Læknablaðið - 01.12.1974, Blaðsíða 6
156
LÆKNABLAÐIÐ
NABLAÐIÐ
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
Læknaíelag íslands' og |l|r|
Læknafélag Reykjavikur 9*
60. ARG. — SEPT.-DES. 1974
LÆKNABLAÐIÐ 60 ÁRA
,,Vér erum í engum vafa um, að íslenzkt
Læknablað hefir mikið og nauðsynlegt verk
að vinna og vér berum það traust til íslenzku
læknastéttarinnar að hún styðji það, svo það
geti bæði orðið oss til gagns og sóma“.
S\/o mæla fyrstu ritstjórar Læknablaðsins
i hugvekju sinni i fyrsta tölublaði þess árla
árs 1915. Þau orð standa enn i fullu gildi.
Læknabiaðið hefur á 60 árum sannað tilveru-
rétt sinn si/o fáum blandast um það hugur.
Vegur Læknablaðsins er undir læknum lands-
ins sjálfum kominn. Oft hefur á skort, að
þeir sýndu málgagni sínu næga hollustu, en
jafnan hefur hún þó nægt til að halda í þvi
lifi. Blaðið hefur lifað feit ár og mögur, en
jafnan gegnt því hlutverki sínu að vera sú
skuggsjá, er endurspeglar þau mál, sem hjá
læknum eru efst á baugi hverju sinni, hvort
heldur er á hinu fræðilega eða félagslega
sviði. Heldur hefur því vaxið fiskur um hrygg
hvað snertir efnismagn og íburð, en hitt er
svo vafasamara, hvort því hefur farið fram
hvað efnisgæði áhrærir.
Helztu hvatamenn að stofnun Læknablaðs-
ins voru þeir Maggi Júl. Magnús, sem á
fundi í Læknafélagi fíeykjavíkur 1914 hvatti
í fyrirlestri til útgáfu þess, og Guðmundur
Hannesson, en áhugi hans á útgáfu málgagns
fyrir lækna birtist þegar i útgáfu hans á
Læknablaðinu handskrifaða, sem hann héli
úti frá árinu 1901 í þrjú ár. Fyrsta hugmynd
að útgáfu íslenzks læknatímarits mun hafa
komið fram 1898, en 16 ár liðu áður en sá
draumur varð fyrir alvöru að veruleika. Báð-
ir fyrrnefndir menn voru í fyrstu ritstjórn
Læknablaðsins 1915 auk Matthíasar Einars-
sonar. Að öðrum ólöstuðum mun þó þáttur
Guðmundar Hannessonar mestur við að
fleyta blaðinu yfir hin erfiðu uppvaxtarár.
Meðan hann var ritstjóri og jafnan meðan
hans naut við, var hann óþreytandi að skrifa
í blaðið bæði þýtt efni og frumsamið. Ætti
að tilnefna einn mann föður Læknablaðsins
yrði Guðmundur Hannesson óefað fyrir val-
inu.
RITSTJORAR LÆKNABLAÐSINS
Guðmundur Hannesson 1915-1921
Maggi Júl. Magnús 1915-1917
Matthías Einarsson 1915-1922
Stefán Jónsson 1918-1920, 1922
Guðmundur Thoroddsen 1921-1929, 1955-1956
Gunnlaugur Claessen Sæmundur Bjarnhéðins- 1923-1930
son 1923-1925
Magnús Pétursson 1926-1928
Helgi Tómasson 1929-1939
Níels Dungal 1930-1934
Valtýr Albertsson 1931-1933
Lárus Einarsson 1934
Halldór Hansen 1935-1936
Sigurður Sigurðsson 1935-1937
Jóhann Sæmundsson 1937-1941
Jón Steffensen 1938-1941
Júlíus Sigurjónsson 1940-1941, 1950-1955. 1958-1961
Ólafur Geirsson 1942-1954, 1957-1965
Kristinn Stefánsson 1942-1943
Óli P. Hjaltested 1942-1943, 1956-1957
Biörn Sigurðsson 1944-1948
Jóhannes Björnsson 1944-1949
Bjarni Konráðsson 1949-1950
Pórarinn Guðnason 1951-1954
Bjarni Jónsson 1955-1956
Ólafur Bjarnason 1957-1965
Magnús Ólafsson 1962-1968
Ásmundur Brekkan 1965-1970
Porkell Jóhannesson 1965-1971
Ólafur Jensson 1965-1971
Árni Björnsson Sigurður P. Guðmunds- 1965-1966
son 1966-1968
Karl Strand 1968-1971
Hrafn Tulinius 1968-1969
Sævar Halldórsson 1970-1971
Árni Kristinsson 1971
Arinbjörn Kolbeinsson 1972 og síðan
Páll Ásmundsson 1972 og síðan