Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.1974, Síða 83

Læknablaðið - 01.12.1974, Síða 83
LÆKNABLAÐIÐ 209 Tafla XII framh. Jensen et al. Blegdam Hosp., Copenh. 1960—1965 All (except first month of life) m co o co O w SH ^ 103 29 1 1 78 21 16 21 64 18 2 3 46 18 12 26 65 18 7 11 356 99 38 11 þessu uppgjöri eru með mengisbólgu af völdum D.pneumoniae eða aðeins 5% á móti 11% hjá Mathias & Wehrle (sjá töflu XII) og 14% hjá sjúklingum innan 15 ára í uppgjöri Jensen et al. (21) og kann ég enga skýringu þar á. Þá er og hlutfallstala sjúklinga með svo- kallaða „sjaldgæfari“ sýkla lægri en í mörgum öðrum uppgjörum, þ. á m. Mat- hies & Wehrle. Venjulega er um ýmsa gram-neikvæða stafi að ræða, svo og strep- toeocci, staphylocci og Listeria monocyto- genes. Slikar sýkingar sjást helzt hjá ung- börnum innan 1 mánaðar, öldnu fólki og sjúklingum með fyrirlæga sjúkdóma, t. d. myelomeningocele, höfuðkúpubrot eða eft- ir aðgerðir á heila. Sumir telja, að mengis- bólgutilfellum af völdum „sjaldgæfari" sýkla hafi farið fjölgandi með aukinni notkun sýklalyfja (9, 11). Aðrir, þ. á m. höfundar Stokkhólmsuppgjörsins (22), telja sig ekki hafa orðið vara við hlutfalls- aukningu slíkra sýklategunda. Þá er cg áberandi í þessu uppgjöri hversu margir sjúklingar þar eru, sem ekki tókst að sýklagreina, hvort sem litið er á 15 eða 10 ára tímabilið (tafla I og XII), en að því verður vikið nánar síðar. Tíðni: Um raunverulega tíðni meningitis bacterialis, t. d. eftir löndum, hafa ekki sézt ákveðnar tölur, en reynt hefur verið að gera sér grein fyrir tíðni sjúkdómsins, þar sem svo hefur háttað til, að ákveðin sjúkrahús hafa tekið við slíkum sjúkling- um frá afmörkuðum svæðum. I Oslo er talið að 5—6 ný mengistilfelli komi fyrir á ári per 100 þús. íbúa (10) og svipaða tölu er að finna í uppgjörum frá Kaup- mannahöfn (21) og Stokkhólmi (22), sem og Bandaríkjunum (3). Þessar tölur mið- ast við sjúklinga á öllum aldri, en að meirihluta mun hafa verið um börn að ræða og í Stokkhólmsuppgjörinu er tekið fram, að 3/4 sjúklinganna hafi verið undir 15 ára aldri. Hér hafa á umræddu tímabili komið inn á barnadeild Landspítalans að meðaltali 4.6 mengisbólgusjúklingar per 100 þús. í- búa á ári. Þar sem eitthvað af börnum með þennan sjúkdóm mun hafa á sama tímabili vistazt á öðrum sjúkrahúsum, virðist tíðni mengisbólgu hjá börnum eitt- hvað hærri hérlendis en í umræddum löndum. Kyn og aldur; Reynslan hefur sýnt, að sýkingar eru algengari 'hjá körlum en kon- um, hlutfallið nálægt 1.5. Washburn et al. (39), sem gerðu ýtarlega könnun á þessu atriði eftir skýrslum um meningitis bac- terialis, komust að þeirri niðurstöðu, að slíks mismunar gætti á öllum aldri og í flestum sýklaflokkum ef sundurliðað var eftir þeim. Fyrirburðir og sjúklingar með fyrirlæga sjúkdóma voru ekki teknir með í skýrslu þeirra. Hjá börnum innan 1 mán- aðar aldurs, þar sem „óalgengari“ sýklar eru tíðasta sýkingarorsök, var hlutfall kynja hvað hæst eða 1.81, en meðaltal allra aldursflokka 1.42. Miðað við aðal- sýklaflokkana var hlutfallið: N.meningtidis 1.36, H.influenzae 1.35 og D.pneumoniae 1.86. í greininni kom fram sú tilgáta, að minna næmi konunnar fyrir sýkingum stæði í sambandi við kyn-litningana, að 2 x-litningar gögnuðu í þessu tilliti betur en XY-litningar karlmannsins. í uppgjöri Blegdamshospitalet (21) var hlutfall karla og kvenna 1.4. Munurinn var lítill í D.pneumoniae sýkingu (40/38). í Stokkhólmsuppgjörinu (22) var hlutfall- ið 1.5, en þar voru fleiri konur en karlar með meningitis meningococcica. í Ullevál- skýrslunni (10) var álíka fjöldi karla og
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.