllum sérgreinafélögum Læknafélags-
ins, 17 að tölu, bréf með fyrirspurn um nýjar tillögur eða breytingar
á gjaldskránni. Örfáar tillögur bárust, og var þeim bætt inn í gjald-
skrána og þær breytingar samþykktar á almennum læknafélagsfundi
í Landspítalanum 8. febrúar. Á sama fundi var einnig samþykkt að
bæta við allan taxtann vísitöluhækkun, sem orðið hefur frá 1/1 1966 til
1/1 1967.
Nefndin hefur hug á að vinna að því að stytta gjaldskrá 1968 og
er þegar farin að leggja drög að því.
Sjúkrahúsmálanefnd. í nefndinni eiga sæti Sigmundur Magnússon,
Arinbjörn Kolbeinsson og Þórarinn Guðnason.
Nefndin starfaði lítið á árinu, en hélt þó þrjá til fjóra fundi. Mál-