Læknablaðið - 01.12.1974, Blaðsíða 83
LÆKNABLAÐIÐ
209
Tafla XII framh.
Jensen et al.
Blegdam Hosp.,
Copenh.
1960—1965
All (except first
month of life)
m
co
o
co
O
w
SH ^
103 29 1 1
78 21 16 21
64 18 2 3
46 18 12 26
65 18 7 11
356 99 38 11
þessu uppgjöri eru með mengisbólgu af
völdum D.pneumoniae eða aðeins 5% á
móti 11% hjá Mathias & Wehrle (sjá töflu
XII) og 14% hjá sjúklingum innan 15 ára
í uppgjöri Jensen et al. (21) og kann ég
enga skýringu þar á.
Þá er og hlutfallstala sjúklinga með svo-
kallaða „sjaldgæfari“ sýkla lægri en í
mörgum öðrum uppgjörum, þ. á m. Mat-
hies & Wehrle. Venjulega er um ýmsa
gram-neikvæða stafi að ræða, svo og strep-
toeocci, staphylocci og Listeria monocyto-
genes. Slikar sýkingar sjást helzt hjá ung-
börnum innan 1 mánaðar, öldnu fólki og
sjúklingum með fyrirlæga sjúkdóma, t. d.
myelomeningocele, höfuðkúpubrot eða eft-
ir aðgerðir á heila. Sumir telja, að mengis-
bólgutilfellum af völdum „sjaldgæfari"
sýkla hafi farið fjölgandi með aukinni
notkun sýklalyfja (9, 11). Aðrir, þ. á m.
höfundar Stokkhólmsuppgjörsins (22),
telja sig ekki hafa orðið vara við hlutfalls-
aukningu slíkra sýklategunda. Þá er cg
áberandi í þessu uppgjöri hversu margir
sjúklingar þar eru, sem ekki tókst að
sýklagreina, hvort sem litið er á 15 eða 10
ára tímabilið (tafla I og XII), en að því
verður vikið nánar síðar.
Tíðni: Um raunverulega tíðni meningitis
bacterialis, t. d. eftir löndum, hafa ekki
sézt ákveðnar tölur, en reynt hefur verið
að gera sér grein fyrir tíðni sjúkdómsins,
þar sem svo hefur háttað til, að ákveðin
sjúkrahús hafa tekið við slíkum sjúkling-
um frá afmörkuðum svæðum. I Oslo er
talið að 5—6 ný mengistilfelli komi fyrir
á ári per 100 þús. íbúa (10) og svipaða
tölu er að finna í uppgjörum frá Kaup-
mannahöfn (21) og Stokkhólmi (22), sem
og Bandaríkjunum (3). Þessar tölur mið-
ast við sjúklinga á öllum aldri, en að
meirihluta mun hafa verið um börn að
ræða og í Stokkhólmsuppgjörinu er tekið
fram, að 3/4 sjúklinganna hafi verið undir
15 ára aldri.
Hér hafa á umræddu tímabili komið inn
á barnadeild Landspítalans að meðaltali
4.6 mengisbólgusjúklingar per 100 þús. í-
búa á ári. Þar sem eitthvað af börnum
með þennan sjúkdóm mun hafa á sama
tímabili vistazt á öðrum sjúkrahúsum,
virðist tíðni mengisbólgu hjá börnum eitt-
hvað hærri hérlendis en í umræddum
löndum.
Kyn og aldur; Reynslan hefur sýnt, að
sýkingar eru algengari 'hjá körlum en kon-
um, hlutfallið nálægt 1.5. Washburn et al.
(39), sem gerðu ýtarlega könnun á þessu
atriði eftir skýrslum um meningitis bac-
terialis, komust að þeirri niðurstöðu, að
slíks mismunar gætti á öllum aldri og í
flestum sýklaflokkum ef sundurliðað var
eftir þeim. Fyrirburðir og sjúklingar með
fyrirlæga sjúkdóma voru ekki teknir með
í skýrslu þeirra. Hjá börnum innan 1 mán-
aðar aldurs, þar sem „óalgengari“ sýklar
eru tíðasta sýkingarorsök, var hlutfall
kynja hvað hæst eða 1.81, en meðaltal
allra aldursflokka 1.42. Miðað við aðal-
sýklaflokkana var hlutfallið: N.meningtidis
1.36, H.influenzae 1.35 og D.pneumoniae
1.86. í greininni kom fram sú tilgáta, að
minna næmi konunnar fyrir sýkingum
stæði í sambandi við kyn-litningana, að 2
x-litningar gögnuðu í þessu tilliti betur en
XY-litningar karlmannsins.
í uppgjöri Blegdamshospitalet (21) var
hlutfall karla og kvenna 1.4. Munurinn
var lítill í D.pneumoniae sýkingu (40/38).
í Stokkhólmsuppgjörinu (22) var hlutfall-
ið 1.5, en þar voru fleiri konur en karlar
með meningitis meningococcica. í Ullevál-
skýrslunni (10) var álíka fjöldi karla og