Læknablaðið - 01.10.1977, Blaðsíða 51
Á meðfylgjandi myndum má sjá kost þess að nota
mm
ROCHE
við parkinsonsveiki.
Dopamin fluorisering í heila manna
Heilbrigð manneskja til
samanburöar: Mikil dop-
aminfluorisering.
Parkinsons sjúklingur án
meðferöar: Lítil fluorisering.
Parkinsons sjúklingur stilltur inn á
árangursríkasta skammt af
L-dopa: Greinileg fluorisering.
Parkinsons sjúklingur
stilltur inn á
árangursríkasta skammt
af <Madopar>: Sterk
fluorisering, næstum
eins og hjá heilbrigöri
manneskju.
Þessar myndir styöja þaö álit, sem læknar hafa fengið á <Madopar> við meðferð á parkinsonsveiki
In vivo Marphological
Heimild:
1. Constantinidis, J., Siegfried, J.( Friggesi.T. L., Tissot, R.: Parkinson's Disease and Striatal Dopamine:
Evidence for the Presence of Dopamine in the Human Brain. J. Neur. Transmiss. 35,13—22 (1974).
Lyfiö er skráö með eftirgreindum skilmálum.
Ábendingar:
Parkinsonsveiki og parkinsonslík sjúkdómseinkenni, önnur en
af völdum lyfja.
Frábendingar:
Varast ber að nota lyfiö, ef um alvarlega hjarta-, nýrna- eða
lifrarsjúkdóma er aö ræða. Lyfið ber einnig að nota með varúö,
ef um geðsjúkdóma er aö ræða. Lyfið skyldi ekki gefa með
mónóamínoxídasablokkurum, og rétt er aö hætta gjöf lyfsins
2—3 dögum fyrir skurðaðgerð. Við bráðar skurðaögerðir er
ráðlegt aö nota hvorki halótan né cýklóprópan.
Aukaverkanir:
Blóöþrýstingslækkun í uppréttri stöðu, klígja, lystarleysi og
uppsala. Aukaverkanir þessar eru venjulega mestar í byrjun.
Svefnleysi hyperkinesia og sjaldnar geödeyfð, koma fyrir.
Alvarlegasta aukaverkun eftir lyfið er dyskinesia, þar á meðal
chorea-líkar og athetosis-líkar hreyfingar, er einkum koma
eftir langvarandi gjöf lyfsins Allar þessar aukaverkanir eru
háðar skammtastærð og hverfa eöa minnka, ef dregið er úr
skömmtum. Adrenerg lyf (efedrín o. fl.) má gefa meó lyfinu til
þess aó hamla blóöþrýstingslækkun, en hafa veröur hugfast,
aö um samverkandi verkun gæti aö ööru leyti veriö aö ræða.
Skammtastærðir handa fullorðnum:
Venjulega er byrjaö á því aö gefa 125 mg hylki þrisvar sinnum
á dag. Dagsskammtur er síöan aukinn um 125 mg meó viku
bili eöa oftar. Fullur lækningalegur skammtur liggur oft á bilinu
1—2g á dag, en getur í vissum tilvikum verið allmiklu meiri.
Skammtastærðir handa börnum:
Lyfiö er ekki ætlað börnum.
Lyfiö skal vera lyfseðilsskylt og vera merkt A í lyfjaskrám.
Lyfið veröur greitt af sjúkrasamlögum miðaö viö merkinguna
B í lyfjaskrám.
Lyfió skal vera í 20. flokki bókarinnar Lyf á (slandi.
Nánari upplýsingar eru á fylgiseöli.
<Madopar> er skráð vörumerki.
F.Hoffmann-La Roche ErCo. A.G.,
Basel, Sviss
Einkaumboö á íslandi:
£tetfáh ~[kcrarehMh k.fr
Laugavegi 16, Reykjavík, S. 50402
Ljósmyndir af sniðum ór striatum látins fólks sýna
mismunandi dopaminmagn, sem mismikla fluor-
iseringu við dimman bakgrunn. Hinir lýsandi hvítu
flekkir koma vegna fluoriseringarfráfituútfellingum.
Myndirnar eru látnar í té af Constantinidis og sam-
verkamönnum hans. Rannsóknaraóferðinni er lýst
í ritgerð þeirra1.