Læknablaðið - 01.12.1974, Side 11
LÆKNABLAÐiÐ
161
Number
of cases: 51 66 84 91 99
MYND 1
Fig. 1. Age-specific prevalence of MS pati-
ents in Iceland on 31 December in the
period 1945-1965, based on definite and pro-
bable cases.
VINNUTILHÖGUN OG
EFNIVIÐUR
Leit að sjúklingum hófst árið 1957 og
voru sjúkraskrár allra sjúkrahúsa Reykja-
víkur rannsakaðar frá 1930. Vottorð Trygg-
TABLE 2 cont.
Females Both sexes
Total Prevalence Prevalence
population2) per 100,000 per 100,000
11,734 8.52 4.19
10,631 112.88 69.25
8,745 102.92 83.95(95.15)
7,502 119.97(133.30) 79.44(92.68)
5,873 119.19(136.22) 69.84(87.30)
4,134 0.00 0.00
2,772 0.00 0.00
1,033 0.00 0.00
66,438 57.20(60.21) 38.43(42.95)
ingastofnunar ríkisins og ríkisframfærsl-
unnar voru einnig öll nákvæmlega rann-
sökuð. Samband var haft við lækna á öll-
um spítölum og í öllum héruðum og ferðir
farnar um landið þvert og endilangt. Söfn-
un tilfella stóð frá 1957 til ársloka 1972.
Flestir sjúklinganna hafa verið skoðaðir
af tveim eða fleiri neurologum, og síðan
taugasjúkdómadeild Landspítalaps tók til
starfa árið 1967, hafa flestir nýir sjúkling-
ar verið lagðir þar inn til rannsóknar. Eftir
að fyrstu niðurstöður fyrir árin 1946-1955
höfðu verið endurskoðaðar, voru alls 105
sjúklingar með MS, sem lifað höfðu ein-
hvern tíma á þessu tímabili, og á tíma-
bilinu frá 1956-1965 bættust við 37 sjúkl-
ingar.
Tafla 1 sýnir, að á 20 ára tímabili frá
1946-1965, hafa fundist 142 sjúklingar og
af þeim eru 129 öruggir (definite) og lík-
legir (probable), en 13 vafasamir (pos-
sible). Konur eru í miklum meirihluta,
alls 79 af 129.
ALGENGU)
Með algengi er átt við fjölda sjúklinga
lifandi á ákveðnum tíma, vanalega í lok
árs eða rannsóknartímabils. Er þá oftast
— og alltaf í þessu yfirliti — miðað við
fjölda þeirra á 100,000 íbúa. Með aldurs-
bundnu algengi (age-specific) er átt við
algengi innan tiltekins aldurshóps.
Eins og lesa má úr töflum nr. 2-6 hefur
algengi MS (örugg og líkleg tilfelli) meðal
karla vaxið úr 19.6 í árslok 1945 í 44.0
í árslok 1965, enda þótt dragi úr vexti á
seinni hluta tímabilsins. Meðal kvenna
gætir minni breytinga á algengi, en algengi
meðal þeirra er mun hærra en meðal karla,
eða um 60.
Sé betur gætt að, sést að algengi og
breytingar á því er mjög aldursbundið.
Kemur þetta mjög greinilega fram á línu-
riti (mynd 1).
Algengi er langhæst í aldursflokknum
30-49 ára, en myndin er gerð af algengis-
töflum. Línuritið sýnir vaxandi algengi í
aldursflokkum 30-39 og 50-69, en lækkandi
í aldursflokknum 10-29.
*) prevalence.