Læknablaðið - 01.06.1967, Blaðsíða 66
100
LÆKNABLAÐIÐ
Magnús Ólafsson skýrði smáatriði í reikningum.
Bjarni Bjarnason flutti skýrslu stjórnar Domus Medica. Hann minnti
á, að þótt húsið væri komið í notkun, væri margt, sem eftir væri, þakið
læki og væri æskilegt að byggja hæð ofan á. Þá stæði til að gera teikn-
ingu að lóð hússins og þyrfti að ganga frá henni. Skýrði hann í stórum
dráttum frá því, hvernig það væri hugsað.
Bergsveinn Ólafsson las reikninga Domus Medica.
Þá fór fram kosning sex manna í meðstjórn.
í kjöri voru:
Ólafur Jensson........
Stefán Bogason........
Sigmundur Magnússon .
Hörður Þorleifsson . .
Jón Gunnlaugsson . . .
Þorgeir Gestsson......
Eggert Jóhannsson .. .
hlaut 31 atkv.
— 31 —
— 33 —
— 30 —
— 32 —
— 35 —
— 18 —
Stjórnin stakk upp á endurkjöri í stjórn Ekknasjóðs: Ólafur Einars-
son, Bergsveinn Ólafsson og Halldór Hansen.
í stjórn heilsufræðisýningar.sjóðs voru endurkjörnir þeir Ólafur
Helgason, Bjarni Jónsson og Björn Önundarson.
Endurskoðendur voru kosnir Guðmundur Eyjólfsson og Tómas Á.
Jónasson. Til vara Björgvin Finnsson og Hannes Þórarins.son.
Magnús Ólafs.son, gjaldkeri, lagði til, að árgjald yrði ákveðið kr.
7.500.00, og var það samþykkt.
Ásmundur Brekkan var endurkjörinn í ritstjórn Læknablaðsins.
Önnur mál. Uppástunga stjórnar um fulltrúa á aðalfund L. í.:
Ólafur Bjarnason, Sigmundur Magnússon, Friðrik Sveins-
son, Árni Björnsson, Víkingur H. Arnórsson og Jón Þorsteinsson.
Til vara: Guðjón Lárusson, Gunnlaugur Snædal og Páll Sigurðs-
son. Samþykkt samhljóða.
Jón Þorsteinsson tók til máls og talaði fyrir svohljóðandi tillögu,
sem hann taldi vera til .stuðnings stjórninni í áframhaldandi launa-
baráttu:
Aðalfundur L. R., haldinn í Domus Medica 15. marz 1967, sam-
þykkir að beina þeim tilmælum til stjórnar félagsins, að hún fylgi
framvegis fast eftir ákvæðum síðari málsgreinar 18. gr. laga félagsins.
Jafnframt beinir fundurinn því til stjórnarinnar, að ákvæðum 12. gr.
laga félagsins verði framvegis fylgt að fullu.
Tillagan var samþykkt samhljóða.
Formaður .sleit síðan fundi.